Fréttablaðið - 13.11.2010, Page 110
13. nóvember 2010 LAUGARDAGUR78
sport@frettabladid.is
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
Það er óhætt að lofa gríðarlegri spennu í kappakstrinum
í Abu Dhabi um helgina enda eiga Fernando Alonso,
Mark Webber, Sebastian Vettel og Lewis Hamilton allir
möguleika á meistaratitli ökuþóra. Búðu þig undir stóra
daginn með því að lesa Formúlu 1 fréttir á visir.is. Sjáðu
brautarlýsingu, tölfræði og fleira á kappakstur.is.
Misstu ekki af Formúlunni um helgina. Það verður
barist til síðasta bensíndropa!
ÚRSLITASTUND Í FORMÚLUNNI
TÍMATÖKUR HEFJAST Í DAG KL. 12:45
KAPPAKSTURINN Á MORGUN KL. 12:30HVER EKUR TIL SIGURS UM HELGINA?Fíton/
S
Í
A
Iceland Express karla
KR-Njarðvík 92-69 (50-40)
Stig KR: Pavel Ermolinskij 35 (13 frák.), Marcus
Walker 19, Brynjar Þór Björnss. 12 , Finnur Atli
Magnúss. 10 (9 frák.), Fannar Ólafss. 9, Hreggvið
ur Magnúss. 5, Ólafur Már Ægisson 2.
Stig Njarðvík: Guðmundur Jónsson 22, Chris
topher Smith 22, Rúnar Ingi Erlingsson 6, Friðrik
E. Stefánsson 5, Egill Jónasson 4, Jóhann Árni
Ólafsson 3, Hjörtur Hrafn Einarsson 3, Kristján
Rúnar Sigurðsson 2, Lárus Jónsson 2.
Stjarnan-Tindastóll 88-89 (46-42)
Stigahæstir: Justin Shouse 23, Jovan Zdra
vevski 18, Fannar Freyr Helgason 16, Guðjón
Lárusson 10 - Sean Cunningham 19 (8 stoðs.),
Friðrik Hreinsson 17, Dragoljub Kitanovic 15,
Loftur Páll Eiríksson 14, Helgi Rafn Viggósson 10
Sænski körfuboltinn
Sundsvall-Södertälje 83-89
Hlynur Bæringsson 16 stig (15 frák., 7 stoðs) og
Jakob Örn Sigurðarson 6 stig fyrir Sundsvall.
Solna-Örebro 85-78
Logi Gunnarsson skoraði 24 stig fyrir Solna.
N1 deild kvenna í handb.
Haukar-Fylkir 20-25 (8-12)
Markahæstar: Þórunn Friðriksdóttir 7, Hekla
Hannesdóttir 3, Viktoria Valdimarsdóttir 3, Þórdís
Helgadóttir 2, Katarína Bamruk 2 - Sunna
María Einarsdóttir 5, Tinna Soffía Traustadóttir
5, Sigríður Hauksdóttir 4, Elín Helga Jónsdóttir
4, Arna Erlingsdóttir 4, Nataly Sæunn Valencia 3.
HK-Stjarnan 36-46 (18-19)
Markahæstar: Elísa Ósk Viðarsdóttir 8, Brynja
Magnúsdóttir 8, Elín Anna Baldursdóttir 6, Elva
Björg Arnarsdóttir 4, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir
4, Tinna Rögnvaldsdóttir 2 - Þorgerður Anna Atla-
dóttir 10, Hanna Guðrún Stefánsdóttir 8, Sólveig
Lára Kjærnested 7, Esther Viktoría Ragnarsdóttir
6, Hildur Harðardóttir 5, Elísabet Gunnarsdóttir 5,
Þórhildur Gunnarsdóttir 2,.
ÚRSLITN Í GÆR
SUND Hrafnhildur Lúthersdóttir
úr SH vann í gær tvær greinar á
Íslandsmeistaramótinu í 25 metra
laug. Fyrst synti hún á á 1:02,22
mínútum í 100 m fjórsundi og svo
á 2:27,69 mínútum í úrslitunum í
200 metra bringusundi.
