Fréttablaðið - 16.10.2010, Side 94
16. október 2010 LAUGARDAGUR62
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Bandaríkjamaðurinn
John W. Henry og fjárfestingar-
hópur hans, New England Sports
Ventures, fögnuðu því í gær ásamt
stjórnarmönnum Liverpool að enska
úrvalsdeildarfélagið væri loksins
komið í þeirra hendur. Stjórn Liver-
pool ákvað að selja Henry félagið
fyrir níu dögum en leysa þurfti úr
viðamiklum lagaflækjum áður en
hægt var að ganga endanlega frá
sölunni.
Bandaríkjamennirnir Tom Hicks
og George Gillett Jr. gerðu allt sem
í þeirra valdi stóð til að koma í veg
fyrir söluna og notuðu til þess hvert
lögfræðiútspilið á fætur öðru. Það
var hins vegar ljóst þegar hæsti-
réttur í Bretlandi hafnaði lögbanns-
kröfu þeirra hjá dómstól í Texas í
Bandaríkjunum að þeir urðu að
horfa á eftir félaginu, sem þeir
hafa hleypt í gríðarlegar skuldir á
þeim þremur árum sem þeir hafa
átt það.
„Eins og allir stuðningsmenn
Liverpool vita reynir mest á taug-
arnar að vinna leik í vítaspyrnu-
keppni. En það er þess virði ef réttu
úrslitin nást að lokum. Við höfum
náð réttum úrslitum,“ sagði Mart-
in Broughton, stjórnarformaður
Liverpool.
„Ég er stoltur og fullur auðmýkt-
ar. Okkar bíður mikil vinna en ég
get ekki lýst því hversu ánægður ég
er að þetta sé loksins, loksins gengið
í gegn,“ sagði John W. Henry í gær.
„Við ætlum að hlusta og við
vonum að aðgerðir okkar muni tala
sínu máli. Við erum hingað komnir
til að vinna,“ sagði Henry, sem gat
ekki svarað því hvort nýr leikvang-
ur yrði byggður eða ekki en benti á
að fáir eigendur eyddu meiru í sitt
lið í bandaríska hafnaboltanum en
eigendur Boston Red Sox.
Stuðningsmenn, leikmenn
og stjóri Liverpool geta nú
farið að einbeita sér að fullu að
Merseyside-grannaslagnum á
móti Everton á Goodison Park
á morgun. Liðin eru í 17. og 18.
sæti ensku deildarinnar og því er
leikurinn upp á líf og dauða fyrir
Liverpool-félögin.
„Þetta eru mjög jákvæðar
fréttir og þetta er góður dagur
fyrir klúbbinn. Það munu allir hjá
félaginu bjóða nýja eigendur vel-
komna,“ sagði Roy Hodgson, stjóri
Liverpool. „Þetta er mikill léttir
því þetta hafa verið mjög erfiðar
vikur,“ bætti Hodgson við.
„Ég vona að nýju eigendurnir
komi með stöðugleika inn í félag-
ið og gefi okkur tækifæri til að
einbeita okkur að fótboltanum.
Það mikilvægasta er þó að losna
við skuldirnar,“ sagði Hodgson,
sem fær væntanlega tækifæri til
að bæta við leikmannahópinn í
janúarglugganum.
John W. Henry ætlar ekki að
mæta á Goodison Park á morgun
því að hann vill að fyrsti leikurinn
sinn sé á Anfield. Stuðningsmenn
Liverpool fá því væntanlega tæki-
færi til að taka á móti nýja eig-
andanum þegar Blackburn Rov-
ers kemur á Anfield 24. október
næstkomandi. ooj@frettabladid.is
FÓTBOLTI Árangur íslenska U-21
landsliðs karla í knattspyrnu þegar
það tryggði sér sæti í úrslitakeppni
EM er glæsilegur en ekki einsdæmi
í sögu íslenskrar knattspyrnu.
Þetta er þó í fyrsta sinn sem Ísland
kemst í úrslit Evrópumeistaramóts
í þessum aldursflokki.
Alls hafa íslensk knattspyrnu-
landslið fjórtán sinnum komist í
úrslitakeppni Evrópumeistara-
móts í öllum aldursflokkum. En
þar með er ekki öll sagan sögð þar
sem fyrirkomulagið á bæði undan-
og úrslitakeppnum mótanna hefur
breyst mikið í gegnum tíðina.
