Fréttablaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 128
Mest lesið
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Rybak með þrem
Nú styttist í að Alexander Rybak,
norska Eurovision-stjarnan, þenji
raddböndin í Laugardalshöllinni
en hann kemur fram á Jólagestum
Björgvins Halldórssonar hinn 4.
desember næstkomandi. Rybak
kemur ekki einn til landsins því þrír
kvenkyns fiðluleikarar eru einnig
væntanlegir með honum. Rybak,
sem er sjálfur liðtækur
fiðluleikari, ætlar því að
ganga úr skugga um að
ekkert klikki þegar hann
syngur fyrir íslenska
þjóð.
Fljúga saman
Gestir Björgvins bíða væntanlega
spenntastir eftir því að Rybak og
Jóhanna Guðrún syngi dúett
saman en þau höfnuðu í fyrsta og
öðru sæti í Eurovision-keppnninni
2009 sem þá fór fram í Moskvu.
Svo skemmtilega vill reyndar til að
Jóhanna og Rybak fljúga saman
til Íslands frá
Kaupmanna-
höfn því
Jóhanna þarf
að syngja á tón-
leikum í Svíþjóð
áður en hún
flytur jólalögin
í Laugardals-
höll.
Auglýsingasími
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
Útgáfudagur hjá Yrsu
Spennusagan Ég man þig eftir
Yrsu Sigurðardóttur kemur út í
dag. Höfundurinn fetar nýjar slóðir
í henni, Þóra lögmaður fær frí
en í staðinn segir hún sögu sem
gerist á Hesteyri í Jökulfjörðum og
á Ísafirði. Sjálf er Yrsa fjarri góðu
gamni á útgáfudeginum því að hún
flaug til Parísar í gær, meðal annars
til að hitta útgefanda sinn ytra og
undirbúa jarðveginn fyrir útkomu
bóka sinna þar í landi í febrúar á
næsta ári. - fgg , hdm
1 Engu munaði að Qantas
risaþotan færist
2 Marinó G. Njálsson: „Já, mér
finnst óeðlilegt að spyrja“
3 Nígeríumenn kvarta undan
svindlara á Íslandi
4 Rauðvínið reyndist vera
amfetamínbasi
5 Ruddist inn og lamdi
fyrrverandi sambýliskonu