Morgunn - 01.12.1945, Blaðsíða 69
MORGUNN
147
heilla heimsvelda hégómi og annað ekki. Fvrsti atbuvður-
inn var það, að hugmyndin um einn guð í alheiminum kom
fram. Annar var, þegar það siðalögmál kom fram, sem
finna má raunar víða, en er einkum bundið við nafn Jesú
frá Nasaret, siðalögmálið, sem greinir .manninn frá dýr-
inu. Hinn þriðji mesti atburðurinn var sá, að tjaldið rofn-
aði, sem skilur lífssvið vort frá hinu komanda. Þessa síð-
ustu, miklu opinberun erum vér að flytja. Blessaður sé sá,
sem þau forréttindi hlýtur. að vinna að framgangi þessa
verks.. sem augljóst er, að er frá Guði. Gætið yðar, gætið
yðar, að þér vinnið ekki gegn honum.
■J. A. þýddi.
Frú Thit Jensen.
Frú Thit Jensen er ein af kunnustu og merkustu
rithöfundum Dana. Um hana stóð löngum mikill styrr,
enda er hún bardagakona með afbrigðum og ótrauð, að
leggja inn á nýjar brautir, ef hún telur til heilla. Um
ritverk hennar eru menn engan veginn sammála, frekar
en annað, sem hana snertir, en ýmsir merkustu bókmennta-
menn og rithöfundar hafa á henni hinar mestu mætur
og bera á hana mikið lof, er þeir rita um hana, eins
og t. d. Kaj Munk.
Um þjóðfélagsmál tekur frú Thit Jensen til máls, hefir
flutt mikinn fjölda fyrirlestra um kvenréttindamálið, og
einnig um sálarransóknarmálið, sem hún ann af heilum
huga.
Síðustu ritverk hennar eru mestmegnis sögulegs efnis,
tekin úr miðaldasögu Danmerkur, og er nú verið að
lesa eitt hið merkasta þeirra í Ríkisútvarpinu hér, Stygge
Krumpen, sem segir frá átökum siðabótaraldarinnar í
Danmörku. Um þessi ritverk sín farast sjálfri henni
orð á þessa leið:
10