U-17 lið karla hefur oftast kom-
ist í úrslit EM, sjö sinnum alls.
Fyrst árið 1985 og síðast 2007. Í
fyrstu þrjú skiptin þurfti Ísland
að spila við aðeins einn andstæð-
ing í undankeppninni og tvo and-
stæðinga í næstu þrjú skipti.
Það var aðeins árið 2007 sem
Ísland þurfti að fara í gegnum und-
ankeppni eins og þekkist í öllum
aldursflokkum í dag. Ísland lék
í tveimur fjögurra liða riðlum í
undankeppninni gegn stórþjóðum
eins og Frakklandi, Portúgal og
Rússlandi.
U-19 lið karla hefur þrisvar
komist í úrslitakeppni. Fyrstu
tvö skiptin, 1973 og 1974, mætti
Ísland einu liði í undankeppninni
(Lúxemborg 1973 og Írlandi 1974)
og komst áfram eftir samanlagð-
an sigur þar sem leikið var heima
og að heiman. Árið 1997 var
úrslitakeppnin haldin á Íslandi
og þurfti því íslenska liðið ekki
að taka þátt í undankeppni.
Í kvennaflokki hefur U-19 ára
lið Ísland tvisvar komist í úrslit
EM; árið 2007 sem gestgjafar og
tveimur árum síðar í gegnum
tvöfalda riðlakeppni, líkt og U-
17 lið karla gerði árið 2007. Þar
höfðu íslensku stúlkurnar betur
gegn stórþjóðum í kvennaknatt-
spyrnu á borð við Svíþjóð og
Danmörku.
A-lið kvenna komst svo í úrslit
EM í Finnlandi í fyrra eins og
frægt er. Undankeppnin þá var
með svipuðu fyrirkomulagi og
hjá U-21 liði karla nú, en Ísland
tók þá þátt bæði í riðlakeppni og
umspili.
Fyrirkomulag úrslitakeppn-
innar hefur einnig breyst í gegn-
um árin. Áður komust sextán lið
í úrslitakeppni EM í flokki yngri
landsliða karla en aðeins átta nú.
Helsti munur á árangri U-21
liðsins nú og yngri karlalands-
liða frá 1973 til 1998 er að undan-
keppnin er orðin talsvert erfiðari,
auk þess sem færri lið komast í
sjálfa úrslitakeppnina. - esá
Árangur U-21 landsliðs karla er ekki einsdæmi hjá íslenskum landsliðum:
Fjórtán sinnum í úrslitakeppni EM
KOLBEINN AFTUR Í ÚRSLITAKEPPNI Kol-
beinn Sigþórsson var í U-17 liði Íslands
sem keppti til úrslita á EM í Belgíu árið
2007. FRÉTTABLAÐIÐ/ALEKSANDAR DJOROVIC
KÖRFUBOLTI Örvar Þór Kristjáns-
son mun taka við liði Fjölnis í Ice-
land Express-deild karla af Tóm-
asi Holton en Örvar hefur skrifað
undir þriggja ára samning við
Grafarvogsliðið.
„Mér fannst vera rétti tím-
inn núna til að stökkva á þetta og
ákvað að henda mér út í alvöruna
þegar svona gott tækifæri bauðst,“
segir Örvar sem var við þjálfun í
yngri flokkum í Njarðvík. „Ég er
búinn að vinna í mörg ár í yngri
flokkunum í Njarðvík. Ég fékk
Friðrik Ragnarsson til að taka við
pjökkunum mínum, ég kem til með
að sakna þeirra en skil þá eftir í
góðum höndum.“
Í Fjölnisliðinu eru margir
lykilmenn yngri landsliða Íslands
undanfarin ár. „Þetta er rosalega
spennandi lið og það hefur verið
unnið gott starf í yngri flokkun-
um í Grafarvogi í gegnum árin.
Maður hefur alveg tekið eftir því
í starfinu mínu í yngri flokkum.
Þetta er mjög spennandi og krefj-
andi verkefni. Markmiðssetning
og annað kemur bara í ljós en
næsta markmið er bara að vinna
leikinn á móti Hamri á mánudag-
inn,“ segir Örvar sem hefur verið
í sambandi við fyrirrennara sinn.
