Fréttablaðið - 13.11.2010, Síða 52
13. nóvember 2010 LAUGAR-2
Sonur Birgittu og Benedikts
Einarssonar er Víkingur Brynj-
ar sem senn sér hylla undir eins
og hálfs árs afmæli sitt. „Móður-
hlutverkið er það besta í heimi og
ekki til nógu falleg lýsingarorð
yfir tilfinninguna. Þótt vinir hafi
sagt mér hversu yndislegt það er
að verða foreldri er engin leið að
lýsa því; maður verður bara að
leyfa því að koma á óvart,“ segir
Birgitta sem glöð vildi fagna
meira barnaláni.
„En það er erfitt að plana barn-
eignir því börn eru svo mikil
kraftaverk og ekki á færi neins
að gefa út yfirlýsingar um að ætla
að eignast svo og svo mörg börn.
Vonandi gefur Guð mér fleiri
börn og ef hann gerir það verð
ég ofsalega glöð því barnalán er
aldrei sjálfgefið,“ segir Birgitta
af skynsemi.
Dagar Birgittu einkennast af
annríki því hún vinnur að örþátt-
unum Fyrstu skrefin á mbl.is.
„Þar heimsæki ég barnafjöl-
skyldur og kynni mér alls kyns
fróðleik um börn og uppeldi. Ég
ákvað að slá til því mér finnst
gaman að prófa nýja hluti og tak-
ast á við framandi áskoranir svo
maður festist ekki í því sama,“
segir Birgitta sem einnig kennir
söng í Kvikmyndaskóla Íslands og
leggur stund á söngkennaranám í
Kaupmannahöfn, þaðan sem hún
útskrifast næsta vor.
„Í náminu hef ég tileinkað mér
complete vocal-tækni og hlakka
til að fá alþjóðleg kennararétt-
indi sem gera mér kleift að starfa
um allan heim. Tónlist verður
alltaf ríkjandi í mínu lífi og ég
vildi óska að ég hefði lært þetta
fyrr. Þá hefði ég trúlega slopp-
ið við alla þá hæsi sem elti mig á
röndum þegar ég vann sem mest
í söngnum,“ segir Birgitta sem
tekur ekki þátt í jólaslag tónlist-
armanna um þessi jól.
„Ég reikna ekki með að fara í
gang aftur strax. Mér finnst svo
yndislegt að vera mamma að ég
tími ekki að fara á milljón út um
allt. Það var ofsalega skemmti-
legur tími þegar frægðarsólin
skein hæst og mér finnst ég hepp-
in að hafa upplifað það allt, en ég
sakna þess ekki döpur í hjarta
heldur hugsa til þess hversu mik-
ill draumur sá tími var. Þegar
maður er kominn með fjölskyldu
og í allt annan gír sé ég mig ekki
fara í nákvæmlega sama pakk-
ann aftur. Ég fæ því ekki fiðring
að stíga á sviðið um helgar því
hjarta mitt er á öðrum stað núna,
þrátt fyrir að ég elski að syngja,“
segir Birgitta sem núorðið getur
gengið um göturnar óáreitt. „En
mér finnst alltaf jafn æðislegt
þegar einhver kemur og spjall-
ar vegna þess að hann man eftir
mér og hef aldrei litið á það sem
ónæði,“ segir hún einlæg og sæl
með tilveruna.
„Mér finnst dásamlegt að vera
gift kona og móðir, en gat ekki
ímyndað mér hversu mikla gleði
það færði mér. Frá því ég man
eftir mér hef ég unnið mikið og
sá hlutverk heimavinnandi hús-
mæðra sem leiðinlegt starf. Í dag
sé ég hvað þær eru heppnar að
geta verið heima með börnum því
slíkt er ekkert sjálfsagt og maður
þarf að eiga fyrir því. Sem hús-
móðir á ég sjálf ágætis takta þótt
ég baki ekki á hverjum degi, en
nú þegar kólnar og skammdegið
ríkir finnst mér fátt indælla en að
fá bökunarilm í húsið.“
thordis@frettabladid.is
Nemendur í fataiðndeild Tækni-
skólans standa fyrir tískusýningu
í Tjarnarbíói í kvöld en nemendur
úr hársnyrtideild og ljósmynda-
deild skólans leggja hönd á plóg.
„Við erum 33 nemendur úr
fataiðndeild sem tökum þátt.
Hársnyrtinemarnir sjá svo um
greiðslur og ljósmyndanemarnir
um myndatökur. Fyrirsæturnar
eru síðan margar frá Elite Model
Management og munu nemend-
ur Airbrush & Makeup School sjá
um förðun. Þetta er því umfangs-
mikið samstarf sem allir hagnast
á enda geta fyrirsæturnar fengið
myndir í möppurnar sínar sem og
allir hinir,“ segir María Nielsen
einn af fjórum skipuleggjendum.
Tískusýningin er lokaviðburður-
inn á Unglist og er unnin í sam-
starfi við Hitt húsið. María lofar
fjölbreyttri sýningu en nemend-
ur koma ýmist úr kjólasaums-
eða klæðskeradeild. „Það verða
því bæði kvenmanns- og karl-
mannsföt á pöllunum.“ Sýningin
hefst klukkan 20 og er aðgangur
ókeypis.
Umfangsmikið samstarf
Uppskeruhátíð fataiðndeildar Tækniskólans er í kvöld og fá nemendur í kjóla- og klæðskeradeild að
sýna hvað í þeim býr með dyggri aðstoð nemenda úr öðrum deildum.
Pils og toppur eftir
Helgu Jóakimsdóttur.
Svartur kögur-
kjóll eftir Elísa-
betu Maren. Stuttbuxur og toppur
eftir Björgu Gunnars-
dóttur.
Slá úr þæfðri ull og
blúndu eftir Maríu
Nielsen.
Skipuleggjendur sýningarinnar lögðu lokahönd á flíkurnar sínar í gær en alls munu
33 fataiðnnemar taka þátt. Frá vinstri: Elísabet Maren Guðjónsdóttir, Helga Jóakims-
dóttir, Björg Gunnarsdóttir og María Nielsen. FRÉTTABLAIÐ/GVA
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Opið
mán - fös 10-18,
laugardaga 10-16
NÝJAR VÖRUR
Úlpur – Kápur
Hanskar – Hattar – Húfur
Stór sending af
ullaryfi rhöfnum
ULL • VATT • DÚNN
Birgitta vinnur að örþáttunum Fyrstu
skrefin á mbl.is.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MÁ BJÓÐA YKKUR MEIRI VÍSI?
Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem
setja „like“ við Vísi á Facebook geta
unnið óvænta vinninga í hverri viku.
Húnvetnsk messa verður í Dómkirkjunni á sunnudaginn klukkan 14. Sr. Sveinbjörn
Einarsson sóknarprestur á Blönduósi predikar, kór Þingeyrarklaustursprestakalls
syngur undir stjórn Sigrúnar Grímsdóttur og Sólveigar S. Einarsdóttur organista.
Framhald af forsíðu