Fréttablaðið - 13.11.2010, Síða 78
46 13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
K
lukkan níu á köldum
nóvembermorgni
mælum við okkur
mót á kaffihúsi í
Vesturbænum, Gréta
Einarsdóttir, Sigrún
Einarsdóttir og blaðamaður Frétta-
blaðsins. Yfir yljandi kaffibolla hefj-
um við samtal um athyglisbrest og
ofvirkni, taugaþroskaröskun sem
talið er að fimm til tíu prósent barna
séu með.
„Strákurinn minn var rúmlega
fjögurra ára þegar hann greind-
ist með athyglisbrest. Þá hafði ég
farið með hann til heimilislæknis
og beðið hann um greiningu, því ég
var farin að hugsa að annaðhvort
væri eitthvað að mér eða honum.
En það var stórt skref fyrir mig að
stíga fram og biðja um greiningu, en
eitthvað varð ég að gera, Kaffibolli
á borði var ekki öruggur, hann gat
verið floginn um koll hvenær sem
væri,“ segir Sigrún og bætir við að
sonurinn hafi verið greindur með
athyglisbrest í kjölfarið. „Ég minn-
ist að ég var mjög fordómafull í garð
ofvirkni og prísaði mig sæla að hann
væri ekki ofvirkur, en reyndar var
hann greindur ofvirkur nokkrum
árum síðar.“
Gott að tala við Jón Gnarr
Sigrún var þá byrjuð að vera virk
innan ADHD-samtakanna og stofn-
aði í framhaldinu sjálfshjálparhóp
fyrir foreldra barna með ADHD.
„Í framhaldinu kynntist ég betur
reynslusögum foreldra og hvað þeir
höfðu verið að glíma við. Ég fór þá
líka að heyra sögur fullorðinna, ég
tók til dæmis viðtal við Jón Gnarr
sem hjálpaði mér að skilja betur mitt
eigið líf,“ segir Sigrún sem síðar
greindist með ADHD. Þekkingin á
fylgifiskum ADHD setti ýmislegt
í fortíðinni í samhengi. „Þegar ég
var að vinna á kaffihúsi þá réð ég
til dæmis ekki við það þegar fór að
fjölga gestum, þá fór ég að verða
hrædd, gat ekki munað hvort ég
væri búin að taka við pöntunum. Í
afmæli stóð ég mig að því að kynna
mágkonu mína fyrir afa sínum, það
semsagt slær allt saman hjá mér
þegar ég er komin að streituþrösk-
uldinum hjá mér. Þá ræð ég ekki við
verkefnin,“ segir Sigrún sem hefur
fundið sér farveg í dag í því að hún
starfar sem ADHD markþjálfi og
vinnur þannig með þeim sem eru
ofvirkir og með athyglisbrest.
Sömu sögu er að segja af Grétu
Jónsdóttur. Hún er fjölskyldu- og
hjónaráðgjafi og hefur unnið með
mörgum sem eru með ADHD eða
eiga börn með ADHD. Hún greind-
ist sjálf fyrir þrettán árum. „Það
bjargaði lífi mínu á þessum tíma
að fá greiningu,“ segir Gréta sem
hefur sökkt sér í fræðin í kringum
ADHD síðan þá, og upplifað ýmsa
fylgifiska greiningarinnar, því öll
barna hennar eru með einhver ein-
kenni ADHD, og þeirra mest fjórtán
ára sonur hennar.
14 ára sonur ekki í skóla
„Hann er góður pakki, fjórtán ára
og hefur ekki verið í skóla síðan í
október í fyrra, það treystir sér eng-
inn til að hafa hann.“ Sonur Grétu
er með það sem kallast mótþróa-
þrjóska og lýsir sér í því að hann
er á móti öllu sem stungið er upp á.
„Ég kýs reyndar að líta á það sem
svo að hann fari sínar eigin leiðir,“
segir Gréta sem segir afar mikil-
vægt að einblínt sé á styrkleika og
hæfileika í uppeldi og umönnun, og
þá ekki síst ADHD-barna.
Sonur Grétu datt snemma út af
beinu brautinni og hefur afbrotafer-
il á bakinu þrátt fyrir ungan aldur,
sem ekki er óalgengt meðal barna
sem eru með ADHD.
„Vandamálin hjá honum byrj-
uðu um níu ára aldur, það var alltaf
verið að skamma og banna og eins
og raunin verður oft með þessi börn
þá fá þau bara að heyra neikvæða
hluti. Núna er staðan hjá honum
þannig að eftir að hafa verið rekinn
úr tveimur skólum fær hann fjög-
urra tíma kennslu á viku. Hann tók
reyndar þátt í sérhæfðu úrræði sem
boðið var upp á í Hafnarfirði síðasta
vetur en það stóð bara yfir í hálft
ár,“ segir Gréta sem segir marga
ADHD-krakka enda í jaðarhópum.
„Þar fá þau að vera þau sjálf.“
Of mikil áhersla á lyf
Bæði Gréta og Sigrún eru gagnrýn-
ar á þá áherslu sem er á lyfjagjöf
til barna með ofvirkni og athygl-
isbrest. „Við erum ekki endilega á
móti lyfjum, en viljum bara gjarn-
an benda á aðrar lausnir fyrir for-
eldra og skólakerfið,“ segir Gréta.
„Og margir foreldrar missa kjark-
inn og leita þá ekki annarra leiða en
lyfja,“ bætir Sigrún við.
