Morgunn - 01.12.1945, Blaðsíða 46
124
MORGUNN
„Líttu aftur á. Það er annar að koma.“
Ég gerði það, og nú sá ég andlit Ypres lávarðar myndast
greinilega og glöggt. Hann horfði alvarlegur á mig, miklu
alvarlegri en þegar hann kom í fyrra skiptið hjá Sir
Walter. f þetta skiptið sagði hann ekkert við mig fremur
en í hið fyrra. En af návist hans, og raunar af Sir Walters
einnig, fylltist ég sterkri rósemi og öryggistilfinningu, og
ég þóttist þess fullviss, að hin mikla reynsla Ypres lá-
varð í stríðinu 1914—18 mundi gera hann færan um
að verða til rnikils gagns í hinum andlega heimi, og einnig-
til að hjálpa okkur í þessu stríði.....
Sir Walter kom nokkurum sinnum fram á sama hátt,
maður vinkonu minnar kom einnig og hafði aðra vini
með sér, sem ég hafði ekki þekkt, en vinkona mín kann-
aðist óðara við af lýsingum mínum. Af þessu drógum við
þá ályktun, að þau væru öll að búa sig undir eitthvað, sem
þau gætu ekki skýrt okkur frá, en vildu hinsvegar, að við
værum við því búnar, hvað sem það kynni að vera, vær-
um rólegar og staðfastar.
Eufemía Waage þýddi.
Fjögur högg — fjögur ár.
Þorgeir Jóhannesson, bóndi að Túnsbergi í Hruna-
mannahreppi, fluttist þangað vorið 1929, en þá hét bær-
inn gamla nafnmu, Reykjadalskot. f Reykjadalskoti hafði
búið áður um 54 ára skeið Halldór Bjaniason. Var Hall-
dóri gamla jörðin hans frábærlega kær, en hann flutt-
ist þaðan fyrir elli sakir, til dóttur sinnar. að Þingdal
í Flóa.