Ragnheiður Ragnarsdóttir setti
eina Íslandsmetið en það hafa
verið sett níu aldursflokkamet á
mótinu þar af á Fjölnismaðurinn
Kristinn Þórarinsson sjö. - óój
Íslandsmeistarar í gær
100 metra fjórsund
Karlar Kolbeinn Hrafnkelsson, SH
Konur Hrafnhildur Lúthersdóttir, SH
100 metra skriðsund
Karlar Orri Freyr Guðmundsson, SH
Konur Ragnheiður Ragnarsdóttir, KR
200 metra flugsund
Karlar Anton Sveinn McKee, Ægir
Konur Salome Jónsdóttir, ÍA
200 metra bringusund
Karlar Jakob Jóhann Sveinsson, Ægir
Konur Hrafnhildur Lúthersdóttir, SH
50 metra baksund
Karlar Kolbeinn Hrafnkelsson, SH
Konur Ingibjörg Kristín Jónsdóttir, SH
ÍM í 25 metra laug í gær:
Hrafnhildur
vann tvö gull
TVÖ GULL Á 40 MÍNÚTUM Hrafnhildur
Lúthersdóttir úr SH. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
RAGNHEIÐUR RAGNARSDÓTTIR, sundkona úr KR, setti nýtt og glæsilegt Íslandsmet í 100 metra skriðsundi á
Íslandsmeistaramótinu í 25 metra laug í Laugardalslauginni í gær. Ragnheiður náði sjötta besta tímanum í Evrópu á árinu
þegar hún kom í mark á 54,65 sekúndum. Ragnheiður átti gamla metið einnig en hún synti á 54,76 sekúndum fyrir ári
síðan.
KÖRFUBOLTI KR-ingar fóru upp í 3. sæti Iceland
Express-deildar karla eftir 23 stiga sigur á Njarð-
vík, 92-69, í DHL-höllinni í gærkvöldi. KR-liðið fór
upp að hlið Stjörnunnar sem tapaði óvænt 88-89 á
heimavelli fyrir botnliði Tindastóls.
KR-ingar voru sterkari allan leikinn og héldu
góðu forskoti fyrri hálfleikinn og þrátt fyrir góðan
kafla Njarðvíkur í seinni hálfleik setti KR í gírinn
og endaði á að tryggja sér 23-stiga sigur. „Það er
mjög gott að vera kominn aftur á sigurbraut og mér
fannst enn þá betra hvernig við spiluðum leikinn,
við spiluðum körfubolta eins og við viljum spila
körfubolta,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR.
„Alltaf þegar við spiluðum okkar leik fannst mér
ganga vel, við spilum inn á körfuna og þá náum við
þessum mun upp. Við skjótum fimm þriggja stiga
skotum í röð og þá ná þeir að minnka muninn en
við tókum leikhlé og löguðum leik okkar,“ sagði
Hrafn.
„Þetta var kaflaskipt, það voru margir léleg-
ir kaflar og einn sem var ágætur,“ sagði Sigurður
Ingimundarson, þjálfari Njarðvíkur. „Við byrj-
um seinni hálfleikinn vel og leyfum þeim varla að
skora fyrstu 7 mínúturnar en svo ná þeir tveimur
körfum og þá hættum við. KR-ingar spiluðu mjög
vel eftir það en það var meira að við hættum að
spila okkar leik”
Pavel Ermolinskij átti frábæran leik hjá KR en
hann var með 35 stig og 13 fráköst.
Stjörnumenn misstu niður átta stiga forskot á
síðustu þremur mínútunum og urðu fyrsta úrvals-
deildarliðið til þess að tapa fyrir Tindastól í vetur.
Friðrik Hreinsson skoraði sigurkörfuna þegar
3,2 sekúndur voru eftir og það er ljóst að nýir leik-
menn eru búnir að kveikja neistann í liðinu. - kpt, -óój
KR aftur á sigurbrautina
KR-ingar unnu 23 stiga sigur á Njarðvík í DHL-höllinni í gær. Pavel Ermolinskij
fór á kostum og skoraði 35 stig. Friðrik Hreinsson tryggði Tindastól fyrsta sigur
sinn í deildinni með þriggja stiga körfu þremur sekúndum fyrir leikslok.
35 STIG OG 13 FRÁKÖST Pavel Ermolinskij átti flottan leik með KR í
öruggum sigri á Njarðvík í DHL-höllinni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL