Fréttablaðið - 05.08.2010, Qupperneq 66
50 5. ágúst 2010 FIMMTUDAGUR
golfogveidi@frettabladid.is
20
FL
U
G
A
N
A
F
B
A
K
K
A
N
U
M
Veiðistaðurinn - Bjarnarfoss í Tungufljóti
MYND/VEIÐIFLUGUR.IS
krónur kostar fyrir félagsmenn SVFR að veiða í
Varmá við Hveragerði í þessum mánuði en aðrir
borga fimmtungi meira. Þar er hægt að setja í flest-
ar gerðir ferskvatnsfiska.
5.900
Aflahæstu árnar
1. Blanda 2453
2. Þverá/Kjarará 2445
3. Norðurá 1652
4. Ytri-Rangá 1536
5. Miðfjarðará 1327
6. Eystri-Rangá 1281
7. Grímsá og Tunguá 1123
8. Haffjarðará 1108
9. Langá 939
10. Selá 865
Heimild: Angling.is. Tölurnar eru frá
fimmtudeginum 28. júlí.
Erlendir feðgar sem voru í Laxá á
Ásum fengu tuttugu laxa á tveim-
ur dögum að því er segir á vef Lax-
ár. „Laxinn hefur safnast fyrir á
fáa staði en alltaf eru einhverjir
óvæntir staðir innan um,“ segir á
lax-a.is og vísað til þess að í staðn-
um Kóka hafi sonurinn landað 88
sentimetra laxi sem áætlað var að
vigtaði 16 pund. Segir að veiðimað-
urinn hafi brosað út að eyrum dag-
innn á enda. „Það eina sem að hann
sagði var: I‘m so happy.“ - gar
Feðgar í Laxá á Ásum:
Fengu 20 laxa á
tveimur dögum
Randy Candy er hönnuð af Klaus
Frimor. Flugan sló í gegn í Aðal-
dalnum og er ein aflahæsta flug-
an í Nesveiðinni. Sagan segir að
Randy Candy heiti í höfuðið á
þybbnum listdansara frá smábæ í
Skotlandi en sú saga er ekki seld
dýrar en hún er keypt.
Mögnuð fluga
Um 230 laxar hafa veiðst í Svalbarðsá það sem af er sumri. Í fyrra veiddust um
340 laxar í ánni að sögn Soffíu Björgvinsdóttur, veiðivarðar í Garði, og stefnir nú
óðfluga í að sú aflatala verði slegin út enda veitt til 15. september í Svalbarðsá.
Soffía segir að veiðin hafi verið ágætlega dreifð um ána frá því hún var opnuð 1.
júlí. Spurð um aðrar ár í Þistilfirði segist hún hafa heyrt að ágætlega hafa gengið
í Hafralónsá en að að hún viti lítið um gang mála í Sandá og Hölkná. - gar
Stefnir í met í Svalbarðsá
Feiknaveiði var í Ólafsfjarðará síðustu helgina í júlí að því er segir á
vef Stangaveiðifélags Akureyrar. „Fengust til dæmis 130 bleikjur á
sunnudeginum á fjórar stangir. Bleikjan virðist mun vænni en síðustu
ár og var talsvert af aflanum 40 til 45 sentímetra fiskar. Afar kraftmikl-
ar göngur eru nú í ána og virðist fiskur vera á öllum veiðistöðum,“
segir á svak.is. - gar
Mokveiði í Ólafsfjarðará
Vegna áskorunar silungaveiði-
manns í félaginu Ármönnum fram-
leiðir Plastprent nú sérstaka poka
fyrir silung. Að því er segir á vef
Ármanna eru pokarnir „hæfileg-
ir fyrir einnar kvöldstundar afla á
Þingvöllum“. - gar
Silungsveiðimenn Ármanna:
Fá passlega poka
Þó að þurrkar og vatnsleysi plagi
nú stangveiðimenn vestanlands
og sunnan þá veiðist sums staðar
þokkalega. Þannig segir vefurinn
votnogveidi.is frá því að ágæt-
is skot hafi komið í Flekkudalsá í
Dölum fyrir nokkrum dögum þótt
þar sé óvenju lítið vatn í ánni. Í
Flóku sé mikið af laxi þótt reynd-
ar hafi hægt á veiðinni þar vegna
þurrkanna. - gar
Veiði þrátt fyrir þurrka:
Fiska vel í
vatnslitlum ám
punda lax er 100 sentímetra langur sam-
kvæmt viðmiðunartöflu sem Veiðimála-
stofnun hefur sett upp. 50 sentímetra fisk-
ur er hins vegar rétt tæp þrjú pund.
Fluguveiðiskóli Stanga-
veiðifélags Akureyrar
hefur slegið í gegn hjá unga
fólkinu í sumar. Formaður
félagsins segir hægt að
fylla mörg námskeið enn.
