Morgunn - 01.12.1945, Blaðsíða 71
M 0 R G U N N
149
Á víð og dreif.
Eftir ritstj.
Úrelt Alda aukinnar þekkingar og skilnings síð-
sjónarmiö ustu 50 ára er sem örast að grafa undan
þeim höfuðstoðum, sem efnishyggja 19. ald
arinnar hvíldi á. Hinn kunni þýzki vísindamaður dr. Rudolf
Tischner vitnar í marga stéttarbræður sína þar í landi, sem
kemur saman um, að fjarhrif (telepathie) sé ekki til.
Heimspekingurinn Jodl segir ennfremur svo: „Það er fjar-
stæða og barnskapur, að láta sér detta í hug, að fjarhrifin
séu staðreynd. Ef það væri raunverulega svo,að hugsunin
gæti borizt frá einum huga til annars á'n nokkurrar hjálpar
frá líkamlegum tækjum, mundi það blátt áfram þýða hrun
allra hugmynda vorra um tilveruna. Ef svo sterkar sann-
anir fyrir fjarhrifum kæmu fram, að vér yrðum að viður-
kenna þær, yrðum vér samtímis að endurskoða allar gi-und-
vallarhugmyndir vorar“.
Þannig mæla efnishyggjuvísindamennirnir, sem gera
sér það fyllilega ljóst, að ef fjarhrifin eru staðreynd, ef
hugsunin getur flutzt milliliðalaust frá einum mannshjga
til annars, en grundvöllur efnishyggjunnar hruninn, og það
meiri og minni heimska allt, sem vísindi 19. aldarinnar
kenndu oss um efnið, og kenna oss raunar að nokkuru
leyti enn í dag.
Fjarhrifin Það er að verða stórkostleg breyting á
sannast þessu. Fyrir ekki ýkjamörgum árum feng-
ust vísindamenn og heimspekingar ekki
til, að fáum undanteknum, að rannsaka eða kvnna sér rök