Fréttablaðið - 05.08.2010, Síða 64
48 5. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson lands-
liðsþjálfari hefur valið Eið Smára
Guðjohnsen í íslenska landsliðið á
nýjan leik en hann kynnti í fyrra-
dag landsliðshópinn sem mætir
Liechtenstein í æfingaleik á Laug-
ardalsvellinum í síðustu viku.
Ísland mætti Andorra í öðrum
æfingaleik í vor en þá var Eiður
Smári ekki valinn í liðið. Ólafur
sagði þá að hann væri ekki í nægi-
lega góðu formi.
„Allir þeir leikmenn sem eru í
hópnum eru í fínu formi og hafa
verið að æfa með sínum liðum –
líka Eiður Smári,“ sagði Ólafur.
„Auðvitað eru leikmenn í mismun-
andi leikæfingu en allir í standi til
að spila með landsliðinu.“
Eiður Smári er á mála hjá
franska liðinu AS Monaco en hefur
verið sagður á leið aftur í ensku
úrvalsdeildina. Það hefur hins
vegar enn ekki gengið í gegn og
því hefur hann verið við æfingar
í Frakklandi.
Ólafur segir að hópurinn sé
skipaður bestu leikmönnunum
sem völ var á að þessu sinni. „Já,
það má segja það. Ég valdi þá leik-
menn sem hafa verið að standa sig
best hér heima að mínum dómi en
það er gott að gefa þeim leikmönn-
um sem spila hér heima tækifæri
með landsliðinu á þessum árstíma,
þegar þeir eru upp á sitt besta.“
Af þeim leikmönnum sem spila
hér á landi eru fjórir í landslið-
inu nú – Gunnleifur Gunnleifsson
og Matthías Vilhjálmsson úr FH
og Blikarnir Arnór Sveinn Aðal-
steinnsson og Guðmundur Kristj-
ánsson.
„Mér finnst þeir allir hafa stað-
ið sig mjög vel í sumar. Ég var líka
með þá í leikjunum gegn Færeyj-
um og Mexíkó í vetur og þá stóðu
þeir sig afar vel,“ sagði Ólafur.
Það vakti einnig athygli að leik-
reyndasti miðvallarleikmaðurinn
í hópnum er Aron Einar Gunnars-
son með sautján leiki en hann er
enn gjaldgengur í U-21 landslið
Íslands.
„Ég gerði mér grein fyrir þessu
og að öllu jöfnu hefði ég sennilega
valið Brynjar Björn Gunnarsson
í liðið. En ég ákvað að taka frek-
ar þessa stráka. Ég veit hvar ég
hef Brynjar Björn en ég þarf að
sjá betur til þessara stráka sem
eru valdir nú,“ sagði Ólafur. „Svo
vil ég líka að bæði Aron og Ólaf-
ur Ingi [Skúlason] fái meiri leik-
reynslu með landsliðinu.“
Eins og áður hefur komið fram
hefur KSÍ gengið illa að finna and-
stæðinga að undanförnu en leikur-
inn gegn Liechtenstein verður sá
síðasti áður en undankeppni EM
2012 hefst í haust.
„Það var auðvitað ósk okkar að
fá sterkari andstæðinga en önnur
lið eru ekki að bíða í röð eftir því
að fá að spila við okkur. Andorra
og Liechtenstein eru litlar þjóð-
ir í knattspyrnuheiminum en það
erum við líka. Við verðum bara
að þiggja þá leiki sem okkur eru
boðnir,“ sagði Ólafur, sem ætlar þó
að reyna að nýta leikinn og tímann
með leikmönnum eins vel og kost-
ur er.
„Ég geri mér grein fyrir því
að þessi leikur verður allt öðru-
vísi en þegar við mætum Dönum
og Norðmönnum í september en
það þarf samt að nýta tímann vel
og gera það sem þarf að gera. Ég
hef ekki áhyggjur af því þó svo að
við höfum ekki verið að spila við
sterkari þjóðir enda höfum við
verið duglegir að nýta okkar leik-
daga síðan ég tók við sem lands-
liðsþjálfari.“
Ísland og Liechtenstein mættust
síðast í æfingaleik á La Manga í
fyrra og hafði þá Ísland betur með
tveimur mörkum gegn engu.
eirikur@frettabladid.is
Allir leikmenn í hópnum í fínu formi
Ólafur Jóhannesson valdi í fyrradag landsliðið sem mætir Liechtenstein í æfingaleik á Laugardalsvellinum í
næstu viku. Eiður Smári Guðjohnsen er í hópnum að þessu sinni en hann var ekki valinn fyrir síðasta leik.
