Fréttablaðið - 05.08.2010, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 05.08.2010, Blaðsíða 54
38 5. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR bio@frettabladid.is > BRANDARAKARL Leikarinn Mark Wahlberg hafði gaman af því að leika með gríni- stunum Will Ferrell og Steve Coog- an í nýjustu mynd sinni The Other Guys. Wahlberg, sem er ekki þekktast- ur fyrir grínleik, líkaði vel að vera í því hlutverki en við- urkennir að hafa verið óöruggur til að byrja með að vera með brandara- körlum á hvíta tjaldinu. Leikarinn Nicolas Cage er mættur aftur á hvíta tjald- ið og í þetta sinn í gervi galdramanns. Myndin The Sorcerer´s Apprentice er ævintýramynd sem er stút- full af tæknibrellum. Mynd- in er frá sama leikstjóra og gerði National Treasure myndirnar og var frumsýnd hér á landi í gær. Kvikmyndin fjallar um seiðkarlinn Balthazar Blake sem vinnur við að halda kröftum New York borg- ar góðum en þarf að berjast um völdin yfir borginni við erkióvin sinn, Maxim Horvath. Galdrakarl- inn hefur leitað lengi að eftirmanni sínum og röð tilviljana gerir það að verkum að hinn ósköp venjulegi, en svolítið tregi táningur Dave Stutler verður fyrir valinu. Á meðan Stut- ler er að læra galdralistina, sem gengur svona upp og niður, þurfa þeir tveir að sameina krafta sína til ná fram sigri þess góða á hinu illa í borginni. Sem fyrr segir er það stórleikar- inn Nicolas Cage sem leikur aðal- hlutverkið, galdrakarlinn Balthazar Blake, og er hann varla þekkjanleg- ur í hlutverkinu með sítt grásprengt hár og í leðurkápu. Leikstjóri mynd- arinnar Jon Turtletaub hefur áður leikstýrt Cage í National Treasure myndunum tveimur en kappinn er með fjársjóðsleitarmynd númer þrjú í bígerð. Leikarinn Jay Baru- chel leikur lærlinginn sjálfann og Alfred Molina er óvinurinn í mynd- inni. Einnig bregður ítölsku þokkad- ísinni Monicu Bellucci fyrir. The Sorcerer´s Apprentice hefur ekki fengið neitt sérstaka dóma hjá fjölmiðlum í Bandaríkjunum. Tímaritið Rolling Stone gaf henni falleinkun og eina stjörnu. Gagn- rýnandinn segir meðal annars að lélegar tæknibrellur yfirgnæfi frammistöðu leikaranna. Blaða- maður New York Times er þó örlít- ið bjartari í máli og segir myndina vera meðalævintýramynd sem sé alveg þess virði að sjá. alfrun@frettabladid.is Lærlingur galdrakarlsins HIÐ GÓÐA Á MÓTI HINU ILLA Nicolas Cage bregður sér í líki seiðkarls sem ræður til sín lærling í myndinni The Sorcerer‘s App- rentice. Það eru margir sem kannast við leikarann Jay Baruchel en ekki margir sem þekkja kappann. Baruchel er svokallaður konungur aukahlutverkanna en hann hefur leikið í mörg- um þekktum myndum á borð við Knocked, Million dollar baby, Almost Famous og Tropic Thunder. Baruchel leikur lærlinginn sjálfan, Dave Stutler, í myndinni. Þessi kan- adíski leikari er 28 ára gamall og hóf feril sinn 14 ára gamall í sjónvarpi. Upp á síðkastið hefur hann verið í kastljósinu vegna þátttöku sinnar í auglýsingaherferð Adidas íþróttavörurisans fyrir heimsmeistaramótið í knattspyrnu 2010. GRÍNARINN GÓÐI Leikarinn Michael Cera leitaði á náðir Simpson teiknimyndaserí- unnar fyrir hlutverk sitt í mynd- inni Scott Pilgrim vs.the world. Cera, sem leikur einstakan karakt- er í myndinni, segist hafa leitað sér aulainnblásturs til Hómers Simp- son. „Hómer Simpson er frábær. Svona týpa sem segir nákvæm- lega það sem hann er að hugsa og er sama um allt annað fólk