Fréttablaðið - 13.11.2010, Side 16
16 13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
greinar@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
SPOTTIÐ
ÞORSTEINN
PÁLSSON
AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR
Fyrstu svör forsætisráðherra við sérfræðingaáliti um húsnæðisskuldirnar voru þau að allir kostir sem þar
eru nefndir kæmu til greina. Eftir
því að dæma gætu Samfylking,
Framsóknarflokkur, vinstri armur
VG og Hreyfingin myndað meiri-
hluta um almenna afskrift skulda í
samræmi við fyrirheit forsætis- og
dómsmálaráðherra frá í október.
Málið er þó ekki svo einfalt því
fjármálaráðherra var varfærinn í
yfirlýsingum. Sama má segja um
varaformann Sjálfstæðisflokksins.
Það er í samræmi við þá blönduðu
leið sem efnahagstillögur flokks-
ins gera ráð fyrir. Eftir fyrsta sam-
ráðsfund dró for-
sætisráðherra
síðan í land varð-
andi almennar
afskriftir.
Næsta skref
er að ríkisstjórn-
in leggi fram til-
lögu og leiti eftir
breiðum stuðn-
ingi við hana.
Mikilvægt er að
sú lausn verði ekki slitin úr tengsl-
um við efnahagsmarkmiðin í heild
eins og þau eru sett fram í AGS-
áætluninni. Einar K. Guðfinns-
son tók stöðu AGS-áætlunarinnar
til umræðu í fyrirspurnartíma á
Alþingi í byrjun vikunnar. Af því
tilefni staðfesti forsætisráðherra að
ríkisstjórnin hefði samþykkt gild-
andi áætlun í byrjun ágúst. Aftur
á móti upplýsti Lilja Mósesdóttir að
vinstri armur VG vildi rjúfa sam-
starfið frá næstu mánaðamótum.
Þetta sýnir að ríkisstjórnin hefur
ekki meirihluta í eigin röðum fyrir
grundvelli efnahagsstefnunnar sem
endurnýjaður var með sérstakri
samþykkt í ríkisstjórninni fyrir
þremur mánuðum. Þess vegna vill
ríkisstjórnin samstarf við stjórnar-
andstöðuna. Það samstarf er hins
vegar marklaust nema það taki til
markmiða AGS-áætlunarinnar í
heild.
Misvísandi viðbrögð
Forsætisráðherra hefur mætt gagnrýni á aðgerð-ir í þágu heimilanna og á fjárlagafrumvarpið með
endurteknum yfirlýsingum um
breytingar á AGS-áætluninni sem
ríkisstjórnin samþykkti í ágúst.
Þau ummæli hljóta að hafa verið
djúpt hugsuð því að öll frávik geta
haft afdrifaríkar afleiðingar og
hafa reyndar þegar gert það.
Til marks þar um má nefna að
Seðlabankinn upplýsti í síðustu
viku að sá örlitli hagvöxtur sem í
vændum er muni alfarið byggjast
á einkaneyslu. Verðmætasköpun
atvinnulífsins leggur þar ekkert
til. Sveigjanleiki krónunnar hefur
ekki dugað til að auka verðmæta-
sköpun. Með öðrum orðum: Krón-
an er hvorki lausn til bráðabirgða
né lengri tíma. Þetta þýðir áfram-
haldandi skuldasöfnun með venju-
legum þrýstingi á krónuna.
Stöðugleikinn í gengi krónunnar
síðustu mánuði byggir í einu og öllu
á höftunum og fjárhagslegri aðstoð
AGS. Tilslökun í ríkisfjármálum
gæti veikt þessa stöðu og kallað
nýjan skuldavanda yfir heimilin.
Markmiðið um að hverfa frá höft-
unum ræðst einnig af árangri í rík-
isfjármálum og reyndar er óvíst
hvort það næst.
Samstarfsverkefni efnahagsráð-
herra með bönkunum og atvinnu-
lífinu um skuldahreinsun lítilla og
meðalstórra fyrirtækja byggir á
festu í peningamálum og ríkisfjár-
málum. Þá ráðast lánsfjármögu-
leikar orkufyrirtækjanna til nýrra
framkvæmda einnig í ríkum mæli
af stöðu ríkissjóðs.
Stöðugleiki á vinnumarkaði velt-
ur svo á stöðugleika krónunnar.
Víst er að frávik frá markmiðum
AGS í ríkisfjármálum færa landið
fjær því að geta gerst aðili að evr-
ópska myntbandalaginu.
Þessi dæmi sýna að ekki er unnt
að taka eitt viðfangsefni út úr heild-
arsamhenginu. Ganga verður út frá
því að forsætisráðherra hafi á sam-
ráðsfundunum kynnt hugmyndir
sínar um endurmat og þessa stöðu
í heild sinni fyrir stjórnarandstöðu-
flokkunum. Ella væri samráðið
leikaraskapur. Það merkilega er að
ekkert af þessum þýðingarmiklu
upplýsingum skuli hafa lekið út.
Áhrif á önnur markmið
Kjarni málsins er sá að allar leiðir til að leysa skuldavanda heimil-anna með frávikum frá
efnahagsmarkmiðum AGS-áætl-
unarinnar, sem ríkisstjórnin sam-
þykkti í ágúst, búa til meiri vanda
og hættu á nýju gengisfalli og
skuldaflóði. Óþol þjóðarinnar er
afleiðing af því að ríkisstjórnin
hefur ekki nægan skilning í eigin
þingliði fyrir þessu sjónarmiði og
virðist ráðvillt af þeim sökum.
