Fréttablaðið - 05.08.2010, Page 12

Fréttablaðið - 05.08.2010, Page 12
12 5. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR Undanfarið hefur bæði harka leg stefna Frakklands- forseta gagnvart útlend- ingum og framganga lög- reglunnar í myndbandi á YouTube vakið athygli og óþægilegar spurningar. Nicolas Sarkozy Frakklandsfor- seti hefur lengi haft þá stefnu að útrýma þurfi öllu ofbeldi úr Frakklandi. Í því skyni hefur hann viljað beita lögreglunni af fullri hörku. Einnig hefur hann viljað hreinsa til í hverfum fátækra útlendinga, ganga hart fram gegn ólöglegum innflytjendum og sýna ungmenn- um, sem tekið hafa þátt í óeirðum, enga miskunn. Undanfarið hefur hann verið óvenju ómyrkur í máli í þessum efnum. Svipting ríkisborgararéttar Hann hefur meðal annars hótað því að svipta menn af erlendum upp- runa ríkisborgararétti ef þeir hafa gerst sekir um að hóta lögreglu- manni eða embættismanni bana, auk þess sem hann vill gera ung- mennum af erlendum uppruna erf- iðara fyrir að hljóta ríkisborgara- rétt þegar þau hafa aldur til hafi þau gerst sek um ofbeldi. Þetta sagði hann í borginni Gren- oble í síðustu viku, en þar höfðu nokkrum dögum fyrr brotist út hörð átök milli lögreglu og mótmæl- enda. Þessar óeirðir hófust í kjölfar þess að ungur maður féll fyrir skot- um lögreglunnar. Maðurinn var á flótta grunaður um þjófnað. Maðurinn var í för með róma- fólki, sígaunum, sem dvöldu í borg- inni, sem brugðust sumir hverj- ir illa við og réðust meðal annars á lögreglustöð þar í bænum. Skot- ið var á lögregluna og kveikt var í bifreiðum. Sígaunar reknir úr landi Í framhaldi af þessu skipaði Sar- kozy svo fyrir að uppræta skuli allar búðir sígauna, sem eru ólög- legir innflytjendur í landinu. Hann sagði búðirnar vera gróðrarstíu mansals, vændis og kynferðisbrota gegn börnum. Ummælin hafa vakið óhug og rifjuð hefur verið upp grimmileg meðferð þýskra og franskra nasista á sígaunum í Frakklandi á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar. Brice Hortefeux, innanríkisráð- herra í stjórn Sarkozys, segir þess- um aðgerðum þó alls ekki ætlað að stimpla neinn ákveðinn hóp fólks, heldur sé markmiðið einungis „að refsa fyrir lögbrot“. Myndband á YouTube Myndband á vefsíðunni YouTube hefur síðan farið víða undanfarna daga og málað enn dekkri litum þessa hörkulegu ímynd franskra stjórnvalda. Þar sjást lögreglumenn í París ganga hart fram gegn mót- mælendum af erlendum uppruna. Meðal annars sést ófrísk kona öskra hátt meðan lögreglumenn draga hana burt, og önnur kona er dregin eftir jörðinni þótt hún sé með ungbarn á bakinu. Myndbandið var tekið 21. júlí þegar lögreglan leysti upp 150 manna mótmælafund í La Courneu- ve, einu úthverfa Parísar. Mótmæl- endurnir voru flestir konur frá Afr- íku, sem voru að mótmæla því að hafa verið reknar úr húsi sem þær höfðu lagt undir sig með ólögleg- um hætti. Óeirðirnar 2005 Óeirðir hafa verið tíðar í hverfum fátækra útlendinga í Frakklandi undanfarin ár. Atburðirnir í Gren- oble í síðasta mánuði þykja minna mjög á óeirðirnar í úthverfum Par- ísar haustið 2005, sem einnig hóf- ust eftir að lögreglan varð ungu fólki að bana, en þá var Sarkozy innanríkisráðherra í ríkisstjórn Dominiques de Villepin. Sarkozy var þá sakaður um að hafa beinlínis kynt undir óeirðun- um með því að kalla ungmennin, sem tóku þátt í þeim, úrþvætti og hrotta. Hann tók einnig svo til orða að hann ætlaði sér að hreinsa út úr hverfinu með háþrýstidælum eins og þeim sem notaðar eru til að hreinsa málningu af húsveggjum. Í síðustu viku sá de Villep- in, fyrrverandi forseti landsins, ástæðu til að ráðleggja Sarkozy, fyrrverandi innanríkisráðherra sínum, að gæta orða sinna í þess- um málum. Gagnrýni frá vinstri og hægri Vinstrimenn hafa alla tíð gagn- rýnt Sarkozy harðlega fyrir stefnu hans og yfirlýsingagleði í innflytj- endamálum og lögreglumálum, og hefur gagnrýni þeirra færst held- ur betur í aukana í kjölfar þessara síðustu atburða. Sumir hægrimenn hafa einnig haft uppi gagnrýni, þar á meðal de Villepin og Jacques Chirac, sem einnig er fyrrverandi forseti. Að þessu sinni er Sarkozy meðal annars sakaður um að fara í hart gegn útlendingum í þeim tilgangi að draga athyglina frá hneykslis- málum innan stjórnarinnar, auk þess sem hann vonist til að bæta stöðu stjórnar sinnar í skoðana- könnunum með þessum aðferð- um. www.s24.isSæktu um... Sími 533 2424 6,35% innlánsvextir* Allt að Óbundinn og óverðtryggður sparnaðarreikningur *M.v. vaxtatöflu S24 01.07.2010 Sarkozy gengur hart fram gegn útlendingum ÓLÖGLEGAR BÚÐIR ÓLÖGLEGRA INNFLYTJENDA Sarkozy tilkynnti í síðustu viku að þessar innflytjendabúðir verði rýmdar og íbúarnir reknir úr landi. NORDICPHOTOS/AFP NICOLAS SARKOZY FORSETI OG BRICE HORTEFEUX INNANRÍKISRÁÐHERRA Sarkozy hótar að svipta innflytjendur ríkisborgararétti hafi þeir hótað lögreglumanni bana. NORDICPHOTOS/AFP FRÉTTASKÝRING: Hver er stefna Frakklandsforseta í innflytjendamálum? Guðsteinn Bjarnason gudsteinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.