Fréttablaðið - 13.11.2010, Blaðsíða 24
24 13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Síðastliðna daga hafa transfitu-sýrur í matvælum og áhrif
þeirra á heilsu neytenda verið
mikið til umræðu í kjölfar mælinga
danska læknisins Steen Stender á
magni transfitusýra í matvælum
hérlendis. Að öðrum ólöstuðum er
líklega hægt að segja að Stender sé
sá sem hvað ötulast hefur unnið að
því að vekja almenning til vitund-
ar um áhrif neyslu á transfitusýr-
um á heilsu manna. Í byrjun tíunda
áratugarins komu fyrstu upplýsing-
ar um skaðleg áhrif transfitusýra
á heilsu fólks og Stender, þá for-
maður manneldisráðs í Danmörku,
beitti sér fyrir því að transfitusýr-
ur væru bannaðar í matvælum þar
í landi, með lýðheilsusjónarmið að
leiðarljósi. Það var þó ekki fyrr en
áratug síðar að markmiðið náðist
og Danir settu reglugerð sem bann-
aði matvæli sem innihéldu hærra
magn af transfitusýrum en sem
nemur tveimur grömmum í hverj-
um 100 grömmum af fitu, þá fyrst-
ir þjóða.
Transfitusýrur eru ákveðin gerð
harðrar/hertrar fitu sem getur
verið í matvælum frá náttúrunn-
ar hendi en mun algengara er að
transfitusýrur hafi myndast við
meðhöndlun eða vinnslu fitu eða við
mög háan hita í steikingu. Algeng-
ast er að transfitusýrur myndist
þegar ómettuð fita er hert að hluta,
til að hún henti betur til matvæla-
iðnaðar. Ástæða þess að þessi herta
fita varð svo vinsæl í matvælaiðn-
aðinum var sú að þær eru einfald-
ar og ódýrar í framleiðslu og notk-
un, gefa matvælum eftirsóknarvert
bragð og útlit og endast lengi. Sem
dæmi má nefna að þessi fita hent-
aði vel til djúpsteikingar þar sem
hægt var að nota sömu
fituna oft áður en henni
var fargað.
Það eru því helst mat-
væli s.s. djúpsteiktur
skyndibiti, kex, kökur,
örbylgjupopp o.s.frv.
sem mest hætta er á að
innihaldi óhóflegt magn
af transfitusýrum og
áhyggjuefni að þetta
eru einmitt matvæli sem
gjarnan eru vinsæl hjá
yngri kynslóðinni.
Hér á landi hefur
neysla á transfitusýrum
minnkað til muna frá
því að fyrst voru gerðar mæling-
ar á slíku en þrátt fyrir það neyttu
Íslendingar að meðaltali 3,5 g af
transfitusýrum á dag, samkvæmt
landskönnun 2002. Samsvaraði það
um 1,4% af orkuinntöku en Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunin setur sem
viðmið að neysla á transfitusýrum
sé minni en 1% af orkuinntöku og
fari ekki yfir tvö grömm á dag.
Rannsóknir hafa sýnt fram á
að neysla á transfitusýrum eykur
líkur á hjarta og æðasjúkdómum
meira en neysla annarrar harðrar
fitu en við neyslu á transfitusýr-
um hækkar hlutfall óæskilegrar
blóðfitu (slæmt kólesteról) og jafn-
framt lækkar hlutfall jákvæðrar
blóðfitu (gott kólesteról). Talið er
að fimm grömm af transfitusýrum
geti aukið hættu á hjarta og æða-
sjúkdómum um 25%.
Eins og fram kemur hér að ofan
voru Danir fyrstir til að banna
transfitusýrur í matvælum en
nú hafa fleiri fylgt í kjölfarið s.s.
Sviss og Austurríki sem hafa einn-
ig farið þessa leið. Ýmis
fylki í Bandaríkjunum
hafa sett reglur um trans-
fitusýrur í matvælum.
New York og Kaliforn-
ía hafa gengið lengst og
bannað að matvæli sem
innihalda transfitusýrur
séu notuð við matseld á
veitingastöðum. Aukinn
þrýstingur er af hálfu
neytenda víða um heim
að ráðamenn grípi til
sams konar aðgerða en
þar takast væntanlega á
sjónarmið neytenda og
hagsmunasjónarmið iðn-
aðarins sem telja slíkt íþyngjandi.