Til að bæta úr þessu ætla þær að
standa fyrir málþingi næsta föstu-
dag sem ber heitið: Hvernig getur
ADHD-barnið náð stjórn og ein-
beitingu án lyfja? sem nánar má
fræðast um á heimasíðu þeirra
lifdulifinu.is.
„Á þeim þremur árum sem ég
hef unnið með foreldrum ADHD-
barna hef ég ekki hitt neina sem
bent hafa á aðra lausn en lyf,“ segir
Gréta sem gagnrýnir mjög þá for-
dóma sem börn með ADHD þurfa
að berjast við. „Við verðum að ein-
blína á hæfileika einstaklingsins, ef
við finnum þá og eflum og hvetjum
einstaklingana þá taka þeir miklum
framförum.“
Sigrún tekur undir það og bend-
ir á að sonur hennar, sem nú er á
unglingsaldri, hafi blómstrað eftir
að hann komst að í Norðlingaskóla
þar sem einstaklingsmiðuð kennsla
og umburðarlyndi hafi gert syni
hennar ótrúlega gott.
Sveigjanleikinn skiptir máli
„Hann fann mjög til vanmáttar
síns áður en hann skipti um skóla
en þá gekk honum illa bæði félags-
lega og námslega. Við foreldrarnir
trúðum því að við gætum tekist á
við þetta án lyfja og með sálfræð-
ingi unnum við með félagslega þátt-
inn. Og núna gengur honum líka vel
í náminu. Skólinn hreinlega dansar
með honum, það er æðislegt,“ segir
Sigrún sem nefnir sem dæmi að þar
sé ekki amast við því að hann fái að
vera með heyrnartól og hlusta á tón-
list þegar hann er að vinna, slíkur
sveigjanleiki geti skipt miklu máli
þegar um sé að ræða börn með
ADHD.
Vegna þess að bæði Sigrún og
Gréta hafa viljað bregðast við
ADHD með öðrum hætti en lyfj-
um hafa þær litið í kringum sig
eftir annars konar úrræðum. Sig-
rún hefur breytt um mataræði. „Við
erum reyndar svolítið sveigjanleg
en reynum að borða hollan og góðan
mat. Við höfum haldið einkennum
hjá dóttur minni sjö ára í skefjum
með mataræðinu,“ segir Sigrún sem
ætlar sér að draga á langinn að fá
greiningu fyrir dóttur sína. „Ég vil
nefnilega horfa á einstaklinginn
frekar en ástandið.“
Gréta hefur mikið unnið með
aðferð sem kallast hjartanærandi
uppeldi, sem snýst um markvissa
hvatningu, nokkuð sem hún hefur
tröllatrú á. „Það skiptir öllu máli að
finna styrkleika og hæfileika ein-
staklinganna,“ segja þær að lokum.
Við erum ekki endilega á móti lyfj-
um, en viljum bara gjarnan benda á
aðrar lausnir
Hvatningin er mikilvægust
GRÉTA OG SIGRÚN Markviss hvatning getur ráðið úrslitum fyrir ADHD-börn segja þær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
➜ Athyglisbrestur og ofvirkni
Athyglisbrestur og ofvirkni, oft kallað
ADHD í daglegu tali, er taugaþroska-
röskun sem kemur yfirleitt fram eða
fyrir sjö ára aldur og getur haft víðtæk
áhrif á daglegt líf, nám og félagslega
aðlögun. Athyglisbrestur og ofvirkni
er óháð greind. ADHD er alþjóðleg
skammstöfun og stendur fyrir „Attent-
ion Deficit Hyperactivity Disorder“
eða athyglisbrest og ofvirkni.
➜ Algengi/tíðni ADHD Nýjar
rannsóknir sýna að 5-10 prósent
barna og unglinga glíma við ofvirkni.
Í hópi barna með ADHD eru þrír
drengir á móti hverri einni stúlku.
➜ Hvað veldur ADHD? Orsakir
ADHD eru líffræðilegar. Rannsóknir
benda til að orsaka sé að leita í
truflun í boðefnakerfi heila á stöðum
sem gegna mikilvægu hlutverki í
stjórn hegðunar. Talið er að erfðir
útskýri 75-95 prósent einkenna.
➜ Hvernig lýsa ADHD-einkennin
sér? Athyglisbrestur kemur fram í því
að barnið eða unglingurinn á erfitt
með að einbeita sér að viðfangs-
efnum sínum. Hreyfióróleiki lýsir sér
þannig að börnin eiga erfitt með að
sitja kyrr. Hvatvísi kemur þannig fram
að börn eiga erfitt með að bíða, þau
grípa fram í og ryðjast inn í leiki og
samræður annarra.
Heimild: Vefur ADHD-samtakanna,
www.adhd.is.
HVAÐ ER ADHD?
Þær Gréta Einarsdóttir og Sigrún Einarsdóttir
greindust báðar með ADHD á fullorðinsárum og
segja greininguna hafa verið mikinn létti. Þær
eiga einnig börn sem glíma við ofvirkni og at-
hyglisbrest en að þeirra mati er of mikil áhersla á
lyfjagjöf þegar kemur að úrræðum í glímunni við
ADHD. Sigríður Björg Tómasdóttir ræddi við þær.
Opnunartímar á Skíðasvæðunum í vetur:
Virkir dagar: kl. 14.00–21.00
Helgar: kl. 10.00–17.00
Upplýsingasími 530 3000
ÞAÐ ER OPIÐ
Í BLÁFJÖLLUM UM HELGINA
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
02
82
0
skidasvaedi.is