Fréttablaðið - 05.08.2010, Side 16
16 5. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
FRÉTTAVIÐTAL: Hvað segir iðnaðarráðherra um Magma Energy og orkugeirann hér á landi?
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra
segir umræðuna um Magma hafa
snúist um of um einstaka kaupend-
ur í stað stóru spurninganna. Setja
þurfi ramma um orkumál Íslend-
inga til framtíðar. Hún óttast ekki
einkafjármagn í orkuframleiðslu.
Mikill styr hefur staðið um kaup Magma
Energy á HS orku og hefur ríkisstjórnin
skipað starfshóp til að skoða einkavæð-
ingu síðarnefnda fyrirtækisins. Henni er
líka ætlað að leggja fram tillögur um fram-
tíðartilhögun orkumála á Íslandi.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir
að umræðan varðandi Magma hafi farið um
víðan völl í stað þess að einblína á stóru
álitamálin.
„Mér finnst skorta að menn séu að ræða
stóru álitamálin í þessu. Mér finnst menn
hafa einblínt um of á þetta eina fyrirtæki.
Þó að þetta fyrirtæki hætti við kaupin, ef
menn fara þá leið, þá leysir það ekki kjarn-
ann í því sem menn hafa verið að gagnrýna,
sem er sá að þessi hlutur var einkavæddur
og hann er í höndum einkaaðila. Þá þurfa
menn að svara spurningunni: og hvað svo?
Þá er auðvitað kjarninn í því að menn
viti hvaða kostnað hinar mismunandi leið-
ir muni hafa í för með sér fyrir ríkið og
það er eitt af því sem rannsóknin mun bein-
ast að.“
Katrín segist telja að ríkið ætti að tryggja
sér forkaupsrétt á hlutnum, sem hægt væri
að kaupa þegar betur áraði. Forkaupsrétt er
hins vegar ekki hægt að nýta nema fyrir-
tækið vilji selja og þeir gætu því átt hlutinn
um langa hríð, ekki satt?
„Jú, en þá væru þeir líka hér innanlands
með fjármunina á meðan og með þessu
væri komið í veg fyrir brask með hluti í
fyrirtækinu.“
Einkafjármagn í framleiðslu
„Ég hef áður sagt að ég er þeirrar skoðunar
að ég er ekki hrædd við aðkomu einkaaðila
að framleiðsluhlutanum, af því að búið er
að tryggja eignarhald auðlindanna hjá opin-
berum aðilum.“
Katrín segir mikilvægt að stytta leigu-
tíma auðlindanna í lögum, takmarka verði
þann tíma sem sveitarfélögin geti leigt auð-
lindirnar frá sér.
„Við þurfum líka að horfast í augu við
það að opinber orkufyrirtæki eru að taka
gríðarlega fjármuni að láni hjá erlendum
lánadrottnum og ég veit ekki til þess að þar
séu neinar góðgerðarstofnanir á ferð. Ég
velti því fyrir mér hvort ekki sé betra að fá
fjárfestinguna inn, til dæmis með verkefna-
fjármögnun til skemmri tíma með opinber-
um aðilum.
Þessa grundvallarumræðu þurfum við að
fara út í en hætta að hringsnúast í kring-
um eina afleiðingu þessarar einkavæðing-
ar frá 2007.“
Nú þekkjast ekki dæmi þess að raforku-
verð hafi lækkað í kjölfar einkavæðingar
og sumir vilja hreinlega leysa hlutina til
ríkisins. Hvað finnst þér?
„Mér finnst þetta vera mjög mikilvæg
umræða sem við verðum að fara í gegnum
og við þurfum að fara í gegnum þetta frá
a-ö. Við erum ekki að tala um einkavæð-
ingu á orkugeiranum, við erum að tala um
aðkomu einkaaðila inn í framleiðsluna, sem
er áhættusamasti hlutinn og þá ekki síst í
jarðvarmanum. Þar komi inn fjármagn sem
fjárfesting inn í framleiðsluhlutann, síðan
er opinbert eignarhald á dreifiveitunum og
auðlindunum sjálfum.“
En það hefur einnig áhrif á verðmynd-
un.
