Morgunn


Morgunn - 01.12.1945, Page 58

Morgunn - 01.12.1945, Page 58
136 MORGUNN vér gerum, já, frá verum, sem eftir gamalli málvenju eru nefndar englar. Eftir þessum leiðum hefir til vor borizt straumar af and- legri þekkingu, sem oss virðist vera hvorttveggja í senn, skynsamleg og háleit. Vér tökum ekki slíkum orðsendingum gagnrýnilaust. Vér erum ekki skynsemdarlausir ofsatrúar- menn, ekki dramóramenn. Vér vegum og metum andaorð- sendingarnar með þeirri skynsemi, sem Guð hefir gefið oss, og vér erum vakandi á verði fyrir því, að þessar orð- sendingar geta litazt af hugarfari og skoðunum miðilsins, sem þær koma fram hjá. En þótt vér höfum allt þetta ræki- lega í huga, eru þessar orðsendingar svo sjálfum sér sam- kvæmar, svo viturlegar og hálleitar, að vér hikum ekki við að líta svo á, að þær geti gert eirs miklar kröfur til að teljast vera til vor komnar fyrir guðlegan innblástur og hvað annað, sem til mannanna hefir borizt á liðnum öldum. Vér höfum margar ástæður fyrir því, að telja þessa nýju vitneskju sannarlega yfirvenjulega, af ójarðneskum uppruna. I fyrsta lagi vegna þess, að þeim hefir fvlgt mikil rnergð af táknum og fyrirbrigðum, sem sannanlega eru yfirvenjuleg. Mörg þeirra fyrirbrigða eru svonefnd líkamleg fyrirbrigði, sem hafa verið rannsökuð og stað- fest af tugum þúsunda skarpskyggnva rannsóknarmanna, og hafa þeirra meðal verið margir frægir vísindamcnn. Þess væri óskandi, að þeir, sem afneita þessum staðreynd- um, vildu ómaka sig til að kynna sér vandlega sönnunar- gögnin, áður en þeir endurtaka afneitun sína. Mikið af sönnunargögnunum kemur einnig frá hinum svo nefndu hugrænu fyrirbrigðum, sem ekki þurfa hið venju- lega myrkur tilraunaherbergisins til þess að koma fram. Mikill fjöldi af trúverðugum vottum staðhæfa, að þeir hafi náð sambandi við vitsmunaverur, sem hafi fullkom- lega sannað þeim, að þær séu sálir framliðinna, sem þeir þekktu á jörðinni, en lifa ekki lengur þar. Það er ekki unnt, að þegja í hel hið ótrúlega magn sannanna í þessum efnum,

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.