Það er þó svo að í flestum tilfell-
um er hægt að skipta fitu sem inni-
heldur transfitusýrur út fyrir aðra
æskilegri fitu eins og berlega sést
hjá þeim matvælaframleiðendum
sem nú þegar hafa brugðist við og
bjóða transfitu-frí matvæli.
Það má því segja að barátta
Stender og samstarfsmanna hans
fyrir betri lýðheilsu sé farin að
skila sér víða og á þar líklega vel
við hin margnotaða líking um litlu
þúfuna og þunga hlassið. Það ber
því að fagna því að hér á landi skuli
nú hafa verið tekið af skarið varð-
andi þetta mál og skref tekið í átt
til betri lýðheilsu.
Í flestum
tilfellum
er hægt að
skipta fitu
sem inniheld-
ur transfitu-
sýrur út
Borgfirðingar vöknuðu upp við vondan draum í síðastliðinni
viku þegar tilkynning kom í fjöl-
miðlum um að það merka skóla-
starf sem haldið hefur verið uppi
á Bifröst síðan 1955 yrði skor-
ið niður við trog. Að vísu voru
framtíðaráform Bifrastar áfram-
haldandi starfræksla frumgreina-
deildar og námskeiðahalds en allt
háskólanám yrði flutt til Reykja-
víkur.
Fyrir rúmum 15 árum tók Kenn-
araháskólinn við merkri arfleifð
húsmæðraskólans að Varmalandi
með sams konar áform í huga. Sú
starfsemi komst varla af stað að
heitið gæti og fjaraði fljótt út. Þá
gefur saga sameininga hérlend-
is ekki tilefni til bjartsýni fyrir
hönd Bifrastar ef sameining af
þessu tagi yrði ofan á. Bent skal
á að Borgfirðingar hafa mikla
reynslu af því að horfa á eftir fyr-
irtækjum sínum fluttum á brott
undanfarið í nafni hagræðingar,
án þess að sýnt hafi verið fram á
að hún hafi náðst í öllum tilfell-
um. Þar má nefna nokkra fram-
haldsskóla, stórt mjólkursamlag,
sláturhús, kjötvinnslu og fjölda
opinberra starfa svo eitthvað sé
nefnt.
Á dögunum kom forsætisráð-
herra í fjölmiðla og boðaði aðgerð-
ir til nýsköpunar um land allt.
Viku seinna tók menntamálaráð-
herra vel í ofangreindar samein-
ingarhugmyndir Bifrastar og HR.
Stofnun háskóla í Bifröst er senni-
lega eitt merkilegasta framtak í
nýsköpun á landsbyggðinni síðast-
liðin ár. Ef háskólar eru vel tengd-
ir atvinnulífinu hafa þeir tilhneig-
ingu til að ýta undir nýsköpun.
Almennt er talið heillavænlegast
að efla nýsköpun og samþættingu
atvinnulífs og skóla í gegnum þró-
unarsetur sem eru aðallega studd
af raungreinum, eðlisfræði, verk-
fræði, tölvunarfræði, viðskipta-
fræði og listgreinum. Á þessu lík-
ani byggja alkunn þróunarsetur
eins og í Silicon Valley í Banda-
ríkjunum og í Finnlandi.
Að vísu hefði mátt gera miklu
betur í þessum efnum varðandi
Bifröst en ef háskólanámið fer er
þessi möguleiki algerlega úr sög-
unni. Ekki yrði hægt að hrinda
í framkvæmd einni af þremur
atkvæðamestu tillögum sóknar-
áætlunar 20/20 sem stjórnvöld
hafa fyrir landshlutann og gekk
út á að stórefla samstarf atvinnu-
lífs og skóla í gegnum þróunarset-
ur og iðngarða.
Nú er vinsælt að leita fyrir-
mynda á Norðurlöndunum.
Háskólum er dreift þar, gagn-
gert til að efla grunngerð alls
landsins. Finnar náðu að spyrna
sér með nýsköpun út úr sinni
kreppu í gegnum menntakerf-
ið. Danir sameinuðu sex háskóla
árið 2007 í Syd-Dansk Universit-
et og einn þeirra var staðsettur
í Kaupmannahöfn. Það var gert
án þess hrófla við starfstöðvun-
um í Esbjerg, Óðinsvéum, Sönd-
erborg, Slagelse og Kolding. Það
er greinilegt að háskólanum er
ætlað að standa vörð um háskóla-
starf utan höfuðborgarsvæðis
þeirra Dana. Hvers vegna stuðla
stjórnvöld ekki að því að sameina
háskóla á landsbyggðinni hérlend-
is í þeim tilgangi að hagræða, og
jafnframt efla hverja starfstöð, í
stað þess að leggja þær niður?