„Já klárlega, en ef við horfum til dæmis
á HS orku, þá er þar um 6-7% af raforku-
framleiðslu landsins. Aðrir raforkufram-
leiðendur eru í höndum opinberra aðila,
ríkisins og Orkuveitu Reykjavíkur. Þarna
ríkir samkeppni á markaði og almenning-
ur getur þá einfaldlega flutt sig með einu
símtali á milli orkufyrirtækja.“
Ekki frekari einkavæðing
En er eitthvað sem segir að önnur fyrirtæki
fari ekki sömu leið og HS orka?
„Já. Það sem stendur í vegi fyrir því er að
það er skýr stefna okkar að ríkið er ekki að
fara að selja sín fyrirtæki, bara engan veg-
inn. Það hefur verið stefna þessarar ríkis-
stjórnar frá upphafi og hefur verið stefna
Samfylkingarinnar líka að við erum ekki að
fara að selja okkar fyrirtæki.
Svo má ekki gleyma því heldur að þegar
lögunum var breytt 2008 var það gert vegna
þess að búið var að einkavæða hluta af HS
orku með auðlindum og dreifiveitu og öllu
saman innanborðs. Þannig að sú aðgerð
þýddi að auðlindirnar voru sóttar af opin-
berum aðilum inn í fyrirtæki þannig að nú
er eingöngu verið að ræða aðkomu opinberra
Álitamál orkugeirans eru enn óleyst
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
Katrín segir mjög spennandi hluti fram
undan í Þingeyjarsýslum í tengslum við
orkuöflun. „Þar er þessi verkefnastjórn
búin að vera að vinna hörðum höndum
og menn eru að prófa nýja aðferðar-
fræði þar, ná mönnum þar saman sem
eiga auðlindirnar og sveitarfélögun-
um þarna á svæðinu og reyna að ná
samstöðu um hvað þarna gerist. Þarna
munu einhverjar niðurstöður koma í
haust. Landsvirkjun er farin að líta á
þetta svæði með auknum þunga.“
Til hvaða iðnaðar er þá horft?
„Ég vel ekki þann iðnað. Ég ætla ekki
að úttala mig um það, það verður gert
í samráði við sveitarfélögin á svæðinu
og það verður líka gert á viðskiptaleg-
um forsendum. Ríkið fer ekki og sækir fyrirtæki, ríkið þarf að skapa umhverfi og við erum að
gera það fyrir norðan með því að skipa þennan vinnuhóp og setja þetta í þennan feril og það
er það sem við getum gert. Síðan er landsvirkjun auðvitað búin að setja mikið fé í rannsóknir í
svæðinu og vill auðvitað fara að koma þeirri orku í vinnu í þágu atvinnuuppbyggingar þar.“
Ríkið sækir ekki fyrirtæki
ÞEISTAREYKIR Miklar rannsóknir hafa átt sér stað á
jarðhitasvæðinu að Þeistareykjum. Nú er unnið að því að
koma orkunni þar í notkun. MYND/VÖLUNDUR
aðila inn í framleiðsluhlutann sjálfan. Það
finnst mér vera algjört lykilatriði.“
Katrín ítrekar að umræðan í sumar hafi
ekki snúist um stóru álitamálin, heldur um
mögulega vonda eða góða kaupendur að hlut
sem þegar var einkavæddur. „Við eigum að
vera í stóru spurningunum og þetta atriði
finnst mér ekki skipta það miklu máli. Ég
ætla ekki að segja til um hvort staðan eins
og hún er núna, sú óvissa sem verið hefur
um hlutinn og þar með eignarhald í vetur, sé
eitthvað betri. Ég er ekki viss um að gagn-
rýnendur þessara einstöku kaupa séu heldur
á þeirri skoðun. Þess vegna finnst mér vanta
umræðu um það.“
Auðlindirnar öruggar
Munt þú styðja það, verði það niðurstaða
nefndarinnar, að leysa til sín hluti í HS
orku?
„Ég styð allar góðar niðurstöður í því
efni. Það eina sem ég hef að leiðarljósi er
að íslenska þjóðin fái sem mest verðmæti
út úr okkar auðlindum og við sköpum sem
flest störf fyrir þessi verðmæti. Mér finnst
að umræðan eigi að vera á þeim nótum. Þar
verðum við að fara fordómalaust inn í þetta
og átta okkur á því að við erum gerendur af
því að við erum eigendur þessara auðlinda og
þar með stjórnum við atburðarásinni.“
Sumir hafa sagt að 65 ára nýtingarrétt-
ur að jarðorkuauðlind jafngildi eignarrétti,
hægt sé að ganga nærri auðlindinni á þeim
tíma.
