Morgunn


Morgunn - 01.12.1945, Page 56

Morgunn - 01.12.1945, Page 56
134 M 0 R G U N N mestu opinberun trúarlegra sanninda, sem nokkurn tíma hefir verið veitt mönnunum. Gefum því aðeins gaum, hvað hér er um að ræða, ef hin sálræna þekking er sönn. Vér staðhæfum ekkert minna en það, að vér höfum getað bi'otist yfir sjálf landamæri dauð- ans, og að vér vitum, að þeir, sem áður fyrr lifðu hér á jörðu, hafa ekki breytzt hvað skapgerðinni viðkemur, aðeins lifi þeir, ef svo mætti að orði komast, á annari bylgjulengd en áður, lifi í öðrum sveiflum, þannig að í stað þess, að meðan þeir voru á jörðunni lifðu þeir í jarðneskum líkama, sem hefir hægar sveiflur, lifi þeir nú í ljósvaka- líkama, sem hefir svo örar sveiflur, að venjuleg líkamieg sjón getur ekki skynjað þær, alveg á sama hátt og margt í voru jarðneska umhverfi hefir svo örar sveiflur, að vér skynjum það ekki. 1 ljósbandinu eru sannanlega til litir, sem hafa svo örar sveiflur, að auga vort greinir þá ekki, og einnig eru til tónar, sem eyra vort grípur eki, af sömu ástæðum. Þessi dæmi eiga að nægja til þess að skýra, við hvað ég á. Vér höfum komizt að þeirri niðurstöðu, að þessir ljós- vakalikamir séu ekki einhversstaðar í auðu rúminu, ein- hversstaðar í auðum himingeiminum, en að hinn framliðni maður, sem í þessum líkama lifir eftir andlátið, hverfi af jörðunni inn í miklu margbrotnara, og oftast inn í miklu þroskaðra mannfélag, þar sem hann hefir sínum ákveðnu skyldum að gegna og fær að vinna störf, sem honum henta bezt til þess að þroska til fullnustu þá hæfileika, sem með honum búa, og veita honum heilbrigða lífsnautn. Oss er einnig sagt, að í þessum heimi ráði bönd sannrar samúðar og kærleika því, hverjir finnist þar aftur, eftir að jarðlífinu er lokið, og hinu, hverjir ekki hittist aftur þótt þeir hafi verið samvistum á jörðunni. Oss er sagt frá hamingjuríku samlífi þar, þar sem allt ósamræmi ein- staklinganna sé útilokað. Þótt þetta væri allt og sumt, sem þekking vor hefir flutt mannkyninu, væri það eitt stórkostlegt, geysilegt spor

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.