Fréttablaðið - 22.06.2010, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 22. júní 2010
Þegar einn greiðir ekki skuld sína verður það hlutskipti ann-
ars. Ef skuldari þarf ekki að greiða
neina verðtryggingu af bílaláni
mun hann ekki skila því fé sem
hann fékk. Það getur hlaupið á
hundruðum milljarða króna sem
dómur Hæstaréttar færir milli
landsmanna ef ekkert kemur í stað
verðtryggingarinnar, sem dæmd
var ólögmæt. Skattgreiðendur hafa
fengið sendan reikninginn fyrir
gjaldþroti Seðlabankans. Tapið er
þegar orðið 175 milljarðar króna
og gæti orðið meira. Þá hefur ríkið
sett 196 milljarða króna í þrjá við-
skiptabanka í formi hlutafjár og
víkjandi lána. Taki lánafyrirtækin
skellinn af dómi Hæstaréttar tapa
skattgreiðendur fé sem ríkið hefur
lagt fram. Það tap verður að sækja
með hækkun skatta eða lækkun
útgjalda. Stærstu útgjaldaliðirn-
ir eru framlög til heilbrigðismála,
menntamála og Tryggingarstofn-
unar ríkisins. Það verður einhver
sem greiðir skuldina að lokum.
Íslenskt þjóðfélag er í mikl-
um vanda sem snertir alla. Alltof
margir hafa safnað alltof miklum
skuldum í alltof langan tíma. Eina
ráðið er að semja um skuldirnar,
deila þeim niður með sanngjörn-
um og ábyrgum hætti og greiða
þær. Engin lausn fæst með því að
efna til átaka milli skuldara, þjóð-
félagshópa eða kynslóða. Tilraun-
ir til þess að velta skuldum eins
yfir á herðar annars verða aldrei
grundvöllur sanngjarnrar og far-
sællar niðurstöðu. Slíkt háttalag
endurspeglar aðeins sérhyggju og
ábyrgðarleysi. Afnám verðtrygg-
ingar á fjárskuldbindingum og
niðurfærslu á höfuðstól lána eins
og krafist er mun skerða verulega
almenn lífeyrisréttindi og þrengja
heiftarlega að ellilífeyrisþegum.
Skuldarar tóku sín lán með
erlendri verðtryggingu af fúsum
og frjálsum vilja. Nóg var fram-
boðið af lánsfé og menn gátu valið
lánastofnun, lánsform og verð-
tryggingu. Erlenda verðtrygg-
ingin var eftirsótt vegna þess að
vextir voru lágir og að auki þýddi
sterkt gengi íslensku krónunnar
að verðtryggingin var lítil sem
engin í samanburði við innlenda
verðtryggingu. Aðilar máls gerðu
með sér samning um að skuldar-
inn endurgreiddi það fé sem hann
tók að láni. Verðtryggingin er til
þess að svo verði. Lánið hefði ekki
staðið til boða ef ekki væri verð-
trygging. Það var hverjum skuld-
ara fullkunnugt um. Hæstirétt-
ur gerir engar athugasemdir við
verðtryggingu fjárins, heldur form
hennar. Samningurinn stendur að
öðru leyti. Skuldarinn á áfram að
endurgreiða verðmæti lánsins en
finna þarf lögmæta verðtrygg-
ingu. Það er eðlilegt og sanngjarnt
að verðtryggja lánið við vísitölu
neysluverðs. Annað helst óbreytt
þar með talið vextirnir. Þar með
efnir skuldarinn samninginn
og greiðir lánið til baka, nýtur
áfram lágu vaxtanna og þess að
verðtryggingin er lægri. Lána-
stofnunin tapar nokkru en fær þó
lánið endurgreitt að fullu í íslensk-
um krónum, enda er það úrskurð-
urinn í málinu að lánið hafi verið
að öllu leyti innlent. Segja má að
aðilar deili milli sín tapinu á gjald-
eyrishruninu með sanngjörnum
hætti. Enda voru þeir báðir aðilar
að hinu ólögmæta ákvæði og hljóta
báðir að bera ábyrgð á því.
Fyrir liggur niðurstaða héraðs-
dóms þess efnis að mikil hækk-
un bílaláns sem tryggt var með
gengi erlendra mynta leiðir ekki
til ógildingar samningsins, en
greiðandi taldi að samningurinn
væri ósanngjarn og vísaði til 36.
laga um samningagerð, umboð og
ólögmæta gerninga. Hæstiréttur
breytti þessari niðurstöðu ekki,
en sneri dómnum við af öðrum
ástæðum. Hvernig sem á málin
er litið þá er ekki sanngjarnt að
skuldari losni við að greiða skuld
sína í kjölfar dóms Hæstaréttar og
láti öðrum það eftir. Fjárhæðirnar
eru svo háar sem um er að tefla að
slíkt gengur ekki.
Verðtryggð skuld sem breytist
í óverðtryggða er skuldatilfærsla
frá einum til annars og mismun-
ar skuldurum. Fráleitt er að fella
niður verðtryggingu höfuðstóls
lána af sumum lánum en við-
halda henni á öðrum. Hægt er að
endur meta grundvöll verðtrygg-
ingarinnar ef rök standa til þess
en meginreglan verður að vera
sú að lántakandi endurgreiði þau
verðmæti sem hann fékk að láni.
Stórfelldar fjármagns- og eigna-
tilfærslur milli þjóðfélagshópa
sundra þjóðinni og magna deilurn-
ar og á því er síst þörf um þess-
ar mundir. Verkefni stjórnvalda er
að leiða málin til lykta þannig að
sanngjarnt sé og sæmilegur friður
skapist um niðurstöðuna þegar frá
líður. Það verður ekki auðvelt verk
við núverandi aðstæður í þjóðfé-
laginu þar sem óbilgjarn og öfga-
kenndur málflutningur er áber-
andi. En þar mun skipta sköpum
að lausnin verði sanngjörn, hóf-
söm og ábyrg.
Skuldir þarf að greiða
Svooona gott
Því lengi býr að fyrstu gerð
Sumt breytist aldrei
Enn sem fyrr býður Gerber upp á mikið úrval af næringarríkum,
hollum og góðum barnamat. Veldu aðeins það besta fyrir
barnið þitt, því lengi býr að fyrstu gerð.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
2
6
6
5
Gengistryggð lán
Kristinn H.
Gunnarsson
fyrrverandi
alþingismaður