Fréttablaðið - 05.08.2010, Qupperneq 62
46 5. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
FÓTBOLTI Fimm leikir eru á dagskrá
Pepsi-deildar karla í kvöld en þar
ber hæst viðureign ÍBV og FH í
Vestmannaeyjum. Með sigri getur
Fimleikafélagið stimplað sig inn í
titilbaráttuna af krafti en heima-
menn hyggjast endurtaka leikinn
frá fyrri umferðinni þegar þeir
sóttu þrjú stig í Hafnarfjörðinn.
„Það er ekki annað hægt en að
lítast vel á þetta miðað við hvernig
sumarið hefur verið,“ segir Albert
Sævarsson, markvörður Eyja-
manna, sem viðurkennir að árang-
ur ÍBV í sumar sé betri en hann
bjóst við. „Verð ég að segja satt?
Ég skal viðurkenna að þetta er
alveg fram úr björtustu vonum.“
Eyjamenn voru á toppi deildar-
innar yfir þjóðhátíð í Eyjum. „Það
er alltaf gaman á þjóðhátíð og
menn skemmtu sér mjög vel í ár.
Fyrir tímabilið var gefið út að við
ætluðum okkur að vera í toppbar-
áttu enda er stefnan alltaf sett á að
gera betur en árið á undan. Sjálfs-
traustið er mikið,“ segir Albert
sem hefur af mörgum verið tal-
inn besti markvörður deildarinn-
ar í sumar.
„Þetta er samspil alls liðsins,
allt liðið hefur verið frábært. Ég
hef líka notið góðs af því að hafa
sterka vörn fyrir framan mig.
Allir í varnarlínunni hafa staðið
sig mjög vel.“
Eiður Aron Sigurbjörnsson og
James Hurst hafa kannski feng-
ið meiri athygli en þeir Rasmus
Christiansen og Matt Garner, sem
Albert segir ekki hafa verið síður
góða. ÍBV hefur aðeins fengið á sig
tíu mörk í deildinni í sumar.
Í kvöld mætast einnig tvö neðstu
lið deildarinnar, nýliðarnir í Hauk-
um og Selfossi. Bæði lið þurfa
nauðsynlega á sigri að halda í bar-
áttunni fyrir lífi sínu í deild þeirra
bestu. Grindavík, sem einnig tekur
þátt í fallbaráttunni, fær Fram í
heimsókn, KR-ingar mæta Stjörn-
unni og í Árbænum leika Fylkir og
Keflavík.
- egm
Albert Sævarsson og félagar í ÍBV taka á móti FH í stórleik í Pepsi-deildinni í Eyjum í kvöld:
Menn skemmtu sér mjög vel á þjóðhátíð
ALBERT SÆVARSSON Hefur átt frábært tímabil í marki Eyjamanna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI „Ég tel möguleika okkar í
þessum riðli mjög góða. Við erum
á heimavelli og það hefur mikið
að segja,“ segir Jóhannes Karl
Sigursteinsson, þjálfari Breiða-
bliks. Liðið er að fara að keppa í
forkeppni Meistaradeildarinnar og
á fyrsta leik í kvöld kl. 18 á Kópa-
vogsvelli.
Auk Blikaliðsins eru það FCF
Juvisy Essonne frá Frakklandi,
FC Târgu Mure frá Rúmeníu og
Levadia Tallinn frá Eistlandi sem
skipa riðilinn. Síðastnefnda liðið
er mótherji Breiðabliks í kvöld en
allir leikirnir í riðlinum fara fram
hér á landi.
„Við rennum blint í sjóinn með
þetta eistneska lið og vitum í raun
ekkert um það. Fyrirfram er talið
að það sé slakast í riðlinum sam-
kvæmt styrkleikaröðun UEFA.
Það er mjög erfitt að afla upplýs-
inga um það. Kvennafótbolti virð-
ist ekki hátt skrifaður í landinu
og þar að auki kann ég ekki mjög
mikið í eistnesku,“ segir Jóhann-
es Karl.
„Við mætum með það að mark-
miði að sækja og skora mörk. Við
komum í þennan leik sem stærra
liðið og verðum að vera full sjálfs-
trausts.“
Á laugardaginn leikur íslenska
liðið við það franska og svo verður
rúmenska liðið mótherjinn í lokal-
eiknum á þriðjudaginn. „Franska
kvennadeildin er ein af þeim sterk-
ari í Evrópu svo það má búast við
hörkuleik á laugardaginn. Svo hlýt-
ur eitthvað að vera spunnið í þetta
rúmenska liðið þar sem það var
talið sterkast í þriðja styrkleika-
flokknum,“ segir Jóhannes sem er
mjög sáttur við að fá riðilinn hing-
að til lands.
