Fréttablaðið - 16.10.2010, Qupperneq 2
2 16. október 2010 LAUGARDAGUR
FÓLK „Það er margt annað sem
maður hefur áhuga á að gera áður
en maður verður alveg ónýtur til
alls. Fyrir mann sjálfan bara,“
segir Ásmundur Þórhallsson, sem
verið hefur húsvörður á Eiðum á
Héraði um árabil og lengur en hann
kærir sig um.
Sveitarfélagið Austur-Hérað
(Fljótsdalshérað í dag) seldi Sig-
urjóni Sighvats-
syni og Sigurði
Gísla Pálmasyni
húsakostinn þar
sem héraðsskóli
var á Eiðum í
umdeildum við-
skiptum á árinu
2001. Edduhót-
el er rekið á
Eiðum á sumr-
in en notkunin á
veturna er mjög
stopul og oftast
er þar þá alls
enginn maður.
Ásmundur,
sem býr á Orms-
stöðum skammt
frá Eiðum, hefur
verið þar hús-
vörður og sinnt
bæði viðhaldi og
eftirliti. Hann
sagði upp um síðustu áramót en
gengur illa að fá sig lausan.
„Ég lofaði Sigurjóni þegar ég
hætti að ég skyldi kíkja á þetta þang-
að til það yrði búið að ráða annan
mann. Hann ætlaði að vera búinn
að því áður en vorið kæmi en það
er nú ekki komið enn. Það er senni-
lega vetur ennþá,“ segir Ásmund-
ur og hlær. „En ég er hræddur um
að það sé vegna þess að það vantar
aura eins og víða,“ bætir hann við.
Síðan sumarvertíðinni lauk hjá
Hótel Eddu kveðst Ásmundur nú
fara annan hvern dag til að líta
eftir á Eiðum. „Ég hef farið og
kíkt upp á það hvort allt sé í lagi.
Það er ekki hægt annað því þetta
liggur bara undir eyðileggingu ef
enginn lítur eftir,“ segir hann.
Margir heimamenn hafa áhyggj-
ur af því að byggingunum á Eiðum
hnigni ört. Að sögn Ásmundar
liggur húsakosturinn þó ekki
beint undir skemmdum. Þótt
hann sjálfur sé hættur að sinna
viðhaldi bygginganna séu verk-
takar fengnir í það sem sé bráð-
nauðsynlegt, þá fyrst og fremst
tengt hótelrekstrinum.
„En það er ómögulegt að hafa
ekki mann þarna til að líta eftir,
því það eru svo mikil verðmæti
í húfi. Ef rafmagn og hiti fer af
og það frýs er þarna orðið millj-
ónatjón. Það getur alltaf eitt-
hvað klikkað,“ minnir húsvörð-
urinn nauðugi á. „Ég er kominn á
aldur og meira en það, varð hálf-
áttræður í haust, þannig að það
er kominn tími á það að ég fái að
hætta.“
Ekki náðist í Sigurjón Sighvats-
son í gær. gar@frettabladid.is
Anna, voru kysstir margir
franskir kossar í Sóltúni?
Já, það var mikið um kossa og gleði
í hjörtum og franskur andi sveif yfir
vötnum.
Anna Birna Jensdóttir er hjúkrunarforstjóri
á Sóltúni þar sem haldnir voru Franskir
dagar í vikunni með rauðvínsdrykkju,
franskri tónlist og öllu tilheyrandi.
SIGURJÓN
SIGHVATSSON
Hálfáttræður fastur í
starfi sem húsvörður
Þótt Ásmundur Þórhallsson hafi sagt upp sem húsvörður á Eiðum um síðustu
áramót getur hann ekki hætt því eigandinn ræður ekki eftirmann eins og lofað
var. Ásmundur er hálfáttræður og vill nú fara að gera eitthvað fyrir sig sjálfan.
