Fréttablaðið - 05.08.2010, Blaðsíða 32
5. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR4
„Þetta er sýning um Skreflur sem
var veiðistöð norður á Ströndum,“
segir Helga Mogensen skartgripa-
hönnuður. Í Listmunahorni Árbæj-
arsafns stendur nú yfir sýningin
Skreflur á skartgripum Helgu,
hálsmenum, nælum og hringum.
„Skreflur er staður sem ég fer til á
sumrin með fjölskyldu minni. Stað-
urinn er tengdur ýmsum minning-
um. Þar er ekkert rafmagn eða
heitt vatn. Og það eru svona tvö ár
síðan það komst á GSM sam-
band þarna. Þetta er
algjör paradís.“
Helga segist
fá efniviðinn í
skartgripi sína
úr fjörunni hjá
Skreflum. „Ég
fæ allan reka-
viðinn, plast og
annað smálegt
þarna og inn-
blástur líka.“ En
ertu þá ekki mikið
niðri í fjöru
þegar þú
ert á Skrefl-
um? „Jú, ég
er eiginlega
bara alltaf
í fjörunni
að tína efni,“ upplýs-
ir Helga sem hefur
skemmt sér við það frá
unga aldri. „Herbergið
mitt var alltaf troðfullt
af rekavið og alls konar
netakúlum.“
Staðurinn hefur per-
sónulega þýðingu fyrir
Helgu og því ákvað
hún að tengja það við
skartgripina. „Ég
vildi nota efnivið sem
tengist mér persónu-
lega. Ef skartgrip-
irnir eru persónuleg-
ir fyrir mig þá koma
þeir skemmtilega út
og fólk á eftir að tengj-
ast hlutunum betur,“ segir
Helga og heldur
áfram: „Eins og
litli stóllinn
sem er innan
í e i n u m
hringnum
er tákn um
staðinn og
hvað hann
gefur mér.
Þetta er
tákn um
mig.“
Helga
útskrifaðst
frá Edin-
burgh Coll-
ege of Art
árið 2007
með fyrstu
einkunn í
skartgripa-
hönnun. „Á síð-
asta árinu mínu
var ég að vinna
með rekavið og roð.
Ég var að reyna að tengja það inn
í útskriftina og sýninguna mína
þar,“ segir Helga sem hefur verið
iðin við sýningarhald frá útskrift
en hún hefur tekið þátt í nokkrum
sýningum hérlendis og erlendis
síðan.
Sýningin Skreflur stendur
yfir til 13. ágúst. Önnur sýning
á verkum Helgu er í Hönnunar-
safni Íslands og ber heitið Úr hafi
til hönnunar. Hægt er að nálgast
skartgripi hennar í verslunum
Kraums. martaf@frettabladid.is
„Ég er eiginlega bara alltaf í
fjörunni að tína efni.“
Helga fær innblástur frá gamalli veiðistöð á Ströndum, Skrefl-
um. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Helga finnur
allan rekavið
í fjörunni hjá
Skreflum.
Stóllinn er tákn um mig
Gömul veiðistöð, Skreflur, norður á Ströndum hefur veitt skartgripahönnuðinum Helgu Mogensen mik-
inn innblástur. Úr fjörunni þaðan fær hún rekavið, plast og aðra smáhluti sem hún notar í hönnun sína.
Nánari upplýs-
ingar um Helgu
má finna á
www.helgamog-
ensen.com.
Stóllinn
er tákn um
Skreflur og
hvað stað-
urinn gefur
Helgu.
„Ef skartgripirnir
eru persónulegir
fyrir mig koma
þeir skemmtilega
út.“
3000 kr.
ENDURTÖKUM 3000 KR DAG
VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA
• Kjólar
• Gallakvartbuxur
• Gallabuxur
• Mussur
• Toppar
• Skyrtur
• Og margt fl eira
50% afsláttur af
öllum útsöluvörum
FLOTTIR KLÚTAR
Mikið úrval af klútum og
slæðum fyrir haustið.
Klútar með kögri verð kr. 2.500,-
Öll sólgleraugu verð kr. 1.500.-
Minnum á útsölulok
- meiri afsláttur
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
· Tekur 12 Kg · Hljóðlát
· Stórt op > auðvelt að hlaða
· Sparneytin
12 kg
Þvottavél
og þurrkari
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…
Gerð C-290
HxBxD=145x60x60 cm
280 ltr. kælir
Hvítur
kr. 64.900
Gerð F-245
HxBxD=145x60x60 cm
205 ltr. frystir
Hvítur
kr. 74.900
Gerð RF-27
HxBxD=150x60x62 cm
173 ltr. kælir
54 ltr. frystir
Hvítur. Kr. 104.900
Stál. Kr. 129.900
Gerð RF-32
HxBxD=176x60x62 cm
233 ltr. kælir
54 ltr. frystir
Hvítur. Kr. 114.900
Stál. Kr. 144.900
Gerð RF-36
HxBxD=194,5x60x62 cm
233 ltr. kælir
88 ltr. frystir
Hvítur. Kr. 119.900
Stál. Kr. 149.900
NÝJA KÆLISKÁPALÍNAN FRÁ ER KOMIN
KÆLISKÁPAR MEÐ EÐA ÁN FRYSTIS,
FRYSTISKÁPAR - ALLS 20 GERÐIR
25% KYNNINGARAFSLÁTTUR
Opið: Mán. - föst. kl. 09-18www.friform.is