LANDSLIÐSÞJÁLFARINN Ólafur Jóhannesson, þjálfari íslenska landsliðsins, er að
leggja lokahönd á undirbúninginn fyrir undankeppni EM 2012. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Landsliðshópurinn
Markverðir:
Árni Gautur Arason Odd Grenland
Gunnleifur Gunnleifsson FH
Varnarmenn:
Indriði Sigurðsson Viking
Kristján Örn Sigurðsson Hönefoss
Grétar Rafn Steinsson Bolton
Ragnar Sigurðsson IFK Gautaborg
Sölvi Geir Ottesen FC Kaupmannahöfn
Arnór Sveinn Aðalsteinsson Breiðabliki
Miðvallarleikmenn
Aron Einar Gunnarsson Coventry
Ólafur Ingi Skúlason SönderjyskE
Arnór Smárason Esbjerg
Rúrik Gíslason OB
Steinþór Freyr Þorsteinsson Örgryte
Matthías Vilhjálmsson FH
Guðmundur Kristjánsson Breiðabliki
Sóknarmenn
Eiður Smári Guðjohnsen AS Monaco
Heiðar Helguson QPR
Veigar Páll Gunnarsson Stabæk
FÓTBOLTI Íslenska U-21 landsliðið
stendur í ströngu á miðvikudag-
inn í næstu viku er liðið mætir
Þýskalandi í undankeppni EM
2011. Leikurinn fer fram á
Kaplakrikavelli í Hafnar-
firði en með sigri nær
Ísland að tryggja sér
annað sæti riðilsins.
Eyjólfur Sverris-
son, þjálfari U-21
landsliðsins, fær
þó ekki að stilla
upp sínu sterk-
asta liði í leiknum
þar sem að þrír leikmenn
voru valdir í A-landsliðið
sem mætir Liechtenstein í
æfingaleik sama dag. Þetta
eru þeir Aron Einar Gunn-
arsson, Rúrik Gíslason og
Arnór Smárason.
„Ég vinn úr því sem ég
hef á milli handanna
hverju sinni,“ sagði
Eyjólfur spurður um
málið. „Það er alveg
klárt hvernig þessi mál eru
og hef ég í raun ekkert meira
að segja um það. Ég hef áður
talað við Ólaf [Jóhannesson,
landsliðsþjálfara] um
þetta og hefur hann loka-
orðið. Maður hefði auð-
vitað alltaf vilja hafa
besta liðið en svona
eru reglurnar. Ég lít
á þetta sem svo að nú
fái aðrir leikmenn tæki-
færið.“
Sjálfur sagði Ólaf-
ur að þessi mál hefðu
ekki vafist fyrir honum en
hann hefur lagt áherslu á að
velja sterkustu leikmennina í
sinn hóp sem völ er á hverju
sinni.
„Þegar þetta kom fyrst til
á sínum tíma var Eyjólfur
ekki sáttur við mig og er það
skiljanlegt,“ sagði Ólafur.
„Við ræddum þetta á sínum
tíma og síðan þá hefur þetta
ekki verið neitt vandamál.
Aron Einar og Rúrik hafa
verið nánast fastamenn í
A-landsliðinu og Arnór
vildi ég fá að skoða
aðeins betur enda
mikilvægir leikir
framundan gegn
Noregi og Dan-
mörku í sept-
ember.“
Ísland á tvo
leiki eftir í und-
ankeppni EM
2011 – gegn Þjóð-
verjum og svo topp-
liði Tékka ytra en
liðið er enn með fullt
hús stiga eftir fyrstu
fimm leikina.
Eyjólfur á von
á hörkuleik gegn
Þjóðverjum sem munu vænt-
anlega mæta mjög sterkt
lið í Hafnarfjörðinn.
„Við sýndum það í leikn-
um í Þýskalandi að við
erum líka sterkir. Við lent-
um tvisvar undir í leikn-
um en jöfnuðu í bæði
skiptin. Við höfum
verið þéttir fyrir
í vörninni en svo
sótt hratt fram á
mörgum mönn-
um. Við stefnum
auðvitað sigur
eins og í öllum
okkar leikjum.
Takmarkið okkar
var að komast í
úrslitakeppnina
og það hefur ekk-
ert breyst.“ - esá
Þrír leikmenn A-landsliðsins gjaldgengir í U-21 landslið Íslands sem mætir Þýskalandi í næstu viku:
Vinn úr því sem ég hef á milli handanna
EYJÓLFUR SVERRISSON
Þjálfari íslenska U-21
landsliðsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/E. STEFÁN
RÚRIK GÍSLASON
Er enn gjaldgengur í U-21 landsliðið
en var valinn í A-landsliðið sem
mætir Liechtenstein.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
KÖRFUBOLTI Grindvíkingar tefla
fram methafa úr bandaríska
háskólakörfuboltanum þegar þeir
hefja nýtt tímabil í Iceland Express
deildinni. Grindvíkingar hafa samið
við bandaríska bakvörðinn Andre
Smith en hann lék á sínum tíma
með George Mason háskólanum við
góðan orðstír.
Andre Smith, kallaður Dre, komst
í sögubækurnar vorið 2008 þegar
hann hitti úr öllum tíu þriggja stiga
skotum sínum í leik með George
Mason á móti James Madison en
þrír menn höfðu áður mest hitt úr 9
þriggja stiga skotum í leik í banda-
rísku NCAA-deildinni án þess að
klikka.