Sameining háskóla
Háskólar
Vífill
Karlsson
hagfræðingur
Skref í átt að betri heilsu
Transfitusýrur
Gunnfríður Elín
Hreiðarsdóttir
aðstoðarmaður
sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra
Veruleg fækkun hefur orðið á umferðaróhöppum hjá Strætó
bs. á umliðnum árum. Sérstakt
forvarnarverkefni Strætó í sam-
starfi við VÍS á sinn þátt í þeim
árangri sem náðst hefur
en það hófst í byrjun árs
2008 og er enn í gangi.
Markmið þess er að
fækka slysum og stuðla
að auknu öryggi vegfar-
enda. Þótt árangurinn
fram til þessa sé upp-
örvandi fyrir Strætó
ætlum við engu að síður
að gera enn betur.
Öryggisdagar Strætó
og VÍS eru liður í for-
varnarverkefninu. Þeir
hófust mánudaginn 18.
október síðastliðinn og
munu standa yfir í sex
vikur, til sunnudags 28. nóvember.
Með Öryggisdögum er forvarnar-
verkefnið útvíkkað, því allir þátt-
takendur í umferðinni eru hvatt-
ir til að sýna aðgát, tillitssemi og
ábyrga hegðun á götum úti og taka
þannig þátt í því með okkur að
auka öryggi allra í umferðinni.
Mikið í húfi
Tölur frá Umferðarstofu sýna að
nú fer í hönd sá árstími sem alla
jafna er hvað erfiðastur í umferð-
inni. Það má vissulega aldrei slaka
á þegar kemur að umferðaröryggi,
en þegar veturinn gengur í garð
þurfum við að vera sérstaklega á
varðbergi, sýna fyllstu aðgát og
tillitssemi. Það er mikið í húfi.
Reynsla okkar hjá Strætó sýnir
að það er hægt að fækka óhöppum
í umferðinni ef ráðist er í verkefn-
ið með skipulögðum hætti. Á árinu
2006 voru tjón Strætó í umferð-
inni 304 talsins og fækkaði í 297
árið eftir. Árið 2008 hófst for-
varnarstarfið með VÍS og árang-
urinn lét ekki á sér standa, því
slysum fækkaði í 268.
Stóra stökkið kom svo
2009, því fjöldi tjóna
hjá Strætó fór þá niður
í 197. Frá 2006 til 2009
fækkaði tjónum því
um 35% og munar um
minna, hvort sem litið
er til slysa á fólki eða
eignatjóni. En við erum
ekki hætt og ætlum að
gera enn betur. Það sem
af er þessu ári gefur
vonir um að það muni
takast.
Við sem störfum hjá
Strætó höfum sýnt gott
fordæmi í umferðinni – og vagn-
stjórarnir okkar eiga heiður skil-
inn fyrir árangurinn síðustu ár.
En ef við getum náð jafn góðum
árangri og raun ber vitni þá geta
aðrir það einnig. Til þess eru ein-
mitt Öryggisdagarnir – að hvetja
alla vegfarendur til að sýna aðgát,
tillitssemi og ábyrga hegðun, ekki
bara fram til 28. nóvember, held-
ur alla daga ársins. Alltaf. Þannig
næst árangur
Við hjá Strætó ætlum að sýna
gott fordæmi í umferðinni. Ertu
með?
Strætó ætlar
að gera enn betur
Strætó
Reynir Jónsson
framkvæmdastjóri
Strætó
Stofnun háskóla
í Bifröst er senni-
lega eitt merkilegasta
framtak í nýsköpun á
landsbyggðinni síðastlið-
in ár.
Nú fer í hönd
sá árstími
sem alla
jafna er hvað
erfiðastur í
umferðinni.
G æ ð i H r e i n l e i k i V i r k n i
Þú færð NOW fæðubótarefnin í verslunum um allt land
G
Ú
S
T
A
V
S
S
O
N
B
J
Ö
R
G
V
I
N
P
Á
L
L