Morgunn - 01.12.1945, Page 80
158
M 0 R G U N N
að það, sem í þessum bókum er sagt, er svo ólíkt í megin-
atriðum því, sem menn hafa áður hugsað sér um fram-
haldstilveruna og svo ólíkt í meginatriðum því, sem trúar-
brögðin hafa áður kennt um þá hluti í flestum greinum.
Einn af merkustu trúfræðingum fyrri alda sagði. „Credo,
auia absurdum“: Ég trúi vegna þess, að það er f.iarstæöaí
Margt af því, sem í þessum bókum segir um lífið eftir
dauðann, er í flestra manna augum fjarstæða, en það þarf
ekki að vera rangt íyrir því. Hefir ekki allflest það, sem vér
nú þekkjum og vitum að er veruleikur, einhverntíma verið
fjarstæða í augum mannanna? Vér þurfum ekki annað en
að renna augunum yfir tækni nútímans til þess að sann-
færast um það. Þegar Sir Oliver Lodge lét birta það í
hinni frægu bók sinni, Raymond,að sér hefði birzt sú
áreiðanlega vitneskja, að framliðnir .menn, sem skyndilega
hefðu farið jrfir landamærin, hefðu þegar yfir kom, í
þorsta sínum eftir hinum gömlu, jarðnesku na'utnum,
heimtað whisky og vindla, og að þeim hefði verið gefin
einhver eftirlíking af þeim hlutum til þess að friða þá, var
hellt yfir hann stórflóði af háði og hlátrum fyrir að birta
slíka vitleysu. Þarna var svo sem komin fjarstæðan, sem
öllum skynsömum mönnum hlaut að vera augljós! Vinir
hins fræga vísindamanns, sem séð höfðu handrit hans að
bókinni áður en það fór í prentun, vissu á hverju hann
mætti eiga von, þegar þetta kæmi fyrir almenningssjónir,
og þeir réðu honum eindregið til þess að fella þenna kafla
niður. Hinn frægi vísindamaður, sem hafði tamið sér
gi-andvara og hiklausa sannleiksþjónustu, svaraði vinum
sínum, að á hverju sem dyndi gæti hann ekki fellt þetta
úr bókinni, því að hann vissi, að þetta væri sannleikur. Ég
nefni þetta dæmi eitt, en gæti nefnt f jölda annarra dæma
þess, að lýsingarnar, sem koma fram gegn um miðlana, af
ástand framliðinna, ríða í berhögg við það, sem menn hafa
hugsað sér um þá hluti og af þekkingarleysi einu er hægt að
segja, að þrájtt fyrir miklar og margvíslegar spurningar um
lífið á næsta tilverusviðinu hafi fáu einu verið svarað.