„Tómas Holtin er mikill heiðurs-
maður og ég hef fengið að spjalla
við hann. Hann er ekkert nema
hjálpsemin uppmáluð,“ segir
Örvar. Tómas Holton stjórnaði
Fjölni í tveimur fyrstu leikjunum
en ákvað síðan að hætta með liðið
en áður hafði Bárður Eyþórs-
son einnig hætt óvænt með liðið
í sumar.
„Ég veit að bæði Bárður Eyþórs-
son og Tómas Holton eru færir og
góðir þjálfarar. Auðvitað er það
erfitt fyrir leikmennina að vera
að breyta alltaf um þjálfara en
þessir hafa skilað þessum strák-
um miklu. Ég sá það bara á strák-
unum á æfingu í gær að þeir eru
hvergi bangnir. Núna er þetta
komið í mínar hendur og það er
mitt og strákanna að vinna úr því
og við erum bara brattir,“ segir
Örvar að lokum. - óój
Örvar Þór Kristjánsson tekinn við karlaliði Fjölnis:
Rosalega spennandi
ÖRVAR ÞÓR KRISTJÁNSSON Mættur á
fyrstu æfingu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VALUR OG OLDENBURG mætast í Evrópukeppni kvenna í tveimur leikjum um helgina. Handknattleiks-
deild Vals og Krabbameinsfélagið hafa nú tekið höndum saman til stuðnings árvekniverkefninu Bleiku slaufunni,
sem snýr að baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. 10 prósent af andvirði hvers miða á leikina renna til
Krabbameinsfélagsins. Leikirnir fara fram í Vodafonehöllinni, í dag klukkan 17 og á morgun klukkan 20.
NÚ ER
TVÖFALT
MEIRA
Í VINNING
EN Á-DUR!
I I
!
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
ÚRV.D.
ÚRV.D.
1. D.
Arsenal - Birmingham
Bolton - Stoke
Fulham - Tottenham
Man. Utd. - WBA
Newcastle - Wigan
Wolves - West Ham
AIK - Gefl e
Crystal P - Millwall
Leicester - Hull
Portsmouth - Watford
QPR - Norwich
Reading - Swansea
Sheffi eld Utd. - Burnley
76.000.000
28.500.000
22.800.000
47.500.000
ENSKI BOLTINN 16. OKTÓBER 2010
41. LEIKVIKA
(13 R.)
(12 R.)
(11 R.)
(10 R.)
Stærstu nöfnin eru í Enska
boltanum og nú er potturinn
orðinn ennþá stærri. Vertu með
og tippaðu fyrir kl. 13 í dag.
SÖLU LÝKUR 16. OKT. KL. 13.00
1 X 2
TIPPAÐU Á NÆSTA SÖLUSTAÐ EÐA Á 1X2.IS
Sápuóperan er á enda
Eigendur bandaríska hafnaboltaliðsins Boston Red Sox eignuðust loksins Liver-
pool í gær eftir margra daga lagaflækjur í boði gömlu eigendanna. „Við erum
hingað komnir til að vinna,“ sagði nýi eigandinn John W. Henry.
MIKIL LÆTI Martin Broughton, stjórnarformaður Liverpool, og nýi eigandinn John W. Henry tala við fjölmiðlamenn. MYND/AP
Saga sölunnar á Liverpool
16. apríl Hicks og Gillett setja Liverpool
í sölu.
4. október Liverpool fær tvö góð tilboð
frá Bandaríkjunum og Asíu.
5. október Hicks og Gillett reyna að
koma Purslow og Ayre út úr stjórninni.
6. október Stjórn Liverpool ákveður að
selja félagið til NESV fyrir 300 milljónir
punda.
8. október Enska úrvalsdeildin sam-
þykkir yfirtöku NESV.
13. otkóber Hæstiréttur í London
dæmir söluna löglega.
13. október Hicks og Gillett fá lögbann
á söluna hjá dómstól í Texas.
14. október Hæstiréttur dæmir lög-
bann Hicks og Gillett ógilt.
15. október Hicks og Gillett draga til
baka lögbannið í Texas.
15. október NESV eignast Liverpool.