EIÐAR Héraðsskólinn komst í eigu einkaaðila árið 2001 og hafa byggingarnar verið í
lágmarksviðhaldi allar götur síðan þá. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hann ætlaði að vera
búinn að því áður en
vorið kæmi en það er nú ekki
komið enn. Það er sennilega
vetur enn þá.
ÁSMUNDUR ÞÓRHALLSSON
HÚSVÖRÐUR Á EIÐUM.
SIGURÐUR GÍSLI
PÁLMASON
FÉLAGSMÁL Dagur hvíta stafsins,
alþjóðlegur baráttudagur blindra
og sjónskertra, var í gær og stóð
Blindrafélagið fyrir margvíslegri
dagskrá í tilefni dagsins.
Blindrafélagið veitti Alþingi
Samfélagslampa félagsins sem
veittur hefur verið á deginum
undanfarin ár. Var hann veittur
Alþingi í tilefni af gildistöku laga
um þjónustu- og þekkingarmiðstöð
fyrir blinda, sjónskerta og dauf-
blinda einstaklinga.
Þá sendi Umferðarstofa frá sér
áminningu til ökumanna um að
taka tillit til þess að blindir og
sjónskertir eru virkir þátttakend-
ur í umferðinni eins og aðrir. Það á
ekki síst við þegar ökumenn leggja
bílum sínum en þá þarf að gæta
þess að þeim sé ekki lagt þannig
að þeir hindri för gangandi vegfar-
enda eða skapi óþarfa hættu. - mþl
Dagur hvíta stafsins var í gær og gafst fólki færi á að prófa sjónhermigleraugu:
Upplifðu reynsluheim blindra
BLINDIR GANGA Fólki gafst tækifæri til að upplifa reynsluheim blindra með því
að setja upp sjónhermigleraugu í göngu Blindrafélagsins í gær. Meðal þeirra sem
prófuðu gleraugun voru Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, og Katrín Jakobs-
dóttir menntamálaráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SVISS, AP Borun lauk í gær á göng-
um undir Gotthard Massif-fjall-
garðinn í Ölpunum sem eru frá
og með deginum í gær lengstu
göng í heimi.
Göngin sem nefnast Gotthard
Base-göngin eru alls 57 kílómetr-
ar að lengd og taka því metið frá
hinum japönsku Seikan-göngum
sem eru 53 kílómetrar.
Háhraðajárnbraut mun liggja
í gegnum göngin sem verða aðal-
lega notuð til að flytja vörur í
gegnum Alpana. - mþl
Boruðu heila 57 kílómetra:
Lengstu göng
heims tilbúin
SÍÐASTI SPÖLURINN Fagnaðarlæti
brutust út í göngunum þegar borað var í
gegnum síðasta haftið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SKEMMTUN Tvö hundruð gjafamið-
ar á fjölskyldusöngleikinn Dísu
ljósálf ruku út á fimmtán mínút-
um í Austurbæjarbíói í gær þegar
Fréttablaðið gaf áhugasömum
lesendum miða á sýninguna.
Söngleikurinn er í leikstjórn
Páls Baldvins Baldvinssonar og
verður frumsýndur eftir viku. Í
aðalhlutverkum eru Álfrún Helga
Örnólfsdóttir og Steinn Ármann
Magnússon. Gunnar Þórðarson
sér um tónlistarstjórn. - mþl
Fréttablaðið gaf leikhúsmiða:
Miðar á Dísu
ljósálf ruku út
ÁNÆGÐIR LESENDUR Nokkur fjöldi fólks
beið í anddyri Austurbæjarbíós þegar
miðasalan var opnuð í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÓRNMÁL Ísland og Kanada hafa
samið um samstarf í varnarmál-
um. Í því felst meðal annars að
Kanadaher mun stunda æfingar
á Íslandi. Að auki nær það til
aukins samráðs, upplýsingasam-
skipta og menntunar og starfs-
þjálfunar, að því er fram kemur
í tilkynningu frá utanríkisráðu-
neytinu.