Það er alveg hægt að sjá fyrir sér
slíka þriggja stiga skyttu falla vel
að leik Grindvíkinga sem eru þekkt-
ir fyrir að skjóta aðeins fyrir utan
þriggja stiga línuna.
„Stóra ástæðan fyrir því að ég tók
hann fram yfir aðra er að ég þekki
aðstoðarþjálfarann hjá George
Mason háskólanum. Það er fyrrver-
andi liðsfélagi minn síðan að ég spil-
aði með honum í Belgíu. Hann gaf
honum mjög gott orð,“ segir Helgi
Jónas Guðfinnsson, þjálfari Grinda-
víkurliðsins.
Dre Smith var með frábærar
tölur með ABC Lions Dornbirn í B-
deildinni í Austurríki í fyrravetur
þar sem hann skorað 31,3 stig, gaf
7,0 stoðsendingar og stal 4,2 boltum
í leik. „Hann spilaði í B-deildinni í
Austurríki á síðasta tímabili en ég
tók nú ekki mark á þeim tölum því
ég veit ekki hversu marktækt það
er,“ segir Helgi Jónas og bætir við:
„Hann á líka að vera mjög
góður varnarmaður sem kemur
sjaldnast fram á þessum mynd-
böndum með leikmönnunum.
Ég fékk það góðar upplýsing-
ar frá aðstoðarþjálfaranum að
ég ákvað að skella mér á hann,“
segir Helgi.
Það er nokkrum spurningum
enn ósvarað með Grindavíkur-
liðið. Guðlaugur Eyjólfsson er
ekki búinn að ákveða það hvort
að hann verði með og Þorleifur
Ólafsson er ekki enn orðinn góður
af meiðslunum sem hömluðu hans
þátttöku mikið á síðasta tímabili.
„Við höfum bara misst leikmenn
en ekkert bætt við okkur þannig
lagað. Það kemur samt ekki til
greina að vera spilandi þjálfari,“
segir Helgi Jónas og bætir við:
„Ég er alveg viss um að ég gæti
spilað einhverjar mínútur en það
kæmi bara niður á þjálfuninni.“
- óój
Helgi Jónas Guðfinnsson er búinn að finna sér kana og hefur ákveðið að spila ekki með Grindavík í vetur:
Nýi kaninn á magnað þriggja stiga met
BARA ÞJÁLFARI Helgi Jónas Guðfinnsson
spilar ekki með Grindavík á komandi
tímabili. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Þó spænski sóknar-
maðurinn Fernando Torres vilji
ólmur vera áfram hjá Liverpool
þá segir knattspyrnustjórinn Roy
Hodgson ómögulegt að segja hvað
framtíðin ber í skauti sér.
„Það er mikilvægt fyrir Fern-
ando og okkur að við eigum gott
tímabil. Kannski stöndum við
okkur vel og leikmenn vilja vera
áfram en svo gæti árangurinn
orðið lélegur og fleiri vangavelt-
ur koma upp,“ segir Hodgson.
„Ef við fáum sams konar risa-
tilboð eins og Manchester United
fékk í Cristiano Ronaldo er mjög
erfitt að hafna því. En við tök-
umst á við það ef það kemur. Tor-
res mun spila með okkur á kom-
andi tímabili og hefur látið það
skýrt í ljós að honum þykir vænt
um félagið og stuðningsmenn.“
- egm
Roy Hodgson um Torres:
Erfitt að hafna
risatilboði
HODGSON Útilokar ekkert varðandi
framtíð Torres. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Craig Gordon, mark-
vörður Sunderland, er á meiðsl-
alistanum og félagið leitar að
manni til að fylla hans skarð. Það
hefur sent inn ósk til Manchester
City um að fá Joe Hart lánaðan.
Hart er að berjast um mark-
mannsstöðuna hjá City við Shay
Given en hefur sagt að hann sé
tilbúinn til að fara á lán ef hann
vinnur ekki þá samkeppni.
Hart ert 23 ára og var í fyrra
á lánssamningi hjá Birming-
ham þar sem hann lék á als oddi
og var valinn leikmaður tíma-
bilsins hjá liðinu. Hann var einn
af þremur markvörðum enska
landsliðsins á HM í Suður-Afríku
í sumar en fékk ekki að spreyta
sig á mótinu. - egm
Markvarðarmál Sunderland:
Vill fá Joe Hart
lánaðan frá City
JOE HART Hér á æfingu með enska
landsliðinu í vor. NORDIC PHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Margir líta á úrslitaleik
FH og KR sem draumaúrslita-
leik í bikarkeppni karla. Leikur-
inn verður á Laugardalsvellinum
laugardaginn 14. ágúst og er hans
beðið með mikilli eftirvæntingu
enda líklegt að fólk sleppi við að
mæta í kuldagallanum á úrslita-
leikinn þetta árið.
Búist er við mun fleiri áhorf-
endum en á úrslitaleiki undanfar-
inna ára. Bæði lið eiga stóran hóp
stuðningsmanna og er miðasala
á leikinn þegar hafin. Miðasalan
fer fram gegnum vefsíðuna midi.
is. - egm
Bikarúrslitaleikur karla:
Miðasala hafin