Morgunn


Morgunn - 01.12.1945, Side 11

Morgunn - 01.12.1945, Side 11
M O R G U N N 89 árangri? Slík spurning væri yfirfljótanlegt efni íyrir margfalt meira mál eða lengri ritgjörð, en ég hef hér með höndum. Eg ber upp spurninguna til að benda að- eins á eitt atriði, sem þó er ef til vill eitt hið þýðingar- mesta. Þetta atriði er, að þrátt fyrir það að flest, líklega öll, trúai’brögð játa trú á framhaldslíf eftir þetta, þá sýna játendur þeirra með öllu athafnalífi sínu í heild, að þeir gjöra ekki ráð fyrir, að neitt taki við ái 'eftiir. Þeir kappkosta að eignast svo mikið, sem þeir geta, af þessum sýnilega heimi og gæðurn hans, en gleyma því, sem Galíleumaðurinn sagði, að það gagnar ekki að vinna allan heiminn en bíða tjón á sálu sinni. Gáfaður, ungur prestur segir í grein í Kirkjuritinu: Gjöra má ráð fyrir því, „að allir kristnir menn séu sannfærðir um, að lífið haldi áfram“. Eg undraðist satt að segja þessi orð, því að ég hygg að hann hljóti að vita, að þetta er ekki rétt, vér vitum það allir. Margir hafa sagt okkur það sjáifir, og hinir þó fleiri, sem vér af ýmsum kennimei’kjum geium ráðið það um. Hitt mun réttara, að þar er að finna að- alþi’öskuldinn fyrir því, að kristindómurinn hefur enn ekki náð fullkomnari áhrifaþroska eftir svo margar aklir og þó svo mikið starf. Hugsurn oss, að það væri hverjum manni ljóst, að hver athöfn hans, hver lífsstefna, sem hann tekui’, og viðhoi’f t. d. gagnvai’t öðrum mönnum, sé und- irbúningur undir eftii’komandi líf eða einhvern þátt úr því, hvílík bi’eyting mundi þá vei’ða á öllu kristindóms- yfii’bi’agði heimsins. Hversu miklu meiri tökum mundi hann ná á flestum eða öllum sviðum mannlífsins, þar sem hann nú á þeim flestum er að litlu metinn og þykir lítið tillit þurfa til hans að taka í viðskiptum einstakiinga og þjóða, nerna á yfirborði eða að yfirvai-pi, t. d. í stjórn- málum eða alþjóðaviðskiptum, svo að jafnvel fjölda mann- di’áp styi’jaldanna og níðingsverk á varnai’leysingjum eru framin sem væri það löghelgar athafnir og kristlegar. En þótt það væri rétt, að allir kristnir menn séu sann- færðir um framhaldslíf, þá mundi það ekki nægja. Kristn-

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.