Morgunn


Morgunn - 01.12.1945, Page 67

Morgunn - 01.12.1945, Page 67
M O R G U N N 145 myndin um, að maður eigi von á því að liggja í dvala um alda skeið til efsta dóms? Er þetta ekki einnig skynsamlegra en gamla hugmyndin um hina eilífu tilbeiðslu í himnaríki, sem vér erum vitanlega á engan hátt hæf til að iðka enda- laust, eða hugmyndin um hið eilífa helvíti, sem ekki á þó að hreinsa sálina og þroska, heldur aðeins að þjóna mark- miði refsingar Guðs? Og þó eru þetta hugmyndir um lífið eftir dauðann, sem kynslóð eftir kynslóð hefir getað að- hyllzt. Auk þess er þessi nýja heimspeki ekki fengin frá löngu liðnum vottum, og ekki fengin úr ritum, sem aldrei er hægt að þýða að nýju eftir frumheimildunum, án þess að fjöldi af villum komi í ljós og- nýjar og nýjar grun- semdir hljóti að vakna um falsanir og innskot. Þessi heimspeki er fengin frá orðsendingum, sem eru komnar beint til vor, orðsendingarnar eru studdar táknum og stór- merkjum, sem sannanlega eru ekki af jarðneskum upp- runa, og þær eru reistar á langt um háleitari siðgæðish.ug- myndum en fornaidarhöfundarnir þekktu. Þessar háleitu kenningar tjá sig vera komnar frá þroskuðum öndum, sem hafa öðlazt vísdóm sinn á öðrum tilverusviðum, og það er ástæða til að ætla, að svo sé, þegar haft er í huga, hve innihald kenninganna er fagurt og göfugt. Þegar það er staðhæft, að engar sannanir séu fyrir því, að þessar kenningar séu af ójarðneskum uppruna, er því til að svara, að slíkt hefir aldrei sannazt eins vel um nokkrar þær kenningar fyrri alda, sem talið er, að innblásnar séu frá öðrum heimi. En hvað er að segja um hina nýju kenning og kristin- dóminn? Það er Ijóst, að hún brýtur aldrei í bága við siða- kenning Krists. Svo að ég segi mína eigin reynslu, lýsi ég yfir því, að frá andaleiðtoga mínum, Pheneas, hefi ég fengið háleitari hugmyndir um kenning og persónu Krists en ég hefi fengið nokkursstaðar annarsstaðar frá. í þessum orðsendingum eru hin þröngu sjónarmið ekki til. 1 þeim finnst hvergi sú óhugnanlega hugmynd, að Guð styðji nokkra eina flokksklíku mannkynsins á móti annari. Það er 10

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.