Fréttablaðið - 05.08.2010, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 5. ágúst 2010
Á hverju einasta ári þegar sumar nálgast fyllast frönsku „kvennablöðin“ af megrunarkúrum og
ýmsum fegrunarleiðbeiningum
sem eiga að gjörbreyta líkam-
anum fyrir sumarfríið á strönd-
inni. Einkennilegt en minna fer af
sögum um árangur af kúrunum. Í
sumar er þó nýtt umfjöllunarefni
í tímaritunum heldur áhugaverð-
ara, tengt ávöxtum og áhrifum
þeirra almennt á líkamann.
Suðrænir, litríkir ávextir eru
sem sælgæti fyrir okkur Íslend-
inga vana því norður á hjara ver-
aldar að lítið vaxi. En litur ávaxt-
anna hefur tilgang, til dæmis þeir
rauðu, bleiku eða gulrauðu. Litn-
um og jafnvel ilminum er nefni-
lega ætlað að draga að fugla og
dýr sem borða ávextina og dreifa
þannig fræjunum svo ný tré vaxi.
Ávextirnir innihalda bæði nátt-
úrulega sólarvörn og andoxun-
arefni þar sem þeir þurfa bæði
að þola sól og veðrabreytingar
svo þeir haldist ferskir fram að
fullum þroska. Þessir eiginleik-
ar geta nýst mannskepnunni.
Auðvitað í daglegri fæðu okkar
en nú reyna snyrtivöruframleið-
endur að nýta þessa eiginleika
ávaxtanna í ýmsar snyrtivörur
eins og rakakrem fyrir andlitið,
krem fyrir líkamann og alls kyns
maska og svo einnig hársnyrti-
vörur. Þessir mismunandi eig-
inleikar ávaxtanna og reyndar
grænmetis líka eiga með þessum
snyrtivörum að hafa hin ýmsu
jákvæðu áhrif á líkamann, svo
sem á hrukkumyndum, sólarvörn
og fleira.
Eplatré inniheldur ýmis andox-
unarefni sem einnig er að finna
í sjálfu eplinu. Það þarf því ekki
að koma á óvart að eplavörur
og krem eru ofarlega á blaði hjá
þeim sem framleiða snyrtivör-
ur úr ávöxtum og er t.d. notað af
frönsku snyrtivöruframleiðend-
unum Yves Rocher og l´Occitane.
Oft hefur verið talað um að gul-
rætur séu góðar fyrir húðina og
eigi að búa hana undir sólböð en
nú segja fræðingar að tómatar
séu miklu betri og allt að tíu sinn-
um öflugri en gulrætur. Nú er
því hægt að taka inn tómatatöfl-
ur (Innéov) áður en farið er í frí
en einnig hefur Garania nú tekist
að varðveita viðkæma eiginleika
tómatanna í kremi. Ólífuolía er
einstaklega rík af ómegafitusýr-
um, 3, 6 og 9 sem bæta litaraft
húðarinnar. Vínber vinna gegn
ellimörkum og áfram mætti telja.
Auðvitað eru allar þessar vörur
enn betri ef þær eru unnar úr
lífrænt ræktuðum afurðum sem
hafa vaxið í ómenguðum jarð-
vegi og það sama á sjálfsagt við
þá ávexti sem við leggjum okkur
til munns.
Ávaxtasnyrtivörurnar hafa
þann kost að auki að nánast eng-
inn fær af þeim ofnæmi sem er þó
sífellt algengara með hefbundn-
ar snyrtivörur. Hins vegar fer
engum sögum af vísindalegum
rannsóknum á ávaxtayngingar-
meðulunum en það sakar kannski
ekki að reyna. bergb75@free.fr
Paradískir ávextir, tómatar með
sólarvörn og eilífur æskublómi
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Frægðin gerir það að verkum að
stjörnur þurfa að standast kröfur um
ytra útlit. Leik- og söngkonan Jennifer
Hudson er þekkt fyrir sínar ávölu línur
og íturvaxinn barm en hefur á síðustu
mánuðum lagt mikið af eins og greint
er frá í tímaritinu InStyle. Þar segir að
Hudson hafi farið úr fatastærðinni 16
niður í 6.
Mikið hefur verið að gera hjá Hud-
son undanfar-
ið. Hún hefur
hlotið mikl-
ar vinsæld-
ir bæði fyrir
leik og söng
en auk þess
er hún nýlega
orðin móðir og
hyggur nú á
brúðkaup.
Jennifer segist
þó aldrei ætla að
vera horuð auk
þess sem unnusti
hennar David reyni
að freista henn-
ar með kræsing-
um þar sem honum
þyki barmurinn hafa
minnkað fram úr
hófi.
Hudson aðeins hálf
JENNIFER HUDSON HEFUR HRIST AF
SÉR FJÖLDAMÖRG KÍLÓ Á SÍÐUSTU
MÁNUÐUM.
Hudson í júní í fyrra.
Kung Fu fyrir krakka á þriðjud.
og fi mmtud. kl. 13.00
Frábært úrval
Allt það nýjasta frá
London, París,
Amsterdam og Milano.
Haustvörurnar komnar
Lín Design - gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 - Sími 533 2220 - www.lindesign.is
ÚTSALAN ER HAFIN
10-50% afsláttur
Útsalan er einnig í vefverslun
www.lindesign.is
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, s: 462 3504