Fréttablaðið - 13.11.2010, Side 56

Fréttablaðið - 13.11.2010, Side 56
 13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR2 VIÐ VILJUM RÁÐA ... PIPAR\TBWA – Tryggvagötu 17 – 101 Reykjavík – Sími 510 9000 – www.pipar-tbwa.is ... öfluga grafíska hönnuði til starfa í líflegu umhverfi. Þeir þurfa að geta unnið sjálfstætt og einnig tekið þátt í hópastarfi innan stofunnar. Umsóknir ásamt ferilskrá og sýnishornum af verkum skal senda á umsokn@pipar-tbwa.is fyrir 19. nóvember nk. Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Menntunar- og hæfniskröfur Grafískur hönnuður með áherslu á margmiðlun \ Próf í grafískri hönnun \ Víðtæk þekking á margmiðlunarforritum \ A.m.k. þriggja ára starfsreynsla \ Hugmyndaauðgi \ Gott skap Grafískur hönnuður \ Próf í grafískri hönnun \ A.m.k. þriggja ára starfsreynsla \ Hugmyndaauðgi \ Gott skap Viltu auðga líf mitt? Ég er 40 ára gömul kona með hreyfihömlun sem óskar eftir persónulegri aðstoðarmanneskju til starfa, helst sem fyrst. Í boði eru dagvaktir virka daga. Ég þarfnast aðstoðar við flestar athafnir daglegs lífs, svo sem við klæðnað, akstur í skóla og vinnu, tölvuvinnu og ýmis önnur verk. Markmið aðstoðarmanneskju er að stuðla að tækifærum mínum til þátttöku í samfélaginu og að viðhalda og auka lífsgæði mín. Æskilegt er að hún hafi bílpróf því ég hef eigin bíl til umráða. Jákvæðni, sveigjanleiki og virðing er lykillinn að farsæld í okkar samstarfi. Fyrirspurnir, umsóknir og ferilskrár ásamt meðmælum berist á netfangið: astasolehf hjá simnet.is Með fyrirfram þökk, Ásdís Jenna Ástráðsdóttir SÍMI 440 1000 WWW.N1.IS N1 er leiðandi verslunar- og þjónustufyrirtæki á sviði bílatengdrar starfsemi fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ómar Jóhannsson, rekstrarstjóri þjónustustöðva, í síma 440 1021. Áhugasamir sendi umsóknir á netfangið: atvinna@N1.is fyrir 21. nóvember næstkomandi. STÖÐVARSTJÓRI AKUREYRI Hæfniskröfur: Haldgóð menntun sem nýtist í starfi Reynsla á sviði verslunar og stjórnunar Rekstrarþekking Almenn tölvukunnátta Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð Leiðtogahæfni og samskiptalipurð Jákvætt viðhorf og atorkusemi Helstu verkefni: Daglegur rekstur Verkstjórn og eftirlit Starfsmannamál Innkaup og samskipti við birgja Birgðastýring og kostnaðareftirlit Önnur verkefni á stöðinni N1 óskar eftir að ráða stöðvarstjóra til að annast daglegan rekstur og stjórnun þjónustustöðva N1 á Akureyri. STÖRF ÞERAPISTA Í MST Barnaverndarstofa hefur starfrækt svokallaða fjöl- kerfameðferð (Multisystemic Therapy - MST) sem er gagnreynd meðferð með fjölskyldum unglinga með alvarlegan hegðunarvanda sem annars þyrftu vistun utan heimilis. MST miðar að því að efla foreldrahæfni og bæta samheldni og samskipti í fjölskyldu. Meðferð- in fer fram á heimili fjölskyldunnar og í nærsamfélagi í samstarfi við skóla og aðra lykilaðila. Aðgengi er að ákveðnum meðferðaraðilum (þerapistum) í síma allan sólarhringinn. Vegna stækkunar meðferðarteyma eru lausar til umsókn- ar 2 stöður þerapista. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi á sviði heilbrigðis- eða félagsgreina og hafa góða faglega þekkingu og reynslu af meðferðarvinnu. Þerapistar starfa undir stjórn handleiðara/teymisstjóra eftir meðferðarreglum og aðferðum MST, í samstarfi við erlendan MST sérfræðing. Um er að ræða fullt starf. Nánari upplýsingar um störfin og ráðningarskilyrði er að finna á Starfatorgi (www.starfatorg.is). Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barnaverndar- stofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Barnaverndarstofu við viðkomandi stéttarfélög. Í byrjun fá starfsmenn 5 daga grunnþjálfun í MST og reglulega þjálfun í framhaldi. Umsóknarfrestur er til 29. nóvember. Allar umsóknir gilda í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests ef starf losnar að nýju. Nánari upplýsingar veittar á Barnavern- darstofu í síma 530 2600 (www.bvs.is). Umsóknum má einnig skila rafrænt til ingibjorg@bvs.is. BARNAVERNDARSTOFA HAFRANNSÓKNASTOFNUNIN Sérfræðingur Hafrannsóknastofnunin óskar eftir því að ráða sérfræðing til starfa við rannsóknir á hryggleysingjum á Nytjastofnasviði stofnunarinnar. Starfi ð felst í rannsóknum á stofnstærð, afrakstursgetu og líffræði humars og hörpudisks sem og annarra nytjastofna krabba- og skeldýra. Æskilegt er að umsækjandi haf lokið meistara- eða doktorsprófi í líffræði eða fi skifræði. Lögð er áhersla á færni við gagnagreiningu, tölfræðilega úrvinnslu og greinaskrif. Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á gagnagrunnum, t.d. Oracle og tölfræðiforritum, t.d. R/Splus. Leitað er eftir einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, hefur góða samskipta- og skipulagshæfi leika og áhuga á auðlindum og vistkerfi sjávar. Laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Skrifl egum umsóknum með upplýsingum um menntun, fyrri störf og nöfnum tveggja meðmælenda skal skila til Hafrannsóknastof nunarinnar, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, eða í tölvupósti (hafro@ hafro.is), eigi síðar en 3. desember 2010. Nánari upplýsingar um starfi ð veita Þorsteinn Sigurðsson (steini@ hafro.is) og Ólafur S. Ástþórsson (osa@hafro.is). Hafrannsóknastofnunin er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði haf-og fi skirannsókna og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi skynsamlega nýtingu og verndun auðlinda hafsins. Mikill hluti starfseminnar tengist alþjóðlegu samstarfi við erlendar hafrannsóknastofnanir og háskóla. Stofnunin rekur 5 útibú, tilraunaeldisstöð í eldi sjávarlífvera, tvö rannsóknaskip og hefur um 150 starfsmenn í þjónustu sinni. Hafrannsóknastofnunin, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík, s: 575 2000
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.