Morgunn - 01.12.1945, Blaðsíða 79
MORGUNN
157
ótrúlegum örðugleikum bundið fyrir þá, sem nú eru að
leita vor með fræðslu frá hinum heiminum, að koma
fræðslu þannig til vor, að vér fáum rétta hugmynd um
hlutina. Þetta á sér ekki hvað sízt stað um fræðsluna, sem
verið er að reyna að koma til vor um ástand framliðinna
og lífsskilyrðin, sem þeir búa við. En vér vonum hins vegar,
og teljum oss hafa skynsamlega ástæðu til að ætla, að þeir
tímar komi, að mennirnir, sem þá byggja jörðina, verði það
þroskaðri en vér erum nú, að þeir verði færir um, að veita
viðtöku meira at' sannleikanum, og að auðveldara verði þá
en nú fyrir leiðtogana frá hinum heiminum, að koma til
mannanna fræðslu, sem gefi þeim réttari hugmyndir.
Þróunin Alda þróunarinnar mun óhikað halda
verbur ekki sinni rás. Þrátt fyrir allar þær milljónir
stöðvuö ára, sem vísindamennirnir segja oss að
mannkynið hafi lifað á jörðunni, er mað-
urinn enn eins og barn, sem er að smáþreifa sig fram í
áttina að miklum og undursamlegum hlutum. Vér furðum
oss á því, hve leiðin sækist seint til meiri þekkingar, þegar
vér minnumst þess, að mannkynið er enn í sumum greinum
þekkingarinnar á sama stiginu, eða líku, og forfeður vorir
voru fyrir þúsundum ára. Því er stundum haldið fram, að
þrátt fyrir allar tilraunirnar, sem búið er að gera með
miðlana í áratugi, og þrátt fyrir allar spurningarnar, sem
búið er að leggja fyrir hin ósýnilegu vitsmunaöfl, sem af
vörum transmiðlanna mæla og tjá sig að vera framliönir
.menn, sé það hverfandi lítið, sem vér vitum um heiminn,
sem þessar verur segjast byggja. Þessi fullyrðing stafar
af tvennskonar miskilningi. í fyrra lagi af þekkingarleysi
á því, sem fram hefir komið í þessum efnum. Fjölda bóka
er þegar búið að birta um lífið eftir dauðann, og þótt ckki
beri ævinlega saman um alla hluti, sem ekki er að vænta,
þar sem margar og ólíkar verur standa á bak við efni
þeirra, má fá í þeim mikinn og merkilegan fróðleik, fróð-
leik, sem hlýtur að hafa meira sannleiksgildi vegna þess,