Fréttablaðið - 20.08.2010, Síða 33
20. ágúst föstudagur 5
Besta pitsan?
Pepperoni Special á Eldsmiðjunni. Ég er
svo óheppinn að búa þar við hliðina og
borða varla annað.
Besti áfengi drykkurinn?
Screwdriver. Vodki í appelsínusafa.
Svalasti Íslendingurinn?
Ómar Ragnarsson. Hann kemur mér
sífellt á óvart.
Besta liðið?
Valur Reyðarfirði. Svo
þykist ég halda með
Chelsea í ensku
knattspyrnunni.
Hvað ætlaðirðu að verða þegar þú yrðir
stór?
Dýralæknir. Svo fékk mamma þá frá-
bæru hugmynd að leyfa mér
að sjá þegar köttur-
inn okkar, Jósep,
var geltur. Þá datt
það upp fyrir.
✽
b
ak
v
ið
tj
öl
di
nBÆBÆ
ana. Þess vegna ákvað ég að búa til
nýjan karakter, hækkaði röddina,
var með læti og kallaði mig Freysa
til að þekkjast ekki. Freysi kom
heldur aldrei fram á ljósmyndum
nema í dulargervi, með Phil Coll-
ins-grímu framan í sér eða eitthvað
slíkt,“ segir Andri Freyr.
Önnur ástæða fyrir tilurð alter-
egósins Freysa var sú að undir dul-
nefni gat Andri Freyr sagt hvað sem
honum sýndist í beinni útsendingu,
og jafnvel hluti sem áttu ekki við
rök að styðjast.
„Freysi var mjög grófur og lét
allt flakka, hringdi í hvern sem er
í beinni og var alltaf með kjaftinn
uppi. Mest urðu lætin þó í kringum
dagskrárliðinn Slúður dagsins, þar
sem hlustendur fengu tækifæri til
að hringja inn og láta ljós sitt skína.
Þá varð stundum allt vitlaust og ég
var tekinn á teppið af yfirmönn-
um mínum fyrir dónaskapinn. En
það fyndna var að svo liðu nokkrar
vikur og þá heimtuðu yfir mennirnir
eitthvað dúndur, einhvern skandal
sem myndi vekja áhuga á stöð-
inni. Þá var ég skammaður aftur og
svona gekk þetta koll af kolli,“ segir
Andri Freyr.
EITTHVAÐ FYRIR ALLA
Hann segir það vissulega hafa verið
nokkur viðbrigði að hefja störf á
Rás 2 eftir mörg ár hjá einkarekn-
um útvarpsstöðvum á borð við X-
ið, XFM og Reykjavík FM. „Þetta er
á ýmsan hátt öðruvísi. Þegar ég var
á litlu stöðvunum gat ég nánast
alltaf gengið út frá því sem vísu að
mamma væri sú eina sem væri að
hlusta af fjölskyldumeðlimunum,
því flestir hinna voru á Reyðarfirði.
Núna er allt eins líklegt að afi og
amma og í rauninni allir frá sjö ára
og upp í sjötugt séu að hlusta. Auð-
vitað verð ég að bera virðingu fyrir
því og halda mér aðeins á mott-
unni, passa mig á því að rífa ekki
of mikinn kjaft, sletta ekki um of
og þar fram eftir götunum. Sumir
fá fyrir hjartað bara ef maður segir
bæbæ,“ segir Andri Freyr.
Í þáttum sínum leitast hann við
að leika tónlist fyrir alla, en reynir
þó að víkja ekki langt frá því sem
honum sjálfum þykir skemmti-
legt. „Mér finnst að persónuleiki
dagskrárgerðarmannsins verði að
skína dálítið í gegnum músíkina.
Stærstan hluta þess tíma sem ég
hef unnið í útvarpi hef ég verið á
stöðvum þar sem tónlistinni er
troðið ofan í mann. Þegar ég var
að byrja var ég kannski að leita
alls kyns leiða til að þurfa ekki að
spila nýjasta lagið með Nickelback
í fimmta skiptið þann daginn, og
ef það tókst var ég bara tekinn á
teppið. Á Rás 2 spila ég bara tónlist
sem mig langar að spila, og auðvit-
að líka Sálina, Nýdönsk, Todmobile
og fleira sem fólkið vill heyra,“ segir
Andri Freyr og glottir.
Aðspurður segist hann kunna vel
við sig í hlutverki útvarpsmannsins
og er ekkert á leiðinni í önnur störf
á næstunni. „Þetta er það eina sem
ég kann. Mér þykir útvarp skemmti-
legur miðill, þótt hann sé illa nýtt-
ur að vissu leyti. Margir eru að gera
góða hluti en það er allt of algengt
að útvarpsmenn leiki bara lög af
plötum í þrjá tíma og geri nánast
ekkert annað. Það er gott og bless-
að að spila tónlist en það má alveg
vera smá kjöt á beinunum. En lík-
lega ætti ég ekkert að vera að rífa
kjaft varðandi þessi mál,“ segir
Andri Freyr að lokum.
P
L
Á
N
E
T
A
N
2
0
0
7 Háskóli Íslands Háskólatorgi S. 570 0777 - Háskólinn í Reykjavík Sólinni Nauthólsvík S. 599 6469 boksala@boksala.is
www.boksala.is
Bóksala stúdenta
opnar í Sólinni
Bóksala stúdenta hefur opnað
glæsilega nýja verslun í Sólinni,
Háskólanum í Reykjavík, Nauthólsvík.
Við óskum starfsfólki og nemendum
Háskólans í Reykjavík til hamingju með
glæsileg húsakynni og bjóðum þá
velkomna í búðina.
Sem fyrr mun Bóksalan leitast við að
útvega stúdentum kennslubækur og
önnur námsgögn á sanngjörnu verði.
Við hlökkum til að sjá ykkur!