Fréttablaðið - 13.11.2010, Síða 88
13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR56
timamot@frettabladid.is
56
Svokallað brjóstaball verður hald-
ið í Iðnó í kvöld. Heiti dansiballsins
er dregið af því að ágóðinn fer allur
í styrktarsjóð vegna rannsókna hér á
landi á brjóstakrabbameini.
Það er grasrótarfélagið Göngum
saman sem stendur að ballinu í Iðnó.
Þar er aðalsprautan hún Gunnhildur
Óskarsdóttir, dósent við HÍ. „Við höfum
hingað til aflað fjár með styrktargöng-
um og söluvarningi en fannst skemmti-
legt að brydda upp á einhverju nýju,“
segir hún. „Það er fallegt haustþema að
halda fínt dansiball þar sem fólk mætir
prúðbúið og dansar svo af hjartans lyst
undir tónum frá fínustu hljóðfæraleik-
urum sem allir gefa vinnu sína. Hljóm-
sveitin Melchior byrjar samkvæmið á
sínum ómþýðu tónsmíðum, þá stígur
gullaldarrokkbandið Fimm á Richter
á svið og síðan mun Andrea Jóns taka
við kyndlinum og sjá um að halda fólki
á gólfinu.“
Gunnhildur afhenti nýlega, fyrir
hönd félagsins Göngum saman, styrki
að upphæð alls fimm milljónir króna.
Þeir voru veittir í minningu um Krist-
björgu Marteinsdóttur en hún lést af
völdum brjóstakrabbameins 11. nóvem-
ber í fyrra, tæplega 45 ára gömul.
Styrkina hlutu Bylgja Hilmarsdóttir
doktorsnemi, Guðrún Birna Jónsdótt-
ir meistaranemi, dr. Helgi Sigurðsson,
prófessor og yfirlæknir, og dr. Rósa
Björk Barkardóttir prófessor, vegna
rannsókna sinna á brjóstakrabbameini.
„Verkefnin sem þetta fólk er að vinna
að eru öll þörf og við í félaginu Göng-
um saman viljum leggja þeim lið og
eiga þátt í því að varða leiðina í átt að
lækningu. Það skiptir svo miklu máli,“
segir Gunnhildur.
Hún bætir við að félagið hafi á síð-
ustu þremur árum veitt samtals 17
milljónir í grunnrannsóknir hér á landi
á þeim vágesti sem brjóstakrabbinn
er.
Göngum saman byggir starf sitt á
þátttöku almennings í styrktargöng-
um og einnig frjálsum framlögum, að
sögn Gunnhildar.
Nú gefst fólki gott tækifæri til þess
að sýna stuðning sinn við félagið í
verki og skemmta sér í leiðinni með því
að koma í hið fornfræga samkomuhús
Iðnó við Tjörnina og dansa fyrir góðan
málstað. „Við vonum bara að fólk mæti
á dansskónum, blandi geði við aðra og
skemmti sér,“ segir Gunnhildur og
bætir við. „Það styrkir verðugt mál-
efni í leiðinni.“ gun@frettabladid.is
FÉLAGIÐ GÖNGUM SAMAN: HELDUR BRJÓSTABALL Í IÐNÓ Í KVÖLD
Dansað fyrir góðan málstað
GUNNHILDUR Í HÓPI HLJÓÐFÆRALEIKARA Karl Roth úr Melchior, Gunnhildur, Steingrímur
Guðmundsson, Hróðmar Sigurbjörnsson og Kristín Jóhannesdóttir, líka úr Melchior ásamt
þremur félögum úr Fimm á Richter, þeim Benedikt Elfari, Guðjóni Hilmarssyni og Þórhalli
Andréssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SR. SOLVEIG LÁRA GUÐMUNDSDÓTTIR er 56 ára í dag.
„Hvort sem við skynjum lífsreynslu okkar bjarta eða dimma á
þessari stundu, þá er hún, þrátt fyrir allt, mikill fjársjóður.“
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Guðrún H. Ólöf
Ólafsdóttir Benitez
Svölutjörn 48, Reykjanesbæ,
lést á Garðvangi 9. nóvember. Útförin fer fram frá
Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 18. nóvember kl. 13.00.
