Fréttablaðið - 05.08.2010, Page 4

Fréttablaðið - 05.08.2010, Page 4
4 5. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is og 1964 var um vetrarhlýindi að ræða en árið 2003 voru allir mánuð- ir nema maí hlýrri en vanalegt er. Það sem af er árinu hefur einnig verið óvenju þurrt en þó sérstaklega á Vestur- og Norðvesturlandi. Ekki hefur verið jafn þurrt í Reykjavík síðan árið 1979. Einar Sveinbjörnsson segir greinilegt að Ísland sé í hlýjum veð- urfarskafla. Síðast hafi svona kafli gengið yfir á árunum um og fyrir síðari heimsstyrjöldina en þó hafi það tímabil ekki verið jafn samfellt gott og nú. Aðspurður hvort eitt- hvað bendi til þess að þessum veð- urlagskafla sé að ljúka segir Einar: „Svona tímabilum hefur oft lokið með því að hafið í kringum landið kólnar á ný og þá stundum í kjöl- far þess að hafís heimsækir landið og það er eitthvað sem erfitt er að sjá fyrir.“ magnusl@frettabladid.is VEÐUR Meðalhiti í Reykjavík í júní og júlí samanlögðum er sá hæsti sem vitað er um frá upphafi sam- felldra mælinga árið 1871, eða 12,2 stig. Það sama gildir um meðalhita í Stykkishólmi þar sem samfelldar mælingar hafa staðið yfir frá árinu 1845, meðalhita í Vestmannaeyj- um þar sem mælt hefur verið frá 1877 og meðalhita á Hveravöllum þar sem hefur verið mælt frá 1965. Þetta kemur fram á vefsíðu Veður- stofu Íslands. „Í sjálfu sér eru engar nærtækar skýringar á þessu. Flest sumur frá árinu 2003 hafa verið hlý. Horfa má til þess að sjórinn í kringum landið hefur verið hlýr á þessu tímabili auk þess sem kaldar norðanáttir eins og þekktust hafa ekki sést í sama mæli,“ segir Einar Svein- björnsson veður- fræðingur. Hann segir það athygl- isvert við lið- inn júlí að þrátt fyrir háan með- alhita hafi ekki komið nein sérstök hitabylgja heldur hafi hitinn haldist nokkuð stöðugur. „Það verður líka að horfa til þess að þó svo það hafi verið svona hlýtt á Suður- og Suð- vesturlandi þá hefur fólk á Austur- og Norðausturlandi ekki sömu sögu að segja þar sem minna hefur verið af góðum sumardögum en það á að venjast,“ segir Einar. Séu fyrstu sjö mánuðir ársins skoðaðir hefur aðeins þrisvar sinn- um verið hlýrra í Reykjavík, eða árin 1929, 1964 og 2003. Árin 1929 GENGIÐ 04.08.2010 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 211,2577 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 118,42 118,98 188,73 189,65 156,51 157,39 21,003 21,125 19,812 19,928 16,676 16,774 1,3846 1,3926 181,46 182,54 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR SUMAR- MARKAÐUR ELLINGSEN LOKADAGUR Á MORGUN, FÖSTUDAG! ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR ellingsen.is MENNTUN Katrín Jakobsdótt- ir menntamálaráðherra hefur ákveðið að verja einni milljón króna af ráð- stöfunarfé sínu til að styrkja rannsóknir á hlut íslenska háskólasamfé- lagsins í hrun- inu. Styrkur- inn rennur til Rannsókn- arstofu um háskóla sem Páll Skúlason, heimspekingur og fyrrum rektor, veitir forstöðu. Styrkurinn á að efla rannsókn- arstofuna og vekja fræðimenn og stjórnendur háskóla til umhugs- unar um siðferðilega ábyrgð sína og skyldur við samfélagið. Í tilkynningu ráðherra segir að þrátt fyrir takmarkaða fjármuni telji hún mikilvægt að rannsaka stjórnkerfi, lagaumhverfi, starfs- hætti, menningu og siðferði í háskólasamfélaginu. - kóp Ein milljón króna í rannsókn: Þáttur háskóla í hruni skoðaður KATRÍN JAKOBSDÓTTIR FÉLAGSMÁL Akureyrarbær hefur ákveðið að leigja tíu til tólf íbúðir á stúdentagörðum í bænum í allt að fimm ár. Bærinn mun leigja íbúðir af Félagsstofnun stúdenta við Háskólann á Akureyri. Bærinn ætlar svo að endurleigja íbúðirn- ar til að grynnka á biðlistum eftir leiguhúsnæði. Almennar leigu- íbúðir verða því innan um stúd- entaíbúðirnar. Biðlistar eftir leiguhúsnæði hafa verið talsverðir í bænum á meðan framboð á stúdentaíbúð- um hefur jafnvel verið umfram eftirspurn. - þeb Biðlistar eftir leigu styttir: Bærinn leigir stúdentaíbúðir RÚSSLAND, AP Borgaryfirvöld í Moskvu vöruðu íbúa í gær við eitruðum reyk af völdum nær- liggjandi skógarelda sem liggur yfir