Fréttablaðið - 05.08.2010, Síða 6
6 5. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
EFNAHAGSMÁL Reiknað er með að
funda um Icesave í september, að
loknum sumarleyfum í Bretlandi.
Síðasti formlegi samningafund-
ur var haldinn 5. mars, rétt fyrir
þjóðaratkvæðagreiðslu Íslendinga
þar sem samningum frá því haust-
ið 2009 var hafnað.
Samninganefndirnar hafa átt
í óformlegu sambandi af og til
síðan þá og embættismenn hittust
í byrjun júlí, á tveggja daga fundi
í Reykjavík. Þar var rætt um að
koma málum af stað í haust. Lee
Buchheit, formaður ísensku samn-
inganefndarinnar, sat þann fund.
„Menn hafa verið að skiptast
á skeytum og stefnt er að því að
koma málum í traustari og skipu-
lagðari farveg eftir sumarfrí,“
segir Guðmundur Árnason, ráðu-
neytisstjóri fjármálaráðuneytis-
ins. Hann væntir þess að fundað
verði í september.
Enn er deilt um ábyrgðina á
Icesave-reikningunum og fram-
kvæmdastjórn Evrópusambands-
ins svaraði norsku fréttastofunni
ABC því til á dögunum að Íslend-
ingum bæri að greiða Icesave að
fullu. Fyrir því væru tvær áðstæð-
ur.
Í fyrsta lagi hefði innstæðu-
tryggingartilskipun Evrópusam-
bandsins ekki verið innleidd hér
með réttum hætti á sínum tíma.
Í öðru lagi vísaði framkvæmda-
stjórnin í jafnræðisregluna og að
hún hefði verið brotin.
Er þar horft til neyðarlaganna
svokölluðu, en með þeim tryggðu
íslensk stjórnvöld innlendar inn-
stæður í bönkum hérlendis að
fullu. Framkvæmdastjórnin vísar
til þess og að það sama þurfi að
gilda um allar innstæður, ætli
menn að halda jafnræðisregluna
í heiðri.
Fréttablaðið sendi fjármálaráðu-
neytinu fyrirspurn um kostnað
vegna Icesave-viðræðnanna. Þar
var bæði spurt um launakostnað
nefndarmanna sem og þann kostn-
að sem hlotist hefði af ráðlegging-
um erlendra sérfræðinga.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir,
upplýsingafulltrúi fjármálaráðu-
neytisins, upplýsti Fréttablaðið að
tölur yfir þann kostnað lægju ekki
fyrir og ekki stæði til að taka þær
saman fyrr en að viðræðum lokn-
um. Líkt og áður segir er allsendis
óvíst hvenær það verður.
kolbeinn@frettabladid.is
Icesave-viðræður í
gang í september
Stefnt er að því að sendinefndir Íslands, Bretlands og Hollands fundi um Ice-
save í september. Nefndirnar hittust á fundi í Reykjavík í júlí. Fjármálaráðu-
neytið gefur ekki upp hve mikill kostnaður við Icesave-viðræðurnar er orðinn.
ÞUNGBÚNIR VIÐ ATKVÆÐAGREIÐSLU Icesave-samningur var samþykktur 30. desem-
ber 2009 í annað skipti á Alþingi. Ekki hefur verið fundað í málinu frá því 4. mars.
ORKUMÁL Björk Guðmundsdóttir
tónlistarmaður segir fréttamann
AFP-fréttaveitunnar hafa haft
rangt eftir sér svör hennar um
Magma Energy á blaðamanna-
fundi á þriðjudag.
AFP hafði eftir Björk að Magma
Energy ætlaði sér að kaupa upp
allar orkuauðlindir Íslands og
væri þegar að skoða kaup á fimm
orkufyrirtækjum til viðbótar við
HS orku.
Þetta segir Björk misskilning
blaðamanns. Hún hafi aldrei sagt
að Magma ætlaði sér að kaupa
upp allar orkuauðlindir landsins.
Þá hafi mögulega skolast til þegar
hún hafi sagt að Magma hefði
áhuga á því að virkja á fimm stöð-
um á landinu, hún hafi aldrei talað
um kaup á fimm fyrirtækjum.
Björk segir að staðirnir sem hún
hafi verið að tala um séu raunar
sjö talsins. Það séu Hrunamanna-
afrétt, Öræfi, Reykjahlíð, Vogar,
Bjarnarflagsvirkjun, Kerlingar-
fjöll og Krýsuvík.
Björk segist enn fremur hafa
nefnt að oft hafi Magma komið
til landa sem hafi þurft á hjálp
frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum að
halda. Rangt sé að hún hafi haldið
því fram að Magma sé í samstarfi
við sjóðinn.
Blaðamannafundurinn var hald-
inn í Helsinki í Finnlandi, en tilefn-
ið var frumsýning nýrrar teikni-
myndar um Múmínálfana. - bj
Björk Guðmundsdóttir segir fréttaveituna AFP hafa rangt eftir sér um Magma:
Talaði aldrei um fimm fyrirtæki
TOKYO, AP Sendinefnd frá Banda-
ríkjunum verður við minningar-
athöfn um kjarnorkuárás Banda-
ríkjamanna á Hírósíma í Japan
sem haldin verður í borginni á
morgun. Þá verða 65 ár liðin frá
kjarnorkusprengingunni sem
kostaði 140.000 manns lífið. Þetta
er í fyrsta skipti sem Bandaríkja-
menn senda fulltrúa á minningar-
athöfnina.
Japönsk stjórnvöld og eftirlif-
endur árásarinnar hafa fagnað
þessari ákvörðun en margir eft-
irlifendanna segjast þó enn bíða
eftir því að Bandaríkjamenn biðj-
ist afsökunar á verknaðinum.
John Roos, sendiherra Banda-
ríkjanna í Japan, mun leiða sendi-
nefndina en við athöfnina verða
fulltrúar frá 75 löndum auk Ban
Ki-moon, aðalritara Sameinuðu
þjóðanna.
Kjarnorkuárásin á Hírósíma var
gerð hinn 6. ágúst 1945 og kostaði
eins og áður sagði 140.000 manns
lífið. Þremur dögum seinna var
annarri kjarnorkusprengju varp-
að á borgina Nagasakí og létust
80.000 manns í kjölfar þeirrar
árásar. Hinn 15. ágúst 1945 lauk
svo seinni heimsstyrjöldinni
þegar Japanar gáfust formlega
upp.
Kjarnorkuveldin Frakkland
og Bretland munu einnig senda
fulltrúa á minningarathöfnina í
fyrsta skipti. - mþl
Tímamót í minningarathöfnum vegna kjarnorkuárása í Japan fyrir 65 árum:
Bandaríkjamenn minnast í Hírósíma
KJARNORKUSPRENGJUHVELFINGIN
Gestir við minningarathöfnina munu
hittast við þessa hvelfingu sem er hluti
friðargarðsins í Hírósíma.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR Svaraði
spurningum í Finnlandi um orkumál á
Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
Finnst þér að skera ætti niður
rekstrarkostnað Orkuveitunnar?
JÁ 95%
NEI 5%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Finnst þér að auglýsa ætti stöðu
umboðsmanns skuldara að
nýju?
Segðu skoðun þína á visir.is.
KJÖRKASSINN