Þennan hnút má hins vegar
leysa ef samráði verður breytt í
samninga.
Fjármálaráðherra vill fylgja
áætlun AGS í ríkisfjármálum.
Verkurinn er að hann hefur ekki
þingmeirihluta fyrir þeim áform-
um óbreyttum. Formaður Sjálf-
stæðisflokksins vill orkunýtingu,
erlenda fjárfestingu, skattaráð-
stafanir til að örva atvinnulífið og
sáttaniðurstöðuna í sjávarútvegi
en hefur ekki þingmeirihluta fyrir
þeim sjónarmiðum. Utanríkisráð-
herra vill nýja mynt en hefur ekki
þingmeirihluta til að ljúka samn-
ingum við Evrópusambandið.
Ef þessir þrír áhrifaríku for-
ystumenn Alþingis væru reiðu-
búnir til að styðja málefni hver
annars væri Íslandi borgið. Eng-
inn veit hvort vilji þeirra stend-
ur til þess. Hitt er ljóst að ekkert
slíkt getur gerst nema á grund-
velli jafnra áhrifa og jafnrar
ábyrgðar.
Steingrímur, Bjarni, Össur
Þ
rátt fyrir alla grænu, endurnýjanlegu orkuna sem við
erum svo dugleg að segja útlendingum frá er Ísland í
hópi þeirra landa sem losa mest af gróðurhúsaloftteg-
undum á mann og brenna mestri olíu.
Ástæðnanna er að leita bæði í aðstæðum okkar og
lífsstíl. Við rekum óvenjulega stóran fiskiskipaflota, eigum mörg
farskip og millilandaflugvélar. Færri þjóðir eiga stærri eða eyðslu-
samari bílaflota miðað við mann-
fjölda og við ökum langar vega-
lengir í strjálbýlu landi. Veðrið
hefur svo kannski eitthvað með
það að gera að við gerum minna
af því að ganga, hjóla og taka
strætó en margar frænd- og
nágrannaþjóðir. Þótt útblástur
frá Íslandi vegi kannski ekki
þungt í heildarlosun heimsbyggðarinnar, ber hvert ríki – og raunar
hver einstaklingur – sína ábyrgð á loftslagsbreytingum af manna-
völdum. Ábyrgð hvers Íslendings er býsna mikil.
Í nýrri aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum eru
sett metnaðarfull markmið um að draga úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda á næstu árum og áratugum. Ríkisstjórnin hyggst meðal
annars leggja á kolefnisgjald, sem beini orkunotkun frá jarðefna-
eldsneyti og yfir í vistvænni orkugjafa. Þá hefur hún samþykkt
frumvarp um breytingu á álagningu vörugjalds á bifreiðar, sem
mun taka mið af útblæstri og hvetur fólk til að kaupa sparneytna,
vistvæna bíla. Ennfremur verða allt að hundrað þúsund krónur af
vörugjaldi eldri bíla, sem breytt verður í metanbíla, endurgreitt.
Þannig er ætlunin að flýta metanvæðingu bílaflotans. Stefnt er að
því að finna fiskiskipaflotanum nýja orkugjafa og tilraunir eru
hafnar með vinnslu lífeldsneytis fyrir skipavélar, svo dæmi séu
nefnd.
Í umræðum um loftslagsmál er oft látið í veðri vaka að aðgerðir
til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda þýði hömlur á hag-
vöxt og minni lífsgæði. Þetta var lengi viðkvæðið hjá bandarískum
stjórnvöldum, sem töldu að hömlur á losun myndu koma niður á
atvinnulífi Bandaríkjamanna, til dæmis bílaiðnaðinum, og að kjör
almennings kynnu að skerðast við það að þurfa að kaupa sér neyzlu-
grennri bíla og eyða minna rafmagni í loftkælingu.
Viðhorfin vestra eru reyndar byrjuð að breytast. Margir átta sig
á því að nauðsyn þess að draga saman útblástur eiturlofttegunda
er drifkraftur þróunar og nýsköpunar, sem skapar hagvöxt. Það
sama á að sjálfsögðu við hér. Ríkisstjórnin hyggst nú styðja við
rannsóknir og nýsköpun í loftslagsmálum í auknum mæli. Mörg
sprotafyrirtæki vinna að orkusparandi og vistvænni tækni. Hún
getur skapað störf og orðið útflutningsvara, rétt eins og þekking
Íslendinga á sviði jarðhita.
Verkefnisstjórnin, sem gerði aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar,
telur að óvíða séu meiri möguleikar til bindingar kolefnis úr loftinu
með skógrækt og landgræðslu en hér á landi. Í þeim verkefnum,
sem eru hluti af áætluninni, felast líka tækifæri til að auka land-
gæði Íslands og þar með lífsgæði þjóðarinnar.
Í loftslagsmálunum höfum við flest að vinna og litlu að tapa. Við
eigum að axla þá ábyrgð, sem okkur ber.
Samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda getur
haldizt í hendur við hagvöxt og bætt lífsgæði.
Mikil ábyrgð
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN