Fréttablaðið - 22.06.2010, Page 33

Fréttablaðið - 22.06.2010, Page 33
ÞRIÐJUDAGUR 22. júní 2010 Þegar einn greiðir ekki skuld sína verður það hlutskipti ann- ars. Ef skuldari þarf ekki að greiða neina verðtryggingu af bílaláni mun hann ekki skila því fé sem hann fékk. Það getur hlaupið á hundruðum milljarða króna sem dómur Hæstaréttar færir milli landsmanna ef ekkert kemur í stað verðtryggingarinnar, sem dæmd var ólögmæt. Skattgreiðendur hafa fengið sendan reikninginn fyrir gjaldþroti Seðlabankans. Tapið er þegar orðið 175 milljarðar króna og gæti orðið meira. Þá hefur ríkið sett 196 milljarða króna í þrjá við- skiptabanka í formi hlutafjár og víkjandi lána. Taki lánafyrirtækin skellinn af dómi Hæstaréttar tapa skattgreiðendur fé sem ríkið hefur lagt fram. Það tap verður að sækja með hækkun skatta eða lækkun útgjalda. Stærstu útgjaldaliðirn- ir eru framlög til heilbrigðismála, menntamála og Tryggingarstofn- unar ríkisins. Það verður einhver sem greiðir skuldina að lokum. Íslenskt þjóðfélag er í mikl- um vanda sem snertir alla. Alltof margir hafa safnað alltof miklum skuldum í alltof langan tíma. Eina ráðið er að semja um skuldirnar, deila þeim niður með sanngjörn- um og ábyrgum hætti og greiða þær. Engin lausn fæst með því að efna til átaka milli skuldara, þjóð- félagshópa eða kynslóða. Tilraun- ir til þess að velta skuldum eins yfir á herðar annars verða aldrei grundvöllur sanngjarnrar og far- sællar niðurstöðu. Slíkt háttalag endurspeglar aðeins sérhyggju og ábyrgðarleysi. Afnám verðtrygg- ingar á fjárskuldbindingum og niðurfærslu á höfuðstól lána eins og krafist er mun skerða verulega almenn lífeyrisréttindi og þrengja heiftarlega að ellilífeyrisþegum. Skuldarar tóku sín lán með erlendri verðtryggingu af fúsum og frjálsum vilja. Nóg var fram- boðið af lánsfé og menn gátu valið lánastofnun, lánsform og verð- tryggingu. Erlenda verðtrygg- ingin var eftirsótt vegna þess að vextir voru lágir og að auki þýddi sterkt gengi íslensku krónunnar að verðtryggingin var lítil sem engin í samanburði við innlenda verðtryggingu. Aðilar máls gerðu með sér samning um að skuldar- inn endurgreiddi það fé sem hann tók að láni. Verðtryggingin er til þess að svo verði. Lánið hefði ekki staðið til boða ef ekki væri verð- trygging. Það var hverjum skuld- ara fullkunnugt um. Hæstirétt- ur gerir engar athugasemdir við verðtryggingu fjárins, heldur form hennar. Samningurinn stendur að öðru leyti. Skuldarinn á áfram að endurgreiða verðmæti lánsins en finna þarf lögmæta verðtrygg- ingu. Það er eðlilegt og sanngjarnt að verðtryggja lánið við vísitölu neysluverðs. Annað helst óbreytt þar með talið vextirnir. Þar með efnir skuldarinn samninginn og greiðir lánið til baka, nýtur áfram lágu vaxtanna og þess að verðtryggingin er lægri. Lána- stofnunin tapar nokkru en fær þó lánið endurgreitt að fullu í íslensk- um krónum, enda er það úrskurð- urinn í málinu að lánið hafi verið að öllu leyti innlent. Segja má að aðilar deili milli sín tapinu á gjald- eyrishruninu með sanngjörnum hætti. Enda voru þeir báðir aðilar að hinu ólögmæta ákvæði og hljóta báðir að bera ábyrgð á því. Fyrir liggur niðurstaða héraðs- dóms þess efnis að mikil hækk- un bílaláns sem tryggt var með gengi erlendra mynta leiðir ekki til ógildingar samningsins, en greiðandi taldi að samningurinn væri ósanngjarn og vísaði til 36. laga um samningagerð, umboð og ólögmæta gerninga. Hæstiréttur breytti þessari niðurstöðu ekki, en sneri dómnum við af öðrum ástæðum. Hvernig sem á málin er litið þá er ekki sanngjarnt að skuldari losni við að greiða skuld sína í kjölfar dóms Hæstaréttar og láti öðrum það eftir. Fjárhæðirnar eru svo háar sem um er að tefla að slíkt gengur ekki. Verðtryggð skuld sem breytist í óverðtryggða er skuldatilfærsla frá einum til annars og mismun- ar skuldurum. Fráleitt er að fella niður verðtryggingu höfuðstóls lána af sumum lánum en við- halda henni á öðrum. Hægt er að endur meta grundvöll verðtrygg- ingarinnar ef rök standa til þess en meginreglan verður að vera sú að lántakandi endurgreiði þau verðmæti sem hann fékk að láni. Stórfelldar fjármagns- og eigna- tilfærslur milli þjóðfélagshópa sundra þjóðinni og magna deilurn- ar og á því er síst þörf um þess- ar mundir. Verkefni stjórnvalda er að leiða málin til lykta þannig að sanngjarnt sé og sæmilegur friður skapist um niðurstöðuna þegar frá líður. Það verður ekki auðvelt verk við núverandi aðstæður í þjóðfé- laginu þar sem óbilgjarn og öfga- kenndur málflutningur er áber- andi. En þar mun skipta sköpum að lausnin verði sanngjörn, hóf- söm og ábyrg. Skuldir þarf að greiða Svooona gott Því lengi býr að fyrstu gerð Sumt breytist aldrei Enn sem fyrr býður Gerber upp á mikið úrval af næringarríkum, hollum og góðum barnamat. Veldu aðeins það besta fyrir barnið þitt, því lengi býr að fyrstu gerð. E N N E M M / S ÍA / N M 4 2 6 6 5 Gengistryggð lán Kristinn H. Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.