Fréttablaðið - 22.06.2010, Side 15

Fréttablaðið - 22.06.2010, Side 15
ÞRIÐJUDAGUR 22. júní 2010 15 Ég heyrði einu sinni bandarískan mann segja frá því, að í virtum háskóla í Bandaríkjunum hefði á sínum tíma komið upp umræða um óvissuþáttinn í viðskiptum. Jafnvel yfirgripsmikil þekking á lögmálum viðskiptalífsins bæri ekki í sér vís- dóm um það sem framundan væri á hverjum tíma. Og spurningin var: Á hverju byggja forstjórar öflugra fyrirtækja ákvarðanir sínar þegar þeir taka áhættu í viðskiptum? Þegar fréttist af sérstöku þingi helstu jöfra viðskiptalífsins í næsta fylki, vaknaði sú hugmynd að fá að rannsaka þetta með vísindaleg- um hætti. Skólinn hafði samband við stjórnendur þingsins sem tóku þessu vel. Þetta var á bernskudög- um tölvunnar, þegar hún var stór klumpur en ekki nett fartölva á hvers manns borði eða símtæki í vasa. Talsvert mál var að flytja hana og þegar komið var á áfanga- stað virkaði hún ekki fyrst í stað. Haft var samband við tölvusérfæð- ing en óvissa hvort hann kæmist í tíma. Málið leystist. Rætt var við þingfulltrúa sem komu víða að úr mörgum starfsgreinum. Niðurstaðan kom á óvart Í ljós kom, að traust og stöndug fyrirtæki studdust við reynslu og þekkingu á eigin markaðssvæði, en forstjórar stærstu og öflugustu fyr- irtækjanna studdust undantekning- arlítið við eigið innsæi. Höfðu á tilfinningunni hvað var í farvatninu og þorðu að treysta því. Nokkur dæmi voru nefnd um slík- ar ákvarðanir sem virtust um tíma hafa verið feigðarflan, en síðan gerðist eitthvað sem kallaði á þörf fyrir þessa vöru, og stjórnandinn sat með pálmann í höndunum. Ekki spurt um flokkskírteini Árið 1981 var landsfundur Sjálf- stæðisflokksins haldinn undir yfir- skriftinni: Fyrir framtíðina. Auk hefðbundinna nefndarstarfa og funda var sérstakur dagskrár- liður undir þessu heiti. Fjórir ein- staklingar,sem tengdust atvinnulífi og vísindum, höfðu verið fengnir til að flytja erindi, þar sem litið var til framtíðar varðandi tækifæri í atvinnulífi, velferð og menningar- málum. Ekki var litið til flokksskírteinis þegar þetta fólk var valið, heldur reynslu þess, og hverrar gerðar það var. Þetta voru ólíkir einstaklingar og afar áhugavert og upplýsandi að hlusta á þá. Ég hef oft vel fyrir mér síðan, hver vegna svona dagskrá eða sam- bærileg er ekki á hverjum lands- fundi, til að rífa okkur upp úr hefð- inni og koma með nýjan vinkil í pólitíska umræðu. Ekki bara í Sjálfstæðisflokknum, heldur öllum stjórnmálaflokkum. Ég hef líka verið að hugsa um hvaða fjóra einstaklinga ég myndi sjálf velja í dag í slíkan dagskrárlið, og komist að þeirri niðurstöðu að það væri um býsna marga að ræða, en enginn af þeim sem koma í hugann hafa starfað í stjórnmálum. Ísland 2010 Árið 1987 kom úr prentun víðtæk könnun á framtíðarhorfum Íslend- inga næsta aldarfjórðunginn, til þess að vekja umræður um lang- tímasjónarmið í stjórnmálum og auðvelda fólki, fyrirtækjum og stjórnvöldum að móta stefnu til langs tíma. Heftið er grænt og heit- ir, Gróandi þjóðlíf. Yfirfyrirsögn á forsíðu er: ÍSLAND 2010. Í formála segir meðal annars: „Hér á landi eru fyrirsjáanlegar miklar breytingar á aldursskipt- ingu mannfjöldans, sem hafa víð- tæk áhrif á félagsmál og efna- hagsmál, útgjöld hins opinbera og þjóðfélagið allt,“ en fram kemur jafnframt að það verði fyrst fund- ið fyrir því árið 2010. Margt er áhugavert í þessu hefti og kunnuglegt. Til dæmis að lífs- stíll og umhverfisáhrif verði veiga- mestu áhrifavaldar um heilsufar í framtíðinni, einstaklingar hafi aldrei ráðið jafnmiklu um eigið heilsufar, og að heilsufar jarðarbúa verði innbyrðis tengdara en áður. Þetta eru allt sjálfsagðir hlutir í dag, en hafa ekki alltaf verið það. Á öllum tímum velta menn fyrir sér framtíðinni, og auðvitað ræðst hún mest af því sem gert er í dag. En það verður að segjast eins og er, að ráðandi öfl í landinu eru nær því að vera blaktandi tíra en bjart leið- arljós fyrir fólkið í landinu. Í öllum stjórnmálaflokkum er viðvarandi ágreiningur. Og hver hefur áhuga á fóstri hjá foreldr- um sem rífast og slást á almanna- færi og rægja hvort annað, meðan leirinn er óþveginn í vaskinum og þvotturinn liggur óhreinn út um allt. Fyrir framtíðina Jónína Michaelsdóttir blaðamaður Í DAG Á öllum tímum velta menn fyrir sér framtíðinni, og auðvitað ræðst hún mest að því sem gert er í dag. En það verður að segjast eins og er, að ráðandi öfl í land- inu eru nær því að vera blaktandi tíra en bjart leiðarljós