Fréttablaðið - 13.11.2010, Page 96
64 13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Sirkus Sóley
Sigríður Guðnadóttir
Sirkus Ísland
NÆSTA VIKA:
Nánar á www.tjarnarbio.isUnglist
Hjaltalín
18.NÓV.
5.-13.NÓV.
FORSÝNING
16.NÓV.
19.-20.NÓV.
FRUMSÝNING
17.NÓV.Mojito
Nýtt leikverk eftir Jón Atla
TÓNLEIKAR
ÚTGÁFUTÓNL.
SUNNUDAGAR
ERU FJÖL-
SKYLDUDAGAR
Miðasalan er opin
virka daga frá kl. 13-15
Sími: 527 2100
www.tjarnarbio.is Tjarnargötu 12 - 101 Reykjavík
SUN 14.NÓV.
FJÖREGG
Barnamenning
í Norræna húsinu
„... og svo verð ég í Norræna húsinu“
Myndlistasýning Ísaks Óla
í anddyri Norræna hússins
frá 14. nóvember - 2. janúar
Norræna húsið | Sturlugötu 5 | 101 Reykjavík | Sími 551 7030 | www.norraenahusid.is
Geislaþræðir heitir fyrsta
skáldsaga Sigríðar Péturs-
dóttur, kvikmyndafræðings
og útvarpskonu, sem kom
út á dögunum. Þar er rýnt
í samskipti fólks á netinu.
Efnið hefur verið Sigríði
hugleikið lengi en hún hefur
unnið að bókinni í rúmlega
áratug.
Í Geislaþráðum liggja leiðir fólks
saman á netinu. Bókin er skrifuð
í formi tölvuskeyta milli ólíkra
einstaklinga, til dæmis ófrískrar
íslenskrar unglingsstúlku og aldr-
aðrar konu frá Ástralíu og feðg-
anna Gunnars og Árna Þorkels
sem skrifast á yfir hafið.
Sigríður fékk hugmyndina að
bókinni árið 1999 þegar hún vann
að útvarpsþætti sem hét Stafræn
ást og fjallaði um fólk sem hafði
hist á netinu.
„Á þeim tíma var ekki auðvelt að
fá fólk til að tala opinberlega um
að það hefði hist á netinu,“ rifjar
hún upp. „Ég fann samt eitt par,
sem var ekki nóg til að halda uppi
heilum útvarpsþætti. Í staðinn
skrifaði ég sögu upp úr frásögn
þeirra sem leikarar lásu og var
hluti af þættinum. Það var mjög
skemmtilegt og mér fannst hug-
myndin bjóða upp á margt fleira.
Þannig að verkefnið vatt upp á sig
og ég hef verið að skrifa þessa bók
undanfarin tíu ár.“
Sigríður hefur pælt mikið í net-
inu um árin.
„Ég fór í framhaldinu að spá í
hvernig venjulegt fólk skrifar sín
á milli á vefnum og sökkti mér í
tölvupóstarannsóknir. Það vildi
líka til að ég var í námi, lærði
bæði kvikmyndafræði og frásagn-
artækni í nýjum miðlum, þar sem
við rannsökuðum samskipti á net-
inu frá ýmsum hliðum.“
Þótt nýir miðlar hafi átt hug
Sigríðar undanfarin ár, hefur hún
ávallt alið með sér þann draum að
koma hugmyndum sínum á fram-
færi í gömlum miðli, bókinni.
„Það blundaði alltaf í mér þrá til
að skrifa bók; mig hefur langað
það svo lengi sem ég man.“ Með
Geislaþráðum hefur draumurinn
ræst, ári áður en hún verður fimm-
tug. Hvers vegna dróst þetta svona
á langinn?
„Það kemur ýmislegt til. Fyrst
og fremst var það bara skræfu-
skapur, mér fannst það sem ég
skrifaði aldrei nógu gott. En svo
burstast það af manni með árun-
um. Svo er það auðvitað brauð-
baráttan og baslið. En fyrir átta
árum eignaðist ég mann. Þegar
tveir eru til að sjá um fjölskyldu
hefur maður allt í einu helm-
ingi meiri tíma en áður. Það má
kannski segja að þetta sé mannin-
um mínum og syni mínum, sem nú
er orðinn tvítugur, að þakka. Þeir
létu mig ekki í friði með þetta og
hvöttu mig stanslaust áfram.“
Formið setti líka strik í reikn-
inginn; bókin er öll skrifuð í formi
bréfa og Sigríður segir það hafa
verið töluverða glímu að búa til
skýrar persónur án þess að geta
lýst þeim.
„Ég setti mér líka þá reglu að
hafa persónurnar hversdagslegt
fólk. Það getur vissulega verið
erfitt að búa til slíkar persónur,
þannig að þær lifni við í huga les-
andans, auk þess sem bréfaform-
ið getur verið strembið. En fyrst
og fremst var þetta afskaplega
skemmtilegt,“ segir Sigríður, sem
er þegar byrjuð á skáldsögu. „Ég
hugsa að ég verði talsvert fljótari
með hana en þessa.“
bergsteinn@frettabladid.is
Bandbreiddin á milli okkar
SIGRÍÐUR PÉTURSDÓTTIR Hefur langað að gefa út bók svo lengi sem hún man eftir sér og vann að Geislaþráðun í áratug áður en
draumurinn rættist. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
64
menning@frettabladid.is
MENNINGARBRÆÐINGUR Meistaranemar í hagnýtri menningarmiðlun við HÍ standa fyrir ráðstefnunni Menningarbræð-
ingur í Öskju í dag. Á ráðstefnunni verða flutt 33 erindi, meðal annars um lofgjörð til líkamans, Harry Potter, vörumerkið „Ég“ og
baráttu Eyjamanna við náttúruöflin. Ráðstefnan stendur frá klukkan 9 til 17 í dag.
Framlag Ríkisútvarpsins til
íslenskrar leiklistar verður til
umfjöllunar á málþingi sem leik-
minjasafn Íslands stendur fyrir í
Þjóðminjasafninu í dag. Málþingið
ber yfirskriftina Höfum við geng-
ið til góðs? og er haldið í tilefni af
80 ára afmæli RÚV.
Leikflutningur var vinsæll dag-
skrárliður í Ríkisútvarpinu og
Sjónvarpinu á árdögum þeirra en
dregið hefur úr gerð leikins efnis í
sjónvarpi á undanförnum árum.
Á málþinginu verða flutt fjögur
stutt erindi fræðilegs efnis, og að
þeim loknum tvö erindi um stöðu
leikins efnis í dagskrá Útvarps og
Sjónvarps um þessar mundir. Að
þeim loknum verða pallborðsum-
ræður með þátttöku Páls Magn-
ússonar útvarpsstjóra og Viðars
Eggertssonar, verkefnisstjóra leik-
listar hjá RÚV.
Málþingið hefst klukkan ellefu.
Leiklistin
og RÚV