Fréttablaðið - 22.05.2010, Qupperneq 72
40 22. maí 2010 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma
512 5000.
VICTOR HUGO (1802-1885) LÉST
ÞENNAN DAG.
„Ég elska alla menn sem
hugsa, jafnvel þá sem
hugsa öðruvísi en ég.“
Victor Hugo var franskur rit-
höfundur. Verk hans snertu á
helstu málefnum og stefnum
í stjórnmálum og list á ævi-
ferli hans. Þau þekktustu eru
Vesalingarnir og Hringjarinn í
Notre-Dame.
MERKISATBURÐIR
1133 Sæmundur fróði Sigfús-
son andast.
1702 Erindisbréf er gefið út
vegna gerðar manntals á
Íslandi.
1921 Fyrstu hljómsveitartón-
leikar eru haldnir á Ís-
landi.
1952 Fyrstu trén í Kjarnaskógi
við Akureyri eru gróður-
sett.
1971 Fyrstu orlofshús opinberra
starfsmanna eru tekin í
notkun í Munaðarnesi í
Borgarfirði.
1990 Norður- og Suður-Jemen
á Arabíuskaganum sam-
einast.
2008 Eurobandið tekur þátt í
forkeppni Eurovision.
Áburðarverksmiðjan í Gufunesi var vígð 22. maí
1954 og það ár hófst framleiðsla áburðar hér á
landi. Í fyrstu var bara um eina tegund að ræða,
það var köfnunarefnisáburðurinn Kjarni og var
köfnunarefnið unnið úr andrúmsloftinu. Fram-
leiðslugetan var 24 þúsund tonn á ári.
Verksmiðjan fékk rafmagn úr Írafossvirkjun í
Soginu því á þeim tíma var ekki markaður fyrir
alla þá raforku sem framleidd var nema að til
kæmi stóriðja en bygging Írafossvirkjunar og
Áburðarverksmiðjunnar var fjármögnuð með
Marshall-aðstoðinni. Áburðarsala ríkisins hafði
einkarétt á innflutningi og sölu áburðar. Hún
flutti inn steinefnaáburð, þrífosfat og kalí til að
blanda með hinum íslenska Kjarna. Rekstur
Áburðarverksmiðjunnar og Áburðarsölunnar
var fljótlega sameinaður og hafði verksmiðjan
einkaleyfi á sölu á áburði á Íslandi til ársins
1995. Þá hafði framleiðslugetan aukist til muna
og tegundum fjölgað.
ÞETTA GERÐIST: 22. MAÍ 1954
Áburðarverksmiðjan vígð
„Á Þjóðminjasafninu eru fastar, stór-
ar sýningar en einnig nokkur minni
sýningarrými og í þeim rýmum er
lagt mikið kapp á að fortíðin mæti
nútíðinni. Til að mynda tókum við
nýlega niður sýningu um búsáhalda-
byltinguna og við setjum alltaf slíkar
sýningar upp öðru hvoru,“ segir Þor-
björg Gunnarsdóttir, sýningarstjóri í
Þjóðminjasafni Íslands. Í síðustu viku
var sýningin Klippt og skorið – um
skegg og rakstur opnuð í Horninu á 2.
hæð safnsins. Á sýningunni gefur að
líta ýmislegt tengt skeggi karlmanna
og hvernig þetta karlmennskutákn
hefur tekið mið af tísku og tíðaranda
í gegnum árin.
Freyja H. Ómarsdóttir er höf-
undur sýningarinnar og segir Þor-
björg vinnuna við efnisöflun, sem
þær unnu í sameiningu, hafa verið
einkar skemmtilega og áhugaverða.
„Mikið af mununum á sýningunni eru
í eigu Þjóðminjasafnsins, til dæmis
margar skemmtilegar ljósmyndir
úr Ljósmyndasafni Íslands, en aðra
muni fengum við lánaða úr einka-
eigu. Meðal þess er stóllinn úr fyrstu
íslensku rakarastofunni sem Árni
Nikulásson stofnaði árið 1901 með
stuðningi Tryggva Gunnarssonar
bankastjóri og fleiri aðila. Auk þess
heimsóttum við marga rakara sem
bæði lánuðu okkur myndir og muni og
sögðu okkur skemmtilegar sögur úr
fortíðinni, af aðferðum sem voru not-
aðar í gamla daga og þar fram eftir
götunum,“ segir Þorbjörg.