„Við sóttum bara um að fá að
halda okkar riðil. Svona riðla-
keppni hefur aldrei farið fram hér
á landi og það hjálpaði okkur að fá
grænt ljós auk þess sem við feng-
um aðstoð frá KSÍ.“
Forkeppninni er skipt í sjö riðla
og kemst sigurvegari hvers riðils í
32-liða úrslitin ásamt þeim tveim-
ur liðum sem ná bestum árangri í
öðru sætinu. Í 32-liða úrslitunum
koma síðan fleiri lið inn í keppnina
en þar á meðal eru Íslandsmeist-
arar Vals.
„Þetta er kærkomið verkefni og
það er mikill spenningur í hópnum.
Við verðum mikið saman þessa
viku sem þessi riðill fer fram og
þetta brýtur skemmtilega upp
sumarið. Við hittumst tvisvar á
dag í þessari viku,“ segir Jóhann-
es sem segir sínar stelpur tilbún-
ar í slaginn.
„Greta Mjöll (Samúelsdóttir)
meiddist reyndar á æfingu og ég
á eftir að fá niðurstöðu varðandi
hana. Ég vonast þó til þess að þau
meiðsli séu aðeins lítilsháttar.“
elvargeir@frettabladid.is
Stefnan að sækja og skora
Kvennalið Breiðabliks hefur keppni í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.
Riðill Blikastúlkna spilar hér á landi og fara allir leikirnir fram á Kópavogsvelli
utan eins. „Heimavöllurinn hefur mikið að segja,“ segir þjálfari Breiðabliks.
BLIKASTELPUR Á ÆFINGU Í GÆR Breiðabliksliðið eyðir öllum tíma saman á meðan
Evrópukeppninni stendur alveg eins og þær væru staddar erlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI Shayla Fields og Inga
Muciniece spiluðu á sínum tíma
saman hjá North Carolina State
háskólanum í Bandaríkjunum en
næsta vetur eru þær báðar á leið-
inni til Íslands til að spila í Ice-
land Expres deild kvenna. Shayla
Fields hefur samið við Njarðvík
og Inga Muciniece mun spila með
Snæfelli.
Shayla Fields er 23 ára og 175
sem bakvörður frá Bandaríkjunum
sem útskrifaðist úr North Carolina
State háskólanum vorið 2009. Hún
reyndi fyrir sér hjá tyrkneska lið-
inu Ceyhan Belediyespor síðasta
vetur en komst ekki að þannig að
þetta verður hennar fyrsta alvöru
tímabil í Evrópu. Field skilaði
flottum tölum á lokaári sínu með
NC State þar sem hún var með 17,4
stig að meðaltali í leik.
Inga Muciniece er 24 ára og 196
sem miðherji frá Lettlandi sem
hefur verið við nám í Bandaríkj-
unum allt frá árinu 2005. Hún lék
síðast með BK Ventspils í heima-
landinu þar sem hún var með 11,0
stig og 13,8 fráköst að meðaltali 18
ára gömul. Hún var síðan í Barton-
skólanum áður en hún fór í North
Carolina State.
Þjálfararnir Sverrir Þór Sverrs-
son hjá Njarðvík og Ingi Þór Stein-
þórsson hjá Snæfelli eru ekki hætt-
ir því þeir eru að leita sér að öðrum
erlendum leikmanni til að styrkja
lið sína fyrir baráttuna í vetur.
Sverrir skimar eftir evrópsk-
um miðherja en Ingi er að skoða
bandaríska leikmenn. Snæfell og
Njarðvík eru bæði skipuð mjög
ungum leikmönnum en síðasta ár
háðu þau hörkukeppni um að kom-
ast í úrslitakeppnina. - óój
Lettneskur miðherji og bandarískur bakvörður hafa samið við Snæfell og Njarðvík í Iceland Express kvenna:
Skólasystur úr NC State spila á Íslandi í vetur
INGI ÞÓR STEINÞÓRSSPON Þjálfar áfram
karla- og kvennalið Snæfells en hann
kom báðum liðum í úrslitakeppnina á
síðasta tímabili. FRÉTTBLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Kvennalið Breiðabliks
fór alla leið í átta liða úrslitin
þegar liðið tók síðast þátt í Evr-
ópukeppni meistaraliða sumar-
ið 2006. Liðið vann þá undanrið-
ilinn í Austurríki með fullu húsi
stiga og komst síðan áfram upp
úr milliriðlinum sem fram fór í
Helsinki í Finnlandi.
