Fréttablaðið - 16.10.2010, Síða 40
heimili&hönnun4
Kristján leitaði fanga í Góða hirðinum og
fékk hægindastólinn fyrir slikk.
Kristján smíðaði borðstofu-
borð fyrir heimilið. Stólarnir
leyndust á smíðaverkstæði
frænda Kristjáns og reyndust í
hinu besta ástandi.
Kristján smíðaði náttborðið úr
afgangs eikarparketti. Borðið
er á þremur fótum en Kristján
hefur gaman af hlutum sem fá
áhorfandann til að efast um að
þeir geti staðið.
Kertastjakann keyptu Kristján og Erla
í Epal.
Kristján Brynjar Bjarnason er ný-
fluttur inn í nýtt hús við Laugaveg
ásamt unnustu sinni Björgu Val-
geirsdóttur. Þrátt fyrir staðsetn-
inguna segir Kristján rólegt í hús-
inu. „Við þekkjum bæði miðbæjar-
skarkalann en við verðum ekki
vör við neitt, þetta er eins og að
búa uppi í sveit,“ segir Kristj-
án. Beðinn um að lýsa heimilinu
segir hann stílinn blöndu af nýju
og gömlu. Leitað hafi verið fanga í
Góða hirðinum en heimilið prýða
einnig húsgögn eftir Kristján sjálf-
an, sem er húsasmiður að mennt.
„Borðstofuborðið smíðaði ég því
mér blöskraði verðlagið á borð-
stofuborðum á markaðnum. Þetta
er mdf-plata lökkuð með bílalakki
en grindina og fæturna smíðaði
ég úr tekkstaur sem ég fékk ódýrt
og þurrkaði upp. Ég nýtti afgang-
inn af honum í litla drauga sem ég
hef í gluggakistunni,“ segir Kristj-
án þar sem hann situr við glugg-
ann í gömlum stól úr Góða hirðin-
um. Stólana við borðstofuborðið
sá Kristján á smíðaverkstæði hjá
frænda sínum sem hann vann hjá
um tíma. Hann hafði lengi auga-
stað á þeim áður en hann fékk
þá gefins. „Stólarnir eru í fínu
ástandi. Við vitum ekki alveg upp-
runa þeirra, hvort þeir eru íslensk
sjóræningjaútgáfa af stólum Hans
J. Wegner eða hvort þeir eru eftir
hann sjálfan, en við erum mjög
ánægð með þá. Skenkinn fengum
við líka í Góða hirðinum. Hann
var illa farinn svo ég sparslaði
hann upp og málaði. Björg hefur
gaman af styttum héðan og þaðan
og gylltu ugluna á skenknum fékk
hún að gjöf frá ömmu sinni. Í skál-
inni býr síðan gullfiskurinn okkar,
hún Gerður.“
Smíðaði eigið
borðstofuborð
● Heimili Kristjáns Brynjars Bjarnasonar og Erlu Bjargar
Valgeirsdóttur prýða heimasmíðuð húsgögn í bland við
gamalt og nýtt.
Skenkinn gerði Kristján upp en hann var illa farinn. Gylltu ugluna fékk húsmóðirin frá ömmu sinni og bak við hana syndir gull-
fiskurinn Gerður í hringi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
● HÚSRÁÐ KRISTJÁNS Ef bruna-
blettur kemur í tekk hef ég heyrt að gott
sé að láta majónes liggja á blettinum,
þá eigi hann að hverfa. Ég hef reyndar
ekki prófað þetta sjálfur. Gamla mublu
úr tekki má pússa upp með sandpappír,
þannig nást öll óhreinindi og blettir úr
viðnum. Pússa olíu ofan í viðinn með
sandpappírnum. Best er að nota rétta
olíu eða þar til gerða tekkolíu. Láta olí-
una liggja og þurrka svo olíuna sem ekki
dregst inn í viðinn af með þurrum klút.
Ekki maka of oft á tekk, viðurinn á ekki að
verða gegnsósa af olíu.