Hún segir athyglisvert að rifja
upp tíðarandann eins og hann birt-
ist í gegnum skeggtísku hvers tíma.
„Gamlar aðferðir og stílar komast
reglulega aftur í tísku. Til dæmis er
rakhnífur notaður við rakstur hjá
Kormáki og Skildi, haldnar eru yfir-
varaskeggskeppnir og eins er mun
algengara að ungir menn séu með
alskegg í dag en verið hefur í árarað-
ir. Sjálfri þykir mér vel snyrt skegg
flott. Það er ákveðinn karlmennsku-
bragur sem fylgir því,“ segir Þor-
björg.
Sýningin Klippt og skorið kemur til
með að standa yfir fram til áramóta
og er opin frá klukkan 10 til 17 alla
daga.
kjartan@frettabladid.is
SÝNING KLIPPT OG SKORIÐ Í ÞJÓÐMINJASAFNINU: VAR OPNUÐ Í SÍÐUSTU VIKU
Tíðarandinn speglast í skeggi
erf idr yk kjur
G R A N D
Hlýlegt og gott viðmót
á Grand hótel.
Fjölbreyttar veitingar
lagaðar á staðnum.
Næg bílastæði
og gott aðgengi.
Grand Hótel Reykjavík
Sigtún 38, 105 Rvk.
Sími: 514 8000
www. grand.is
erfidrykkjur@grand.is
Verið velkomin
á Grand hótel
Afmæli
Ætting jum, vinum og öðrum gestum
sem tóku þátt í því að halda nítugasta
afmælisdag minn hinn 8. maí sl., færi
ég hugheilar þakkir fyrir að gera
daginn minnisstæðan.
Baldur Ingólfsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, dóttir og systir,
Helga Vilmundardóttir
Álfhólsvegi 25,
lést miðvikudaginn 19. maí á Líknardeildinni í
Kópavogi. Útför auglýst síðar.
Gunnhildur J. Gunnarsdóttir,
Hlífar V. Helgason, Lísa María Hjartardóttir, Sindri Snær
Snorrason, Gunnhildur V. Friðriksdóttir, Vilmundur
Þorsteinsson, Þorsteinn J. Vilmundarson, Oddur F.
Vilmundarson.
Okkar innilegustu þakkir til allra
þeirra sem sýndu okkur samúð og
vináttu við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður,ömmu og
langömmu
Theodóru Guðnadóttur,
frá Höllustöðum, Reykhólahreppi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki dvalarheimilis-
ins í Barmahlíð á Reykhólum fyrir góða umönnun.
Kristrún Samúelsdóttir Karl I Karlsson
Jónas Samúelsson Bergljót Bjarnadóttir
Þorgeir Samúelsson
Ingvar Samúelsson
Björn Samúelsson Ágústa Bragadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærs
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Jóns Gunnars
Sigurðssonar
Sérstaklega viljum við þakka starfsfólki á Hrafnistu í
Reykjavík fyrir frábæra umönnun.
Guðrún Jónsdóttir Stefán Pálsson
Ólöf Jónsdóttir Viðar Sigurjónsson
Auður Jónsdóttir Kristinn H. Þorsteinsson
Ólafur Th. Jónsson Hildur Hansen
Geir Hafsteinn Jónsson Mette Helsted Frandsen
afabörn og langafabörn.
SKEGG Í GEGNUM ÁRIN Þorbjörg segir efnisöflun fyrir sýninguna hafa verið afar skemmtilega og áhugaverða. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
AFMÆLI
HAFDÍS HULD
ÞRASTAR-
DÓTTIR
söngkona er
31 árs.
NAOMI
CAMPBELL
fyrirsæta er
fertug.