Morgunn - 01.12.1945, Blaðsíða 64
142
MORGUNN
og því er skynsamlegt, að gera ráð fyrir, að í hinu nýja
heimkynni séu möguleikar til að fullnægja þeim. Á að úti-
loka listamanninn fiiál því að stunda list sína, hljó.mlistar-
manninn frá því að stunda hljómlistina og rithöfundinn
frá því að túlka hugsanir sínar í bókum. Væri það gert,
yrði maðurinn blátt áfram að öðrum einstakling, svo
nátengd eru þessi störf hans því, sem býr í hans innsta
eðli. Skynsemi vor rís gegn slíkum hugmyndum. En þar
sem þessar listir eru stundaðar, verða einnig aðrir menn
að vera til að njóta þeirra, og það er svo, og þanriig
fáum vér sýn inn í hamingjusamt samfélag.
Látið yður ekki koma til hugar, að þetta hálf-efnis-
kennda himnaríki sé síðasta og æðsta stigið. Ekkert „síð-
asta“ er til. Vér vöxum, vér þroskumst æviskeið af ævi-
skeiði. En þetta er næsta stigið og lífið það er svo ham-
ingjuríkt, að vér megum vera þakklát fyrir það, þótt meiri
dýrð kunni að bíða vor síðar. Þetta tilverusvið er uppbót
fyrir erfiðleika jarðlífsins. Þetta er hvíldarstaður sítir
ferðina. Þetta er uppfylling á fyrirheitum Guðs, sem
sýnir oss réttlætið í öllum afskiptúm hans af oss.
Þetta er það, sem mennirnir hafa verðskuldað, ekki
allir, en langsamlega megnið af mönnunum. Allt þetta tal
um, að maðurinn sé í eðli sínum vondur og fallinn í synd,
er fullkominn þvættingur. Þegar búið er að draga frá alla
þá synd, sem er afleiðing af aðstæðunum, umhverfinu
og erfðunum, á enginn að vera hræddur að horfa á það,
hvernig metaskálarnar standa. Mennirnir hafa verið allt
of hæverskir, þegar þeir hafa verið að meta eigin verð-
leika sína. Flestir menn berjast drengilegri baráttu við
þá erfiðleika, sem mæta þeim í lífinu. Þeim er ekki refsað
eftir dauðann, þeir fá það, sem þeir eiga skilið, þeir fá
réttlát laun, og þeir fá uppbót á jarðneska erfiðinu.
En hinsvegar getum vér ekki afneitað tilveru hins illa,
raunverulegri tilveru hins illa. Það er sjálfselskan og bún
er undirrót því nær allra þverbresta í skapgerð mannsins.
Það er grimmdin, og ekkert er eins illt og hún. Grimmd,