Fréttablaðið - 13.11.2010, Page 2
2 13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Pétur, eruð þið alveg kexrugl-
aðir?
„Nei, við erum bara að reyna að
koma Sæmundi í sparifötin.“
Pétur Marteinsson og viðskiptafélagar
hans eru að standsetja gistiheimili í
gömlu kexverksmiðju Frón við Skúlagötu.
LÖGREGLUMÁL Tuttugu og þriggja ára karlmaður
sem réðst á unga stúlku í Laugardal í síðasta mán-
uði hefur verið handtekinn og úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 10. desember að kröfu lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu. Varðhaldið er á grundvelli
almannahagsmuna.
Maðurinn var handtekinn í fyrradag og hús-
leit gerð heima hjá honum. Þar fundust gögn sem
tengdu hann við verknaðinn. Hann játaði í kjölfar-
ið að hafa ráðist á sextán ára stúlku á göngustíg í
Reykjavík.
Málið vakti þá mikinn óhug enda átti árásin sér
stað um miðjan dag. Stúlkan hlaut slæma áverka
á höfði og komst við illan leik upp á Suðurlands-
braut þar sem vegfarandi kom henni til aðstoðar og
hringdi á sjúkrabíl. Maðurinn og stúlkan munu ekki
hafa þekkst samkvæmt upplýsingum Fréttablaðs-
ins. Árásin var fólskuleg og algjörlega fyrirvara- og
tilefnislaus. Maðurinn hefur borið við minnisleysi
vegna fíkniefnaneyslu í skýrslutökum hjá lögreglu.
Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn hefur verið kærður
til Hæstaréttar. - jss
Maður sem réðist á sextán ára stúlku handtekinn og úrskurðaður í varðhald:
Játaði árás á stúlku í Laugardal
BAK VIÐ LÁS OG SLÁ Árásarmaðurinn situr nú í gæsluvarðhaldi.
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært tæplega þrítuga íslenska
konu fyrir fimmtíu milljóna króna
fjárdrátt úr sjóðum sendiráðs
Íslands í Vín.
Konunni er gefið að sök að hafa
á tímabilinu frá 2. mars til 6. okt-
óber 2009 dregið sér samtals 336
þúsund evrur, jafnvirði um 50
milljóna króna, af reikningi sendi-
ráðsins sem hún hafði prókúru
fyrir.
Hámarksrefsing fyrir fjárdrátt
er sex ára fangelsi, en konan er
jafnframt ákærð fyrir brot á 138.
grein almennra hegningarlaga um
brot í opinberu starfi, sem kveður
á um að heimilt sé að þyngja refs-
inguna um helming misnoti opin-
ber starfsmaður stöðu sína til að
brjóta af sér.
Utanríkisráðuneytið krefur kon-
una um endurgreiðslu á fjármun-
unum, auk vaxta. - sh
Kona ákærð fyrir fjárdrátt:
Stal milljónum
af sendiráðinu
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært pilt undir tvítugu fyrir
brot sem hann framdi á Reyðar-
firði í mars á þessu ári. Pilturinn
er meðal annars ákærður fyrir
að hafa ekið ölvaður og sviptur
ökuréttindum. Síðan að hafa kýlt
lögreglumann í bifreið á leið á lög-
reglustöðina á Eskifirði.
Ekki lét pilturinn þar staðar
numið því hann er einnig ákærður
fyrir að hafa kýlt lögreglumann
og lögreglukonu í andlitið þegar
komið var út úr bílnum. Lögreglu-
maðurinn skall í götuna við högg-
ið. Þá sparkaði maðurinn í aftur-
rúðu lögreglubílsins með þeim
afleiðingum að hún brotnaði. - jss
Piltur undir tvítugu ákærður:
Sló lögreglu-
mann í götuna
STJÓRNMÁL „Ég mun þrýsta á for-
seta að fá þetta á dagskrá sem
fyrst,“ segir Árni Þór Sigurðsson,
þingmaður Vinstri grænna, í kjöl-
far birtingar utanríkisráðuneyt-
isins á skjölum er varða stuðning
Íslands við innrásina í Írak 2003.