í kring- um sig. Elskar kleinuhringi og er svona erkitýpa í einu og öllu,“ segir Cera í viðtali við Hollywood News. Leikarinn ungi skaust upp á stjörnuhimininn fyrir hlutverk sitt í myndinni Juno og hefur verið iðinn við kolann síðan. Kvikmyndin fjallar um strák, Scott Pilgrim, sem verður ástfanginn og þarf að sigrast á öllum fyrrverandi kærustum stúlk- unnar áður en hann getur nálg- ast hana. Mynd- in verður frum- sýnd hér á landi í lok ágúst. LEIKUR AULA Í nýjustu mynd sinni leikur Michael Cera aula og sótti hann innblástur til Hóm- ers Simpson við undirbún- ing sinn fyrir hlutverkið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY ERKITÝPA Hómer Simpson: Elskar kleinuhringi og er sama um annað fólk. Sótti innblástur til Hómers Önnur frumsýning vikunnar er á kvik- myndinni 22 Bullets eða Ĺ immortel á frummálinu og skartar franska leikar- anum Jean Reno í aðalhlutverki. Mynd- in fjallar um Charly Mateï sem hefur snúið baki við lífi sínu sem útlagi úr hinu venjulega samfélagi og lifir nú hamingjusömu lífi með konu sinni og tveimur börnum. Þegar Mateï dag einn lifir á ótrúlegan hátt af 22 byssuskot í líkamann hefst mikil leit að byssu- manninum áður en hann legggur til atlögu á ný. Jean Reno er þekkt- ur leikari og hefur leik- ið í Hollywoodmyndum á borð við Pink Panther 1 og 2 og Da Vinci Code. Reno hefur ávallt verið hliðhollur leikstjóranum Luc Besson en þeir hafa gert tugi mynda saman, þar sem Reno hefur leikið, framleitt eða á einhvern hátt komið að tökum. Reno lék einmitt í fyrstu mynd Besson Ĺ avant dernier og hafa þeir verið miklir vinir síðan. Kvikmyndinni 22 Bullets er leik- stýrt af franska leikstjóranum Richard Berry en þess má geta að hann skrifaði einnig handritið og lék eitt hlutverk í myndinni. Reno lifir af skotbardaga í 22 Bullets 22 SKOT Franski leikarinn Jean Reno leikur gamlan leigumorðingja í myndinni 22 Bullets. Teiknimyndasagan Toy Story 3 er í efsta sæti yfir aðsóknarmestu kvik- myndir í Bretlandi. Frumsýning vikunnar, Karate Kid, náði ekki að velta Toy Story úr sessi þrátt fyrir að hafa toppað listana vestanhafs og situr hún í öðru sæti listans. Stórmynd sumarsins, Inception, féll um tvö sæti í vikunni, frá öðru niður í það fjórða. Myndin, sem skartar Leonardo DiCaprio í aðal- hlutverki, hefur fengið gríðarlega góða dóma úti um allan heim en nær þó ekki að halda sér á toppn- um. Kvikmyndin A team er í þriðja sæti listans og teiknimyndin Shrek í því fimmta. Þess má geta að Leikfangasag- an er einnig í fyrsta sæti íslenska listans. Á toppnum VINSÆLIR Félagarnir í Toy Story eru vin- sælli en Leonardo DiCaprio í Bretlandi. Leikkonan og Óskarsverðlauna- hafinn Sandra Bullock skýtur öðrum leikkonum í Hollywood ref fyrir rass og er best launaða leik- konan samkvæmt nýjum lista For- bes-tímaritsins. Bullock græddi um 56 milljónir dollara, eða tæpa sjö milljarða íslenkra króna, á síð- asta ári og er því ekki skrýtið að hún tróni á toppi listans. Það má því segja að leikkon- unni vegni vel þó svo að einkalíf- ið gangi brösuglega en hún skildi nýverið við eiginmann sinn, Jesse James. Bullock best launaða leikkonan í Hollywood SANDRA BULLOCK Getur brosað breitt eftir að hafa mokað inn sjö milljörðum á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Georg Erlingsson Merritt – „forréttindi að vera samkynhneigður á Íslandi“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.