„Já, þú gætir það tæknilega, en þú getur
það ekki vegna laga og reglna í landinu sem
um þetta gilda. Það er alveg skýrt að ef menn
ofnýta auðlindir, til dæmis jarðvarmaauð-
lindir, þá gerir Orkustofnun athugasemdir
við það og síðan eru sendar áminningar. Ráð-
herra getur í kjölfarið afturkallað virkjana-
leyfið. Það er því eftirlit með nýtingunni og
ráðherra hefur heimild til að grípa inn í.“
Katrín segir líka litla hættu á að ætlunin
sé að fullnýta auðlindina á skömmum tíma.
Auk laga tryggi viðskiptasjónarmið það.
„Það væri beinlínis óskynsamlegt fyrir þá
sem nýta orkuna, vegna þess að þeir hljóta að
vilja gera samninga til lengri tíma. Kaupend-
ur orkunnar hljóta að gera athugasemdir ef
eitthvað óöryggi er um afhendingu orkunnar.
Það eru því tvær hliðar á því líka.“
En hvað er skynsamlegt og eðlilegt að
leigja auðlindirnar lengi?
„Mér finnst að við ættum að horfa til 20 til
30 ára í jarðvarma og lengri tíma í vatnsfall-
inu, allt upp í 40 ár. Maður tengir þetta við
afskriftartíma á virkjununum sjálfum.“
Áhugi erlendra fjárfesta
Mikið hefur verið rætt um að laða erlenda
fjárfesta hingað til lands, hvernig gengur sú
vinna?
„Það hafa mjög margir verið að skoða
okkur og mjög lengi og enn eru þeir að skoða
ísland sem voru hérna fyrir hrun, minni
starfsemi eins og gagnaver og fleira slíkt.
En ég get ekki lofað að handan hornsins sé
einhver stór slíkur fjárfestir, en hins vegar
eru margir minni að skoða ísland og margir
minni eru að koma hingað og hafa verið að
koma. Það má ekki gleyma þeim heldur.“
Katrín segist hafa mikla trú á smærri fjár-
festingum, um of sé einblínt á stórar fjár-
festingar í orkugeiranum. Nefna megi upp-
bygingu Becromal á Norðurlandi og mikla
uppbyggingu í tölvuiðnaði. Þá hafi orðið
hér til fyrirtæki í efitrvinnslu stórra kvik-
mynda.
„Þegar menn tala um erlenda fjárfestingu
þá erum við ekki endilega alltaf öll að tala
um sama hlutinn. Ég haf alltaf viljað líta á
málin í stærra samhengi heldur en bara ein-
staka stórframkvæmd, þannig að það verður
að segjast að við verðum einhvern veginn í
þessari umræðu að finna þennan sameigin-
lega flöt á því hvar umræðan á að byrja. Það
er töluvert um að vera og það eru enn aðilar
að skoða Ísland sem fjárfestingarkost og það
er bara gott og vel. Sömuleiðis eru Íslending-
ar líka farnir að sjá hag í því að jafnvel fara
að stækka sína starfsemi. Ég nefni fyrirtæki
á borð við Marorku og CCP og önnur svona
hugverkafyrirtæki og það er jákvætt.“
Hefur óvissa varðandi Magma einhver
áhrif á erlenda fjárfesta?
„Orkugeirinn, úti um allan heim, hefur allt-
af verið gríðarlega viðkvæmur fyrir einka-
fjármagni, þannig að erlendir fjárfestar eða
fjárfestar almennt, við eigum kannski ekki
alltaf að vera að gera greinarmun á erlendum
og innlendum, þeir vita þetta. Það sem er að
gerast innan orkugeirans á ekki að hafa nein
áhrif á það og ég hef ekki heyrt að svo sé.“
Katrín segir mikilvægt að bíða niðurstöðu
pólitíska starfshópsins. „Hann er gríðar-
lega mikilvægur. Því meiri upplýsingar sem
rannsóknarhópurinn dregur fram, því betra
fyrir umræðuna. Menn verða bara að bíða
eftir því.“
EFTIR RÍKISSTJÓRNARFUND Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir að ekki eigi að ræða Magma-málið út frá góðum eða slæmum kaupendum á hlut sem löngu
var einkavæddur. Nær sé að leggja línur um hvert Íslendingar stefni í orkumálum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON