Fréttablaðið - 05.08.2010, Side 29
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
HELENA CHRISTIANSEN verður verndari göngunnar „The
Worlds Greatest Catwalk“ sem fram fer á Strikinu í Kaupmanna-
höfn 14. ágúst. Þar munu 220 fyrirsætur ganga heila mílu niður
bleik skreytta götuna en viðburðurinn er hluti af tískuviku í borginni.
„Þetta eru buxur sem heita Hells
bell og ég keypti úti í Frakklandi.
Þær fara langt með að vera uppá-
haldsbuxurnar mínar. Þær eru
líka einstakar og ég held að þær
séu bara framleiddar í tíu eða
fimmtán eintökum,“ segir Theó-
dór Árnason, yfirkokkur á Hótel
Óðinsvéum, sem gengur um götur
á krómuðum Dior-skóm. „Bolur-
inn er úr sömu búð og buxurnar og
mér finnst hann virkilega töff.“
Theódór var kokkur úti í París
og London um tíma og segist hafa
verið duglegur að kaupa sér föt
þar. „Úti í London hafði ég tíma á
sunnudögum og mánudögum til að
skreppa í Selfridges og missa mig
í kaupum á Dior-skóm og Boss-
jökkum.“ Í París bjó frænka hans.
„Hún var í háskóla að læra hönn-
un þannig að hún og vinir hennar
höfðu sínar skoðanir á tísku. Þær
eru listamenn og hönnuðir.“
Þú virðist spá mikið í tísku, er
það rétt? „Já, alveg helling. Maður
kemur ekki til dyranna eins og
maður er klæddur,“ segir Theó-
dór glettinn en í fataskápum hans
má meðal annars finna buxur með
sebramynstri. „Það var gæi sem ég
sá úti í París sem var í leðurjakka
á hjólabretti og með dredda í níð-
þröngum sebrabuxum sem ég hélt
fyrst að væru sokkabuxur.“ Theó-
dór ákvað að leita að svipuðum
buxum í rokkbúð sem heitir April
77. „Ég leitaði þvílíkt að þeirri búð
en þegar þangað kom voru engar
sebrabuxur til,“ útskýrir hann
en buxurnar fann hann seinna á
Íslandi. martaf@frettabladid.is
Leitaði sebrabuxna lengi
Theódór Árnason gengur um götur Reykjavíkur og stórborga Evrópu á krómuðum Dior-skóm. Uppáhalds-
buxur hans eru frá París og gerðar í fáum eintökum en hann á talsvert mikið af fötum í fataskáp sínum.
Buxur Theódórs eru framleiddar í tíu til fimmtán eintökum og eru því einstakar að hans mati. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Verðhrun í stórum stöfum
Í minni stöfum minnst 60%
afsláttur VERÐ-
HRUN
MINNST 60% AFSLÁTTUR
Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is
F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0
O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
ÚTSALA
www.gabor.is
Sérverslun með
SUMAR ÚTSALA
Gerið gæða- og verðsamanburð
20-50%
AFSLÁTTUR
Lök, hlífðardýnur, sængurverasett,
heilsukoddar, viðhaldskoddar,
íslenskir PU leðurgaflar,
náttborð, útlitsgallaðar dýnur
og fleira.
6 mán
aða
vaxtal
ausar
greiðs
lur
SAGA Queen rúm, nú aðeins 129.900
ÞÓR Queen rúm, nú aðeins 149.900
Ný se
nding SAGA OG ÞÓR
Hágæða heilsudýnur
VALHÖLL/FREYJA
Góð rúm á frábæru verði
Ný sending
Queen rúm, nú aðeins kr. 99.900Queen rúm nú aðeins kr. 179.900