„Það fyrsta sem þeir lærðu var
ekki hvernig á að drepa fiskinn
heldur hvernig á að sleppa honum,“
segir Erlendur Steinar Friðriks-
son, formaður Stangaveiðifélags
Akureyrar (SVAK), sem stendur
fyrir fluguveiðinámskeiðum fyrir
börn og unglinga.
Að sögn Erlends hafði sú hug-
mynd verið nokkurn tíma á kreiki
inann SVAK að efna til fluguveiði-
skóla. Með nýju blóði í stjórninni
hafi þetta nú orðið að veruleika.
„Fyrsta námskeiðið var á svæði
4 í Eyjafjarðará í byrjun júlí. Við
héldum að það væri örugglega ekki
komin bleikja en þá var hún mætt
og allir ánægðir. Fólk spurði þá
hvort hægt væri að fá framhalds-
námskeið og jafnvel leiðsögn í
ákveðnar ár eða þá kennslu fyrir
krakkana, Við ákveðum að setja
upp námskeið og sjáum fram á að
geta sett á fleiri slík námskeið í
haust.“
Á þriðjudag fengu sex drengir á
aldrinum níu til þrettán ára leið-
sögn við fluguveiði í Brúnastaðaá
í Fljótum.
„Þarna er öllu sleppt í kistu því
verið er að vinna við að stækka
veiðisvæðið,“ segir Erlendur.
„Þeim fannst þetta æðislegt. Það
var útskýrt fyrir þeim hvernig
fiskinum væri fyrst sleppt í kist-
una og síðan farið með hann upp
eftir þar sem hann myndi stækka
og verða stærri á næsta ári þegar
þeir kæmu aftur að veiða auk þess
sem þá yrðu fleiri fiskar því nú
væri komið hrygningarsvæði fyrir
ofan. Þeim fannst þetta svakalega
sniðugt að vera allt í einu orðnir að
vísindamönnum líka.“
Erlendur undirstrikar að það sé
mikilvægt að kenna veiðimönnum
hvernig eigi að sleppa fiski. „Ég tek
fast á fiskunum og dríf þá í land í
hvelli. Mig grunar að stundum séu
menn að dauðþreyta fiskinn og
reyna svo að merja lífi í hann aftur.
Ef það er hlýtt úti og áin heit þá
kannski hefur fiskurinn þetta ekki
af heldur fær bara hjartaáfall og
deyr,“ segir hann.
Fram undan er einnig barna- og
unglinganámskeið þar kennd verður
meðhöndlun og úrvinnsla afla. - gar
Læra að sleppa áður
en þeir læra að rota
GÓÐ STUND Drengirnir á fluguveiðinámskeiðinu í Brúnastaðaá settu í 36 fiska og
lönduðu 21 sem var svo sleppt aftur í þágu vísindanna. MYND/MATTHÍAS ÞÓR HÁKONARSON
RANDY CANDY
Sjóbirtingsveiðin í Tungufljóti í
Skaftárhreppi er rómuð. Gústaf
Vífilsson verkfræðingur hefur
langa reynslu af veiðum þar.
Hann lýsir aðstæðum við Bjarn-
arfoss:
Þarna er í raun tvenns konar
aðkoma, annars vegar af aust-
urbakkanum og hins vegar af
vesturbakkanum.
Austan megin fer maður upp
fyrir staðinn og gengur niður að
honum meðfram ánni og niður á
klappirna við fossinn. Þar nær
maður mjög góðu rennsli, hvort
sem það er á flugu, spún eða
maðk, efst í strengnum.
Á vesturbakkanum getur
maður hins vegar bæði farið
ofarlega og kastað efst í streng-
inn eða þá kastað af eyrinni
inni í kverkinni. Þá er hægt að
ná ágætis þverköstum á stað-
inn.
En til að ná niður á brotið og
undir klettana austan megin
þarf að vaða út, neðan frá sand-
eyri sem liggur á kafi langt upp
í miðjan staðinn. Þá getur maður
veitt strenginn andstreymis og
kastað á hann undir klettinum
þar sem útfallið er. Það finnst
mér eiginlega skemmtilegasti
hlutinn af þessum stað.“ - gar
BJARNARFOSS Fallegur veiðistaður sem geymir mikið af fiski.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
A
R
Ð
A
R
Greint var frá því á pressan.is í
gær að veiðst hefði 34 punda lax í
net fyrir landi Laugardæla í Hvítá.
Haft var eftir ónefndum veiði-
manni sem var að koma úr Stóru-
Laxá að til lítils væri að sleppa
fiski stærri en 70 sentímetrar þar
efra ef menn hirtu svo stórfiska í
net neðar í vatnakerfinu.
Ferlíki upp úr Hvítá:
34 punda í net
VEIÐIMAÐUR Í KÓKA Með 16 punda lax.
M
YN
D
/H
Ö
SK
U
LD
U
R
NÚ BER VEL Í VEIÐI
Urriðaveiði í Laxárdal og Mývatnssveit