fyrir fólkið í landinu. Grein Helga Hjörvars alþingis-manns, sem birtist í Fréttablað- inu 15. júní sl. snýst um skuldaleið- réttingu húsnæðislána almennings. Frá því snemma árið 2008 hefur hagur hins almenna íbúðareiganda versnað til muna eins og alþjóð veit. Uppsöfnuð verðbólga frá ársbyrjun 2008 nemur tæpum 30 prósentum með tilheyrandi hækkun íbúðar- lána svo ekki sé minnst á rýrnun kaupmáttar venjulegs fólks. Helgi færir rök fyrir því að um 100 milljarða króna svigrúm hafi skapast hjá stjórnvöldum til að leiðrétta húsnæðisskuldir. Bendir hann á aukið svigrúm bankanna til afskrifta og ávinning ríkissjóðs og lífeyrissjóðanna af sk. Avens-samn- ingi sem nýlega var gerður milli Seðlabanka Íslands og Seðlabanka Lúxemborgar. Kjarninn í greininni er sá að án almennra afskrifta er aðallega komið til móts við þá sem voru hvað duglegastir að skuldsetja sig á undanförnum árum. Viðbrögð forsætisráðherra við greininni valda vonbrigðum. Hún telur þörf á að koma [„…til móts við þá verst stöddu og gætu sumir fengið allt að 90 prósent niðurfell- ingu skulda.“] Vissulega þarf að koma til móts við stórskuldara en hvað með þann mikla fjölda fólks sem hefur sýnt ráðdeild og tók lán af varfærni? Skilaboð stjórnvalda til almenn- ings eru þau að aðeins verði komið til móts við allra skuldsettustu ein- staklingana. Hinir geta átt sig. Hversu lengi ber manni að borga greiðsluseðlana án þess að sjáist högg á vatni? Þótt höfuðstóllinn á verðtryggðum lánum lækki hægt og rólega hefur „skuld samtals með verðbótum“ gert fátt annað en að hækka undanfarin ár þökk sé verð- bólgunni og verðtryggingunni. Það virðist stoða lítt að greiða aukalega inn á höfuðstólinn því lánin eru eins og botnlaus hít í því árferði sem nú er. Að mínu mati snýst málið um að stjórnvöld sýni viðleitni til að leiðrétta stökkbreytt íbúðarlán. Almennar afskriftir upp á 20 pró- sent sem hafa verið viðraðar má telja óraunhæfar en hvað með 10 prósent með 5 milljón króna afsláttarþaki? Ekki yrði um nein- ar töfralausnir að ræða en eins og áður sagði snýst þetta um viðleitni stjórnvalda til almennra afskrifta. Svigrúmið telur Helgi Hjörvar vera til staðar. Hvort nýgenginn dómur Hæstaréttar um ólögmæti gengis- tryggðra lána hefur áhrif á stöðu þeirra sem eru með verðtryggð húsnæðislán á bakinu skal ósagt látið. Hver eru skilaboð stjórnvalda? Auglýsing um umsóknir um úthlutun losunarheimilda skv. lögum um losun gróðurhúsalofttegunda nr. 65/2007. Úthlutunarnefnd losunarheimilda, sem skipuð er af umhverfi sráðherra og starfar skv. lögum nr. 65/2007 um losun gróðurhúsalofttegunda auglýsir hér með eftir umsóknum um losunarheimildir frá atvinnurekstri sem uppfyllir ákvæði laganna og hyggjast hefja eða auka starfsemi sína fyri árslok 2012. Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um losun gróðurhúsa- lofttegunda skal atvinnurekstur sem fellur undir 7. gr. laganna sækja um úthlutun á losunarheimildum til Umhverfi sstofnunar eigi síðar en 9 mánuðum áður en fyrirhuguð starfsemi hefst. Umsókn skal uppfylla kröfur 8. gr. laga um losun gróðurhúsaloftegunda og skal m.a. staða undirbúnings viðkomandi atvinnurekstrar koma fram með skýrum hætti. Í þessu felst að gera skal grein fyrir hvort afl að hafa verið leyfa fyrir atvinnurekstrinum og þá hvaða leyfa hafi verið afl að og sem afl a þarf lögum samkvæmt, eða þeim áföngum sem náðst hafa í öfl un þeirra, öfl un orku fyrir reksturinn og öðrum þáttum sem skýrt geta stöðu undirbúningsins. Samkvæmt ákvörðun 14/CP.7 við Kyoto bókunina þarf að koma fram hvernig starfsemin uppfyllir skilyrði hennar, einkum um notkun endurnýjanlegrar orku og bestu fáanlegrar tækni vegna atvinnurekstursins. Umsóknum og viðbótarupplýsingum skal skilað til Umhverfi sstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykja- vík, eigi síðar en 16. júlí 2010 og er umsóknargjald kr. 250.000. Úthlutunarnefnd losunarheimilda 21. júní 2010 Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is Varfærni, einfalt þjónustuframboð og örugg vinnubrögð skipta öllu máli fyrir fólk og fyrirtæki. Þannig á banki að vera. Netgreiðsluþjónusta Gjaldeyrisreikningar Sparnaðarreikningar Yfirdráttur Debetkort Launareikningur Kreditkort Netbanki Viltu gerast viðskiptavinur elsta starfandi banka á Íslandi? Við sjáum um það fyrir þig. Sigríður Einarsdóttir útibússtjóri Ármúla Skuldaleiðréttingar Haukur Claessen stjórnmálafræðingur

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.