Robert E. Benitez
Stefán Karl Jónsson Helga Róbertsdóttir
Sigríður E. Jónsdóttir Ólafur Reynir Snorrason
Friðrik Jónsson
Árni Jónssson Christine Jónsson
Clara Louisa B. Róbertsdóttir
Christina Moore John Moore
Kimberly A. Lynch Matthew Lynch
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og
hlýju við andlát og útför eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
Kristófers Þorgeirssonar
Dvalarheimilis aldraðra, Borgarnesi.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk dvalarheimilisins fyrir
einstaka umönnun.
Ólína Jóhanna Gísladóttir
Björg Hólmfríður Kristófersdóttir Þórður B. Bachmann
Gísli Kristófersson Þóra Ragnarsdóttir
Þorgeir Kristófersson Inga Pétursdóttir
Einar Kári Kristófersson Kolbrún Karlsdóttir
afa- og langafabörn.
Hjartans þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu samúð og hlýhug við andlát
og útför elskulegrar eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
Guðborgar Siggeirsdóttur
Kirkjulundi 8 (áður Álfhólsvegi 28a).
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Holtsbúðar
Garðabæ fyrir frábæra umönnun og nærgætni í
veikindum Guðborgar á undanförnum árum.
Rannver Stefán Sveinsson
Sigurjón Sveinn Rannversson Fjóla Finnsdóttir
Guðrún Magnea Rannversdóttir Snorri Snorrason
Katla Björk Rannversdóttir Kristján Albert Eiríksson
Birna Mjöll Rannversdóttir Arnfinnur Daníelsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Innilegar þakkir til allra þeirra
sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Guðmundu H.
Bjarnadóttur
frá Dalsmynni á Kjalarnesi,
Hringbraut 50, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á
Grund við Hringbraut og starfsfólki á deild B-2 á
Landspítalanum í Fossvogi, fyrir góða umönnun og
þægilegt viðmót.
Álfdís Ingvarsdóttir Sigurbergur Hauksson
Þorsteinn Ingvarsson Sombat Prasarn
Gréta Ingvarsdóttir Jón Björnsson
Ólafur Ingvarsson Hulda Stefánsdóttir
Atli Ingvarsson Lilja Hallbjörnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts
Kristmundar
Guðmundssonar.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk E-deildar sjúkrahúss
Akraness.
Salvör Ragnarsdóttir
Rósa Kristmundsdóttir Óskar John Bates
Friðbjörg Kristmundsdóttir G. Birkir Sveinsson
Anna Kristmundsdóttir
Bryndís, Ása Björg og Salvör Valgeirsdætur, Bjarki og Hjalti
Guðlaugssynir, Marta Ottósdóttir.
Valgeir Rafn, Halla Salvör og Birkir Orri.
Innilegar þakkir færum við öllum
sem sýndu okkur samúð, vináttu og
hlýhug við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
Eddu Snorradóttur
frá Þórshöfn,
Núpalind 4, Kópavogi.
Þorkell Guðfinnsson
Snorri Hafsteinn Þorkelsson Björg Skúladóttir
Guðfinnur Helgi Þorkelsson Jóhanna Þorkelsdóttir
Edda Björg Snorradóttir
Elín Salka Snorradóttir
Guðrún Helga Guðfinnsdóttir
Þorkell Máni Guðfinnsson
Innilegar þakkir sendum við öllum
þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs manns
míns, föður okkar, bróður og afa,
Hauks Kristjánssonar
fyrrum tæknifræðings,
Aragötu 12, 101 Reykjavík.
Hildur Hafstað
Sigríður Helga Hauksdóttir
Hafrún Hauksdóttir
Áslaug Kristjánsdóttir
Petra Kristjánsdóttir
Erlingur Kristjánsson
Vilhjálmur Kristjánsson
og barnabörn
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.