Morgunn - 01.12.1945, Blaðsíða 14
92
MORGUNN
komið undir því, sem einhver heldur eða trúir, heldur
vera þekkingareign alls mannkynsins á sinn hátt og sama
hátt eins og gangur himintunglanna, svo að engum detti
í hug að efast, fremur en um að sólin kemur upp og geng-
pr undir á hverjum degi. Þegar vissan er þannig orðin
samgróin manninum, þá er hún ekki lengur að eins sann-
færing einstakra manna, presta eða trúarflokka, heldur
sameign alls mannkynsins, þá veit hann, að það gagnar
honum ekki að vinna allan heiminn, en bíða tjón á sálu
sinni.
Mannkynið hrópar á hjáip; hefur reyndar altaf verið að
gjöra það, en þó sjálfsagt aldrei fremur en nú á þessum
hryllilegu styrjaldartímum, er angistin og neyðin hefur
orðið svo óumræðileg. — Og Guð hefur alltaf verið að
hjálpa og birt það í opinberun trúarbragðanna. Það er
óaðgengileg hugsun, að Guð hjálpi á einum tíma og hafi
ekki síðan önnur ráð. Hitt er nær, scm trúarskáldið seg-
ir: ,,Þótt glögg sé ei leiðin, á Guð þinn nógleg ráð ....
og velji hann ekki mína og vilji ekki þína, hann vill og
velur sínar og vantar aldrei ráð“. Og mundi hann ekki á
þessum tíma sérstaklega vera að hjálpa með opinberun
þessarar nýju þekkingar, að hún sé send til bjargar mann-
kyninu. Ekki með því að hrinda kristindóminum úr sessi,
heldur styrkja hann til að fullkomna verk sitt.
Jeg enda þá mál mitt með því að taka fram, að þetta
halda þeir. sem dýpst hafa hugsað þetta .mál og ég vil
gjarnan geta fylgt þeim, ég held þeir hafi rétt fyrir sér.
G. Lindsay Johnson, höfundur hinnar miklu bókar:
The Great Problem (Hið mikla úrlausnarefni), bókar,
sem vegna efnisauðlegðar sinnar og yfirgripsmiklu og ít-
arlegu skýringar á öllum sálrænum fyrirbrigðum, mætti,
að ætlun minni og ég held margra, mega flestum bókum
fremur kallast biblía sálarrannsóknanna og spiritismans
— hann segir í niðurlagi formála fyrir bókinni: „Eg hygg"
að spiritisminn í jTirgripsmestu merking (widest and
fullest sense) sé eina bjargráðið (remedy). Það er sú