Nokkrir leikmenn liðsins í dag
voru einnig með fyrir fjórum
árum og þar fór fremst Greta
Mjöll Samúelsdóttir sem skor-
aði fimm mörk í átta leikjum þar
á meðal tvö sigurmörk í milli-
riðlinum. Hlín Gunnlaugsdóttir,
Sandra Sif Magnúsdóttir, Guðrún
Erla Hilmarsdóttir og Fanndís
Friðriksdóttir léku einnig með í
þeirri keppni. - óój
Blikastelpur í Evrópu:
Fóru áfram fyr-
ir fjórum árum
GRETA MJÖLL Skoraði mikilvæg mörk í
síðustu Evrópukeppni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Allir sex leikirnir í
fjórða riðli í forkeppni Meistara-
deildar kvenna fara fram hér á
landi en í fyrsta sinn í sögu þess-
arar keppni er íslenskt lið í hlut-
verki gestgjafans.
Leikirnir fara fram í dag, á
laugardaginn og á þriðjudag og er
frítt á þá alla. - óój
Meistaradeild kvenna:
Frítt á leikina
FÓTBOLTI Rafa Benítez, þjálf-
ari Inter, var sallarólegur eftir
fyrsta tap liðsins undir hans
stjórn. Liðið beið lægri hlut gegn
gríska liðinu Panathinaikos í vin-
áttuleik í gær 3-2.
„Þetta hjálpar okkur bara að
vaxa sem lið. Við höfum verið á
fleygiferð og spilað marga leiki.
Við vissum að þessi vika yrði erf-
iðust á undirbúningstímabilinu,“
sagði Benítez.
Inter vann 3-0 sigur á
Manchester City um síðustu helgi
en liðið virkaði þungt í leiknum
í gær. „Við vitum að það verður
erfitt að endurtaka árangurinn
frá síðasta tímabili en við erum
að vinna að því að mæta eins til-
búnir til leiks og hægt er.“
Djibril Cisse skoraði tvö af
mörkum Panathinaikos í gær en
Samuel Eto’o og Coutinho fyrir
Evrópu- og Ítalíumeistarana. - egm
Æfingaleikur hjá Inter:
Benitez rólegur
þrátt fyrir tap
KÖRFUBOLTI Fyrsti alvöru leikur
Dwyane Wade, LeBron James og
Chris Bosh saman með Miami
Heat verður í Boston 26. októb-
er næstkomandi en NBA-deildin
hefur gefið út stærstu leiki kom-
andi tímabils.
Það þykir líka mikill heiður að
spila á jóladag og þá mun Miami-
liðið spila við NBA-meistarana
í Los Angeles Lakers en margir
búast við því að þessi tvö lið mæt-
ist í lokaúrslitunum næsta sumar.
Aðrir leikir á jóladag eru
Orlando-Boston, New York-
Chcago, Oklahoma City-Den-
ver og Golden State-Portland
en það er óskráð regla að aðeins
skemmtilegustu lið deildarinnar
fái að spila 25. desember. - óój
NBA-deildin á næsta tímabili:
Frumsýning
Miami í Boston
ÞRÍR GÓÐIR Dwyane Wade, LeBron
James og Chris Bosh. MYND/AP
FÓTBOLTI Chelsea tapaði í gær 2-
1 fyrir þýska liðinu Hamburger
SV í æfingaleik liðanna í Hamb-
urg. Þetta var þriðji tapleikur
Chelsea-liðsins í röð á undirbún-
ingstímabilinu en liðið hafði áður
tapað 1-2 fyrir Eintracht Frank-
furt á sunnudaginn og 1-3 fyrir
Ajax í síðustu viku.
Frank Lampard kom Chel-
sea í 1-0 í leiknum á 23. mín-
útu eftir sendingu frá Michael
Essien en Mladen Petric jafnaði
leikinn á 72. mínútu eftir varn-
armistök Yury Zhirkov. Það var
síðan 18 ára varamaður, Heung
Min Son, sem tryggði Hambur-
ger SV sigurinn þremur mínútum
fyrir leikslok. Næsti leikur Chel-
sea-liðsins er á móti Manchester
United um næstu helgi í leiknum
um góðgerðaskjöldinn. - óój
Æfingaleikir ensku liðanna:
Þriðji tapleikur
Chelsea í röð
ÓVÆNT INNKOMA Hinn 18 ára Heung
Min Son fagnar sigurmarki sínu á móti
Chelsea. MYND/NORDIC PHOTOS /GETTY