Fréttablaðið - 13.11.2010, Qupperneq 8
8 13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
1. Hverju heldur eðlisfræðingur-
inn Páll Theodórsson fram í nýrri
Skírnisgrein?
2. Hver hefur tekið við stjórn kyn-
ferðisafbrotadeildar lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu?
3. Hver er talsmaður Wikileaks?
SVÖR
1. Að landnám Íslands hafi hafist löngu
fyrir 870. 2. Björgvin Björgvinsson,
yfirlögregluþjónn. 3. Kristinn Hrafnsson,
blaðamaður.
SVÍÞJÓÐ Peter Mangs, 38 ára Svíi
sem er grunaður um eitt morð og
nokkrar skotárásir í Malmö und-
anfarið ár, óttast að innflytjend-
ur muni yfirtaka sænskt sam-
félag, er haft eftir föður hans í
netútgáfu sænska blaðsins Afton-
bladet. Mangs er jafnframt grun-
aður um morð sem framin voru í
nágrenni borgarinnar árið 2003.
Sænsk lögregluyfirvöld gefa
takmarkaðar upplýsingar um
Mangs sem var handtekinn fyrir
viku. Aldur hans hefur verið
staðfestur en myndbirtingar fjöl-
miðla eru harðlega gagnrýndar
þar sem lögregla telur þær tor-
velda rannsókn málsins.
Mangs neitar sök en samkvæmt
sænskum fjölmiðlum hefur lög-
reglu tekist að tengja annað af
tveimur skotvopnum sem fundust
á heimili hans við árásirnar.
Eins og komið hefur fram eru
árásirnar í öllum tilvikum, nema
einu, gegn fólki af erlendum upp-
runa. Þá var ungur Svíi skotinn í
bíl sínum. Farþegi í bílnum var
af erlendum uppruna. Alls eru
fimmtán skotárásir til rannsókn-
ar. Mangs er grunaður um aðild
að átta árásum hið minnsta.
Árásirnar hófust í októb-
er. Síðan þá hefur verið ráðist
á fólk fyrirvaralaust við dag-
legar athafnir. Eitt fórnarlamb
var skotið í gegnum rúðu á lík-
amsræktarstöð. Aðrir hafa verið
skotnir við strætóbiðstöðvar og í
bílum sínum. Ráðist hefur verið á
fólk við bænastaði múslíma. Í síð-
asta mánuði flúði árásarmaður-
inn á reiðhjóli eftir átök við fórn-
arlamb sitt; hárgreiðslumann frá
Íran.
Morðin árið 2003 eiga margt
sammerkt með skotárásunum
í Malmö undanfarna mánuði.
Mennirnir, sem voru 66 ára og 23
ára, tengdust ekki á neinn hátt og
voru skotnir í og við heimili sín.
Báðir voru skotnir með 9 milli-
metra skammbyssu. Hins vegar
var eldri maðurinn rændur ólíkt
þeim yngri sem fannst með seðla-
veski sitt á sér.
Haustið 1991 fór maður að
nafni John Ausonius um Stokk-
hólm og Uppsali og skaut ellefu,
myrti einn og særði hina alvar-
lega. Í fyrstu notaði hann riffil
með leysigeislamiði og var kall-
aður Lasermaðurinn. Fjölmiðlar
hafa notað svipaða nafngift vegna
árásanna nú, enda svipar þessum
tveimur málum mjög saman.
Skotárásirnar hafa haldið
íbúum Malmö í heljargreipum á
undanförnum mánuðum. Um 290
þúsund manns búa á svæðinu.
Einn af hverjum þremur er af
erlendum uppruna og er aðskiln-
aður þjóðarbrota, sem talin eru
vera um 170 í borginni, mikill.
svavar@frettabladid.is
Óttast yfirtöku inn-
flytjenda í Svíþjóð
Peter Mangs, sem er í haldi lögreglu vegna skotárása á fólk af erlendum upp-
runa í Malmö, óttast að innflytjendur yfirtaki sænskt samfélag. Þetta er haft
eftir föður hans í fjölmiðlum. Mangs heldur staðfastlega fram sakleysi sínu.
PETER MANGS Fjölmiðlar hafa greint frá því að Mangs sé með Aspergerheilkenni sem flokkast með einhverfu. MYND/AFP
MALMÖ Í SUMAR Árásirnar hafa haldið borginni
í heljargreipum frá því í október í fyrra.
RÍKISREKSTUR Elín Björg Jónsdóttir,
formaður BSRB, telur að forstöðu-
menn ríkisstofnana ráði yfir öllum
tækjum sem þurfi til að tryggja
góða stjórnsýslu.
Í Fréttablaðinu í fyrradag sagði
frá könnun Ríkisendurskoðunar
sem bendir til að fáir forstöðu-
menn telji lög og reglur um starfs-
mannamál stuðla að skilvirkni í
ríkisrekstri. Um 40 prósent for-
stöðumannanna telja sig geta bætt
þjónustu með því að segja upp
hluta starfsmanna og ráða nýja
starfsmenn í þeirra stað.
Aðeins um helmingur forstöðu-
manna beitir
þó reglubundnu
frammistöðu-
mati við starfs-
mannastjórnun.
Fæstir þeirra
hafa sagt upp
starfsfólki eftir
þeim lögbundnu
leiðum sem þeir
hafa. Helstu
ástæður þess
eru sagðar hversu flóknar þær
leiðir eru.