borginni. Mökkurinn í gær er sagður sá þykkasti til þessa. Skógareldar hafa eyðilagt skóga í Rússlandi, þorp og eina herstöð. Í landinu er mesta hita- bylgja sem þar hefur riðið yfir og eykur það á vanda vegna skógar- elda, sem plaga mið- og vestur- héruð landsins. Nærri 50 manns hafa látist í eldunum. Slökkvilið hefur ráðið niðurlögum 293 elda, en ráðu- neyti almannavarna í Rússlandi segir vitað um aðra 403. Yfir 500 eldar nái yfir stór landsvæði og sumir þeirra séu stjórnlausir. - óká Eldar brenna enn í Rússlandi: Mökkurinn yfir Moskvu aldrei verið þykkari Í RÚSSLANDI Forsætisráðherra Rússa hittir flugmenn ráðuneytis almannavarna í Rússlandi á flugvellinum í Voronezh í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Klemmdi fimm fingur Starfsmaður í álveri Alcoa-Fjarðaáls á Reyðarfirði klemmdist illa við vinnu á föstudaginn var. Hann var að gera við kælikerfi steypuskálans í álverinu þegar hendur hans klemmdust milli reimar og tannhjóls. Þrír fingur brotn- uðu á annarri hendi og tveir á hinni. Maðurinn starfaði fyrir Launafl. SLYS VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 29° 22° 26° 21° 21° 16° 22° 22° 23° 20° 31° 34° 35° 18° 23° 15° 21°Á MORGUN Strekkingur allra vestast annars hægari. LAUGARDAGUR Fremur hægur vindur um allt land. 13 14 13 131513 13 13 15 15 13 13 13 13 11 1613 14 15 16 11 2 7 1 2 2 2 3 2 2 3 2 RIGNIR EÐA EKKI? Það er lægð í kort- unum sem ber einhverja vætu inn á landið um helg- ina. Hversu mikil úrkoman verður er þó ekki vel ljóst og fer það eftir því hversu langt frá landi lægðin verður. Þær geta verið erfi ðar þessar lægðir. Ingibjörg Karlsdóttir veður- fréttamaður VIÐSKIPTI Arion banki hefur selt Stjörnugrís rekstur gjaldþrota svínabúanna Brautarholts á Kjalarnesi og Hýrumels í Borgarfirði. Bankinn tók svínabúin yfir fyrr á árinu vegna skulda- vandræða. Búin voru boðin út en ekkert tilboð barst nema frá Stjörnugrís. Fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins í gær að á meðan bankinn hafi rekið búin hafi hann þurft að greiða á annað hundrað krónur með hverju kílói sem framleitt var á búunum. Geir Gunnar Geirsson, framkvæmdastjóri Stjörnugríss, segir svínabúin hafa verið rekin af vanþekkingu af Arion banka og það skýri tapið. „Þetta var mjög illa rekið á öllum sviðum enda er kannski ekki eðlilegt að banki starfræki svínabú frekar en önnur fyrirtæki,“ segir hann. Slíkur rekstur krefjist mikillar sérþekkingar og bankann hafi skort hana. „Þetta er okkar fag og þess vegna sjáum við tækifæri í hluta af þessu þótt þeir hafi tapað gríðarlega.“ Fyrir hafi stór hluti af viðskiptum búanna verið við Stjörnugrís. Geir Gunnar segir að mikil offramleiðsla hafi verið á svínakjöti hérlendis að undanförnu og fyrirséð sé að minnka þurfi búin. Hann segir aðspurður að búin hafi ekki feng- ist á gjafverði. „Nei, langt því frá. Þetta var keypt á mjög sanngjörnu verði.“ - sh Við blasir að hagræða þurfi í rekstri tveggja áður gjaldþrota svínabúa sem Stjörnugrís kaupir af Arion banka: Segir Arion hafa rekið svínabú af vanþekkingu SVÍN Stór hluti af viðskiptum búanna tveggja í gegnum árin hefur verið við Stjörnurgís. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA Staður Meðalhitastig í júlí Röð yfir hlýjustu júlímánuði Reykjavík 13.0 1 til 2 af 140 Stykkishólmur 11.9 5 af 165 Bolungarvík 10.6 23 til 25 af 113 Akureyri 11.1 51 til 52 af 128 Egilsstaðir 10.8 25 af 61 Dalatangi 8.6 29 af 72 Teigarhorn 9.6 20 af 137 Höfn í Hornafirði 11.5 - Stórhöfði 11.8 2 af 133 Hveravellir 9.1 7 af 45 Fengið af vefsíðunni www.vedur.is Óvenju ljúfur júlímánuður Heitasta sumar frá upphafi í Reykjavík Samanlagður meðalhiti í júní og júlí í Reykjavík er sá mesti frá upphafi mæl- inga, eða 12,2 stig. Meðalhiti hefur víðast hvar verið hærri en vanalegt er. BLÍÐVIÐRI Í REYKJAVÍK Reykvíkingar hafa fengið næg tækifæri til að njóta góðs veðurs í sumar. Sólskinsstundir í júlí voru þó færri en fyrir ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON EINAR SVEINBJÖRNSSON

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.