Árni Þór er frummælandi
þingsályktunartillögu 30 þing-
manna úr öllum flokkum nema
Sjálfstæðisflokknum um að kosin
verði nefnd sem rannsaki aðdrag-
anda ákvörðunar um stuðning
Íslands við innrásina. Samkvæmt
tillögunni á nefndin að fá í hendur
öll gögn stjórnvalda og heimild til
að krefja málsaðila svara. - bþs
Þingsályktun um rannsókn:
Íraksrannsókn
komi á dagskrá
RANNSÓKN Tillaga 30 þingmanna
gengur út á að stofnuð verði rannsóknar-
nefnd um Íraksmálið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Karlmaður á fimmtugs-
aldri hefur verið dæmdur í átta
mánaða fangelsi og sviptingu
ökuréttar ævilangt. Hann var
sakfelldur fyrir margvísleg brot,
einkum fíkniefnabrot.
Maðurinn var fyrst dæmdur
í skilorðsbundið fangelsi 1983
fyrir hegningar- og umferðar-
lagabrot. Síðan þá hefur hann
verið dæmdur sextán sinnum
í fangelsi í samtals 147 mánuði
fyrir ýmis brot, auk sekta.
Síðast var hann dæmdur í tíu
mánaða fangelsi 20. maí 2009. - jss
Síbrotamaður í fangelsi:
147 mánaða
fangelsisdómar
VIÐSKIPTI Jóhannes Jónsson, löng-
um kenndur við Bónus, gekk í gær
frá kaupum á helmingshlut í níu
verslunum SMS
í Færeyjum, þar
af fimm Bónus-
búðum.
Verðmæti
hlutarins nemur
450 milljón-
um króna og
keypti Jóhann-
es hann í félagi
við erlenda fjár-
festa ásamt því
að taka lán fyrir hlut sínum.
„Maður þurfti að fá lán, ég átti
ekki fyrir þessu, því miður,“ segir
Jóhannes. Hann vildi í gær ekki
gefa upp hverjir meðfjárfest-
ar hans eru, segir það verða gert
þegar gengið verður endanlega
frá viðskiptunum og skipting eign-
arhluta liggur fyrir. - jab
Jóhannes kaupir í Færeyjum:
Eignast aftur
hluta af Bónus
JÓHANNES
JÓNSSON
SEÚL, AP Ekki náðist sátt meðal leiðtoga G20 ríkjanna
svokölluðu, tuttugu stærstu hagkerfa heims, um hug-
myndir Bandaríkjamanna um að þrýsta á Kínverja
að þeir sjái til þess að kínverska júanið styrkist.
Leiðtogar ríkjanna funduðu í gær og fyrradag í
Seúl í Suður-Kóreu um stöðu alþjóðahagkerfisins.
Umræður um ójafnvægi í alþjóðaviðskiptum voru
áberandi en margir hafa áhyggjur af þeim gríðar-
lega mun sem er á viðskiptaafgangi ríkja á borð við
Kína og Þýskalands og viðskiptahalla ríkja svo sem
Bandaríkjanna.
Í sameiginlegri yfirlýsingu sem gefin var út í lok
fundarins og bæði Barack Obama, forseti Banda-
ríkjanna, og Hu Jintao, forseti Kína, skrifuðu undir,
kom fram áheit um að berjast gegn verndarstefnu
auk þess sem búa skyldi til viðmiðunarreglur um við-
skiptajöfnuð ríkja. Væru þær reglur hugsaðar sem
grundvöllur umræðna um ójafnvægi í alþjóðavið-
skiptum.