„Það sem skín í gegn er að for-
stöðumenn eru ekki að nýta þær
leiðir sem eru þegar til staðar til
þess að reka sem besta stjórn-
sýslu,“ segir Elín Björg um þessar
niðurstöður. „Mér finnst það mjög
athyglisvert.“
Elín Björg vísar því á bug að
neikvæð viðhorf opinberra starfs-
manna til starfsmannalaga tor-
veldi ríkisrekstur og vekur athygli
á því að innan við helmingur for-
stöðumanna lætur fara fram form-
legt frammistöðumat.
„Það er eitthvað sem þeir þurfa
að skoða. Auðvitað vilja allir fara
vel með og skila góðu dagsverki.“
- pg
Formaður BSRB um könnun Ríkisendurskoðunar meðal forstjóra ríkisstofnana:
Nýta sér ekki tiltækar leiðir
ELÍN BJÖRG
JÓNSDÓTTIR
SANDGERÐI Gamla heilsugæslan
í Sandgerði hefur nú verið aug-
lýst til leigu sem verslunar- og
þjónusturými. Húsnæðið er á
annarri hæð Vörðunnar við Mið-
nestorg. Þetta kemur fram á vef
Víkurfrétta.
Samkvæmt vef Víkurfrétta
kostaði það bæjarsjóð Sandgerð-
isbæjar um tuttugu milljónir
króna að innrétta heilsugæslu-
stöðina á sínum tíma.
Rétt áður en heimilislæknarn-
ir áttu að flytja inn afþakkaði
heilbrigðisráðuneytið húsnæðið.
Varðan fær nýtt hlutverk:
Leigja út gömlu
heilsugæsluna
VEISTU SVARIÐ?
Grænumörk 10 - 810 Hveragerði
Sími: 483 0300 - www.hnlfi.is - heilsu@hnlfi.is
Heilsustofnun NLFÍ
Heilsuborg - Faxafeni 14 - 108 Reykjavík
Sími: 560 1010 - heilsuborg@heilsuborg.is
Streituskóli HNLFÍ og Heilsuborgar hefst með fyrirlestrum,
fimmtudaginn 18. og laugardaginn 20. nóvember
í húsnæði Heilsuborgar, Faxafeni 14, 108 Reykjavík.
Skjöldur og sverð
gegn streitu
Skráning fer fram í afgreiðslu Heilsuborgar eða í síma 560 1010.
Verð fyrir námskeiðið er kr. 55.000.
Fimmtudagur 18. nóvember
Kl.17.00-18.00 „Streita og slökun“ Magna Fríður Birnir hjúkrunarforstjóri HNLFÍ
Kl.18.00-18.45 „Hversu langt á að ganga í hollustunni“
Ingibjörg Gunnarsdóttir prófessor í næringarfræði við HÍ
Kl. 18.45-19.00 Kaffihlé
Kl. 19.00 – 20.00 „Ég sef illa“, hvað er til ráða?
Bryndís Benediktsdóttir dósent við læknadeild HÍ
Sérfræðingur í heimilislækningum og svefnsjúkdómum
Laugardagur 20. nóvember
Kl. 9.00-10.00 „Hreyfing og Streitulosun“
Guðrún Guðmundsdóttir, sjúkraþjálfari HNLFÍ
Kl. 10.00-11.00 „Streita og slökun.“ Magna Fríður Birnir, Hjúkrunarforstjóri HNLFÍ
Kl. 11.00-11.20 Kaffihlé
Kl. 11.20 -13.00 „Að meta eigin streitu og streituvalda“
Sigrún Ása Þórðardóttir, sálfræðingur og verkefnisstjóri á HNLFÍ
Dagskrá
Streituskóli HNLFÍ og Heilsuborgar
Innifalið í Streituskóla er:
andlegt sem líkamlegt og gefur ráðleggingar um æskilegar leiðir til að halda góðri
heilsu og fyrirbyggja heilsubrest.
líkamsgreiningartæki þar sem skoðuð er samsetning líkamans. Grunnbrennsla og hæfi-
leg orkunotkun er reiknuð út. Ráðleggingar um mataræði og heilsueflingu eru gefin.
heilsu. Ráðleggingar um æskilegar leiðir til að takast á við streituvalda og streitu-
einkenni. Unnið að gerð einstaklingshæfðar meðferðaráætlunar og árangur meðferðar
metinn eftir 8 vikur.
– Lifið heil
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
21
65
1
1/
10
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
1
6
2
6
0
9
/1
0
Þjónustan er veitt virka daga frá kl. 8 til 17.
Veitum ýmsa sérhæfða þjónustu, m.a. ráðgjöf
við val og notkun á vörum fyrir sykursjúka.
Láttu okkur mæla blóðsykurinn.
Hjúkrunarþjónusta
í Lyfju Lágmúla
Tilkynning hef opnað eftir hlé.
Sálfræðistofu Ernu Sigríðar Jóhansdóttur
Býð upp á hugræna atferlismeðferð við kvíða,óöryggi,depurð og fælni.
Sorgar – áfallameðferð
Slökun og sjálfsstyrking
Nánari upplýsingar og tímapantanir í síma 821-1413 eða 5641064
Mail ernajoh@simnet.is
Erna Sigríður Jóhannsdóttir
Sálfræðingur
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi
eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU