Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.08.2010, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 05.08.2010, Qupperneq 36
 5. ÁGÚST 2010 FIMMTUDAGUR4 ● bifhjól Nítró á Bíldshöfða er með úrval af bifhjólum í ólíkum stærðum og verðflokkum. 50 cubica vespurnar eru vinsælar að sögn Ragnars Inga Stefáns- sonar verslunarstjóra, sem á þar við lítil bifhjól með palli fyrir fæturna. „Við seljum allt sem er á tveimur hjólum og knúið mótorum,“ segir Ragnar Ingi Stefánsson, verslunar- stjóri í Nítró á Bíldshöfða, glaðlega þegar hann er spurður hvort hann selji vespur. Hann hefur áratuga reynslu af mótorhjólum, úr keppn- um, verkstæðisreksti og verslun- arstjórn og telur akstur á vespum frábæran ferðamáta á styttri vega- lengdum innanbæjar ef ekki þurfi að flytja mikið með sér. „Svo eru þær bæði ódýrar í innkaupum og rekstri,“ segir hann og upplýsir að í Nítró fáist slík farartæki á verði frá 195.000 krónum. Nítró hefur selt rafmagnsves- pur og bensínknúnar, bæði með fjórgengis-og tvígengisvélum, en þessa stundina eru rafmagnsves- purnar uppseldar að sögn Ragn- ars Inga. Hann segir vespur hafa átt vaxandi vinsældum að fagna á síðustu árum hér á landi og þær algengustu vera 50 cubica hjól. „Það eru til alveg upp í 600 cubi- ca vespur en þá eru þær komnar í mótorhjólastærðir og flestir kjósa þá frekar að vera á mótorhjól- um,“ tekur hann fram. Vespurn- ar í Nítró eru til í mörgum litum. Ragnar Ingi segir strákana helst vilja bláar, svartar eða gráar en stelpurnar velji frekar skærari lit- ina, svo sem rauðar eða gular, ann- ars sé ekkert algilt í þeim efnum. Nítró selur líka hjálma, box, tösk- ur og fatnað sem hentar. „Margir láta nægja að setja á sig hjálm og kannski hanska áður en þeir setj- ast upp á vespur og eru svo í skikk- anlega góðum fatnaði en aðrir fara í goretexgallann og mótor- hjólaskóna og allan pakkann,“ segir Ragnar Ingi. „Það er líka misjafnt hversu snemma á vorin menn byrja að hjóla og hvað þeir eru lengi að á haustin. Sumir eru á vespum allan veturinn en aðrir leggja þeim á haustin og taka þær út á vorin. En eins og veturnir hafa verið hjá okkur að undanförnu er hægt að vera á vespum hér allan veturinn. Það er oft mjög fínt veður til að hjóla í janúar.“ Spurður um gerðirnar sem Nítró selur af vespum svarar Ragnar Ingi: „Við höfum verið með Vento gegnum tíðina sem eru amerískar en framleiddar í Kína. Nú erum við að selja mest af kínverskri tegund sem heitir Znen og er með sama boddýi og í svipuðum gæða- flokki og Ventó en er með aðeins öflugri rafgeymi og uppfærð. Við erum líka með ítalskt merki sem heitir Beta, þær vespur eru orðnar fullkomnari og flottari en þær kín- versku og líka alveg þrisvar sinn- um dýrari. Í rauninni erum við með alla flóruna þannig að mögu- leikarnir eru margir,“ segir Ragn- ar Ingi og tekur fram að Nítró sé einnig með tólf útibú í N1 búðum á landsbyggðinni þannig að fyrir- tækið bjóði upp á þjónustu um allt land. Lítil bifhjól njóta aukinna vinsælda Ragnar Ingi telur akstur á vespum frábæran ferðamáta á styttri vegalengdum innanbæjar og kveðst eiga þar við létt bifhjól. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Söluvörur í Nítró eru flestar á tveimur hjólum og knúnar mótorum. Það eru ekki allir sem keyra vespurnar sínar allt árið um kring og sumir sem aðeins nota þær yfir hásumarið og þar af leiðandi geta þær verið látnar standa langtímum saman. Þegar hugað er að vetrar- eða langtímageymslu á vespu þá gilda sömu reglur eins og um mótorhjól og mörg vélknúin ökutæki. Það er ekki hollt fyrir vespur að standa lengi óhreyfðar og kannski best að taka þær og „viðra“ nokkrum sinnum yfir vet- urinn. Best er að geyma vespuna í upphituðu hús- næði til að hindra tæringu. Hér fylgja nokkur góð ráð: ■ Þrífa farartækið vel og jafnvel bóna. ■ Fylla tankinn af bensíni og bæta smá ísvara út í (ísvarinn hindrar vatnsdropamyndun í bensíninu). ■ Mjög gott er að smyrja bæði vél, barka og þá hluti sem smyrja þarf. ■ Skipta um olíu á mótor ef um fjórgengisvél er að ræða. ■ Það má hella nokkrum dropum af olíu inn í gegnum kertagatið og snúa vélinni til að smyrja stimpil og sveifarás, sérstaklega ef geyma á ves- puna mjög lengi. ■ Athuga ástand rafgeymis og taka úr sambandi, einnig er hægt að fá hleðslutæki með sérstakri hleðslustýringu sem eru tengd geyminum og halda honum við eins lengi og þarf. ■ Gott er að setja vespuna á miðjustand ef slíkur er til staðar til að minka álag á dekkjum sem geta afmyndast aðeins ef þau standa lengi í sömu stöðu. Ef þessum ráðum er fylgt kemur vespan mun hressari undan vetri en ella. Heilræði Ragnars fyrir veturinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.