Fréttablaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 86
54 20. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
L
ýsingarorðið settlegur á best við þegar
talað er um prinsessur. Þær eru, eða
eiga að vera, settlegar í framkomu, mál-
fari og klæðaburði. Allt straujað og stíft
og pífukjólar í væmnum litum virðast
einkennisbúningar prinsessna.
Ungu prinsessurnar í nágrannalöndum okkar
virðast sumar ætla að falla í þessa gryfju, að
klæða sig svo settlega að þær bæta mörgum árum
á sig. Aðrar þora samt að taka skrefið í átt að
nútímanum þrátt fyrir að bera demantakórónu.
Prinsessudraumurinn
Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera prinsessa. Endalaus boð og bönn og þá sérstaklega varðandi hverju skal klæðast
og hverju ekki. Sumar eru smart en aðrar virðast ekki geta tekið góðar ákvarðanir varðandi klæðaburð. Álfrún Pálsdóttir komst
að því að tískuvitið fylgir ekki alltaf prinsessutitlinum.
LJÓSBLÁTT Tilvonandi drottning Noregs, Mette Marit, var ekk-
ert sérlega smart í brúðkaupi Viktoríu Svíaprinsessu í sumar.
Hún var þó í stíl við dregilinn.
TILVONANDI DANADROTTNING Hin ástralska Mary,
sem er gift Friðriki krónprins, hefur hlotið mikið
lof í Danmörku fyrir að þora að klæðast nýjustu
tísku og ber hún oftast af í konunglegum veislum
þar sem pífur og sykursætir litir eru allsráðandi.
NÝGRÆÐINGURINN Ætli Kate Middleton, sem er nýtrúlof-
uð inn í bresku konungsfjölskylduna, verði ein af þessum
gamaldags prinsessum eða verðandi tískufyrirmynd?
Skandinavískir miðlar vilja líka henni við Mary Dana-
prinsessu en aðrir staðhæfa að hún muni þurfa að fylgja
ströngum reglum um klæðaburð. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
KLÚTUR Mette Marit var ekki
eins nútímaleg þegar hún
valdi að hafa þennan klút
um hálsinn.
FALLEGT
HÁRSKRAUT
Danska prins-
essan Mary
Donaldson kann
á klæða sig.
Hér er hún í
skrautlegri kápu
og gefur hár-
skrautið þessu
skemmtilegan
blæ.
KRÓNPRINSESSAN Viktoría
krónprinsessa hefur tekið sig á
í fatavali eftir að hún gifti sig,
Það er sjaldgæf sjón að sjá
prinsessur í stuttum kjólum við
opinber tilefni eins og þessum
ljósbláa. Þó svo að hún klæðist
frekar settlegri drakt tekst henni
að flikka upp á hana með stórri
nælu.
ÚTI ER ÆVINTÝRI: SYKURHÚÐIR KJÓLAR ÆTTU AÐ HEYRA SÖGUNNI TIL
NÚTÍMALEGAR: PRINSESSUR SEM ÞORA AÐ GANGA Í NÝJUSTU TÍSKU
SAMFESTINGUR
Mary gengur hér
skrefinu lengra og
klæðist skemmti-
legum samfestingi
á rauða dregl-
inum.
HRESSANDI Alþýðustúlkan Mette
Marit tók létt spor á Nóbelshátíð-
inni í fyrra í fallegum vínrauðum
kjól.
UTANAÐKOMANDI Mary og Mette Marit eru giftar inn í
konungsfjölskyldur á Norðurlöndunum. Þær hafa báðar þótt
nútímalegar í klæðaburði. Vonum bara að þær detti ekki í
sama farið og margar aðrar prinsessur.
EKKI NÓGU GOTT Svíar eru ekki ánægðir með yngstu prinsessu konungsfjöl-
skyldunnar, Madeleine. Þarlendir tískuspekingar hafa gagnrýnt hana fyrir
að vera of sólbrún, með of ljóst hár og að klæðast ekki í samræmi við tísku
nútímans. Dæmi hver fyrir sig en þess ber að geta að Madeleine er 27 ára
gömul.
SYKURHÚÐAÐ Madeleine Svíaprins-
essu tókst að bæta á sig mörgum
árum með að klæðast þessum ljós-
bláa pífukjól við demantakórónuna í
brúðkaupi systur sinnar í sumar.