Össur Skarphéðinsson utanrík-
isráðherra og Peter G. MacKay,
varnarmálaráðherra Kanada,
undirrituðu samkomulagið í
Brussel þar sem ráðherrar aðild-
arríkja NATÓ funduðu fyrir
helgi.
Áður hefur Ísland samið um
samstarf í varnar- og öryggis-
málum við Dani, Norðmenn,
Breta og Bandaríkjamenn. - bþs
Samið um varnarsamstarf:
Kanadaher æfir
sig á Íslandi
VIÐSKIPTI Byr hf. fær fimm millj-
arða víkjandi lán úr ríkissjóði
sem ráðgert er að Byr greiði upp
á fimm árum. Þetta er hluti af
samkomulagi um stofnun hins
nýja Byrs á rústum þess gamla.
Slitastjórn sparisjóðsins, fjár-
málaráðuneytið og Byr hf. sömdu
um þetta 14. október síðastliðinn.
Hlutur ríkisins í Byr hf. verður
5,2 prósent en afgangurinn verð-
ur í eigu Byrs sparisjóðs, sem
er í slitameðferð, en í vörslu og
umsjón fjármálaráðuneytisins
næstu tvö ár. - sh
Samið um uppgjör Byrs:
Byr fær fimm
milljarða lán
SAMFÉLAGSMÁL Þjóðfundur um
stjórnarskrá Íslands, sem fram
fer 6. nóvember næstkomandi, er
fullmannaður en þúsundasti þátt-
takandinn staðfesti komu sína á
fundinn í gær.
Guðrún Pétursdóttir, formaður
stjórnlaganefndar, segir það
ánægjulegt að þegar hafi tekist
að manna Þjóðfundinn, þótt enn
séu þrjár vikur til stefnu. Fjöldi
fólks hafi einnig þegar ákveðið að
bjóða sig fram til stjórnlagaþings-
ins. „Við finnum að áhugi og skiln-
ingur á þessu merka verkefni vex
óðum,“ segir Guðrún.
Þátttakendur voru valdir af
handahófi úr þjóðskrá þar sem
gætt var að skiptingu þeirra
eftir búsetu og kyni. Á næstu
dögum munu allir þátttakendur
fá sent bréf ásamt stjórnarskrá
lýðveldisins.
Jafnmargar konur eru skráðar
á fundinn og karlar. Elsti þátttak-
andi á Þjóðfundi er fæddur 1921,
en fjórtán eru fæddir fyrir árið
1930. Yngstu gestirnir eru fæddir
1992 og verða þeir 22 talsins.
Fundurinn er undanfari stjórn-
lagaþings, en kosningar til þess
fara fram 27. nóvember. Fram-
boðsfrestur rennur út á hádegi
næstkomandi mánudag. - shá
Þúsundasti þátttakandinn á Þjóðfundi um stjórnarskrána hefur staðfest þátttöku:
Þjóðfundurinn fullmannaður
VIÐ STJÓRNARRÁÐIÐ Stjórnarskráin sem
Kristján IX. færði þjóðinni á þúsund ára
afmæli Íslandsbyggðar hefur lítið breyst.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VIÐSKIPTI Tugir einstaklinga eru
til rannsóknar hjá Fjármála-
eftirlitinu vegna gruns um að
þeir hafi nýtt sér upplýsingar
um stöðu bankanna í aðdraganda
hrunsins til að hagnast á hluta-
bréfasölu. Þetta kom fram í frétt-
um RÚV í gærkvöldi.
Forstjóri Fjármálaeftirlitsins
sagði í fréttatímanum að erfitt
væri að sanna sök í málum af
þessu tagi. Sum hafi verið felld
niður en önnur séu enn í rann-
sókn. Hann býst þó við að einhver
málanna endi með ákæru. - sh
Nóg að gera hjá FME:
Rannsaka tugi
innherjasvika
SPURNING DAGSINS