Bandaríkjamenn höfðu í aðdraganda fundarins
gagnrýnt kínversk stjórnvöld fyrir að halda gengi
kínverska júansins óeðlilega lágu og þar með veita
kínverskum fyrirtækjum samkeppnisforskot sem
bandarísk fyrirtæki gætu ekki keppt við. Sterkara
júan myndi þýða lækkun á viðskiptahalla Bandaríkj-
anna við Kína en spár benda til þess að hallinn verði
238 milljarðar dollara á þessu ári og hefur hann
aldrei verið hærri. - mþl
Leiðtogar 20 stærstu hagkerfa heims funduðu í Seúl í Suður-Kóreu:
G20 ríkin ósammála um aðgerðir
SEÚL Í GÆR Barack Obama ásamt Lee Myung-bak, forseta
Suður-Kóreu, og Stephen Harper, forsætisráðherra Kanada.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Sautján ára piltur sem
býr í Skipalóni í Hafnarfirði þarf
að flytja út af heimili sínu þar sem
blokkin sem hann býr í er eingöngu
ætluð fyrir fimmtíu ára og eldri.
Faðir piltsins keypti íbúðina í
apríl á þessu ári af Íslandsbanka
sem eignast hafði fjölda óseldra
íbúða í húsinu skömmu áður. Hann
leigði sautján ára syni sínum íbúð-
ina. Pilturinn flutti síðan inn ásamt
51 árs móður sinni.
Aðrir íbúar hússins hafa ekki
sætt sig við veru piltsins í blokk-
inni og óskaði húsfélagið strax
eftir því við föður hans að hann
sæi til þess að drengurinn flytti út.
Faðirinn vildi ekki verða við því
og fór málið þá fyrir Kærunefnd
húsamála.
Fyrir kærunefndinni vísaði hús-
félagið til þess að kvöð væri á hús-
eigninni um að þar mættu aðeins
þeir búa sem væru fimmtíu ára og
eldri. Faðirinn sagði að í kvöðum
á eigninni væri talað um að húsið
væri „sérstaklega ætlað“ fimmtíu
ára og eldri en að þess væri hvergi
getið að íbúarnir „skuli“ vera eldri
en fimmtíu ára. Hann vísaði einnig
til ákvæðis í stjórnarskrá um frið-
helgi eignarréttarins.
Kærunefndin kemst að þeirri
niðurstöðu að óheimilt sé að leigja
eða lána íbúðir í húsinu til einstakl-
inga sem séu yngri en fimmtíu ára.
Kvöðin um aldursmörkin hafi legið
skýrt fyrir. „Tilgangur kvaða sem
þessara er að tryggja sérstaklega
næði og ákveðið sambýlismunstur
og í því skyni undir gangast kaup-
endur skerðingu á afnota- og ráð-
stöfunarrétti sínum,“ segir kæru-
nefndin.
Álit kærunefndarinnar er ekki
bindandi fyrir aðila málsins. Guð-
mundur Þór Bjarnason, lögmað-
ur húsfélagsins, segir húsfélagið
nú eiga þann möguleika að vísa í
ákvæði fjöleignarhúsalaga. „Þar
eru ákvæði um úrræði húsfélags-
ins við brotum umráðamanna eða
eigenda. Þetta gæti hugsanlega
flokkast undir slíkt brot og þá
væri hægt að beita þeim ákvæð-
um. En síðan eru það einfaldlega
almennir dómstólar,“ útskýrir
Guðmundur.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins stefnir þó ekki í að deil-
an gangi lengra. Innan seilingar
mun vera sátt sem gengur út á að
mæðg inin flytji úr íbúðinni. Eftir
því sem Fréttablaðið kemst næst
er þetta mál það fyrsta sinnar teg-
undar sem upp hefur komið.
gar@frettabladid.is
Amast við táningi í
húsi 50 ára og eldri
Kærunefnd húsamála segir að manni sem á íbúð í fjölbýlishúsi fyrir fimmtíu
ára og eldri sé óheimilt að leigja 17 ára syni íbúðina. Álit kærunefndarinnar er
ekki bindandi en sonurinn hyggst þó flytja áður en til kemur til kasta dómstóla.
SKIPALÓN 16-20 Fjölbýlishús ætlað fyrir fimmtíu ára og eldri. Maður einn keypti íbúð
í húsinu og í henni býr barnsmóðir hans og sautján ára sonur þeirra.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SPURNING DAGSINS
– Þú finnur fjölda girnilegra uppskrifta að kvöldmatnum á www.gottimatinn.is