Fréttablaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 94
62 20. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Fyrir réttum 40 árum, aðfaranótt 13. nóvember 1970, gekk fellibylurinn
Bhola á land í Austur-Pakistan, sem nú
kallast Bangladesh, og olli þar gríðar-
legu mannfalli. Þegar óviðrinu slotaði
lágu um 500.000 manns í valnum og er
þetta því meðal allra mannskæðustu
náttúruhamfara seinni ára.
Stormurinn myndaðist á Bengalflóa
og vatt fljótt upp á sig á leiðinni norður
að óshólmum Ganges. Þegar stormurinn
skall á ströndinni og eyjunum þar fyrir
utan var hann í hámarki og vindhraðinn
var um 185 km/klst í verstu hviðum.
Hann olli gríðarlegum flóðum og
var hæsta flóðaldan um 10 metra há.
Stormurinn þurrkaði nær út allt mann-
líf og uppskeru á eyjunum og óshólmasvæðunum. Verulega dró úr
styrk fellibylsins eftir að hann gekk á land og var versta óviðrið að
mestu yfirstaðið að kvöldi.
Afleiðingarnar voru hins vegar skelfilegar og var mannfallið einna
mest í hópi barna, en talið er að um helmingur þeirra sem létust hafi
verið börn undir tíu ára aldri.
Viðbrögð stjórnvalda einkenndust öðru
fremur af vanmati þar sem einungis fjórar
flugvélar voru nýttar í hjálparstörf framan
af og forseti Pakistan, Yahya Khan, kom ekki
á hamfarasvæðin fyrr en hann flaug þar yfir
hinn 16. nóvember og hann lýsti yfir þjóðar-
sorg hinn 21. nóvember, rúmri viku eftir að
fellibylurinn gekk á land.
Ástandið skánaði ekki mikið á næstu mán-
uðum þar sem hjálparstarf gekk hægt og ólga
óx stöðugt meðal íbúa hrjáðu svæðanna, sem
fannst þeir vera sniðgengnir af sinnulausum stjórnvöldum.
Þetta varð svo til þess að hrinda af stað borgarastyrjöld, sem lauk í
desember 1971 með því að Bangladesh lýsti yfir sjálfstæði sínu.
Fólkið á hamfarasvæðinu mætti mikilli samúð á alþjóðavettvangi
þar sem fjöldi ríkja, stofnana og samtaka aðstoðaði með styrkjum eða
beinum aðgerðum. Þá var brotið blað í tónlistarsögunni þegar Bítillinn
fyrrverandi George Harrison hélt styrktartónleika í New York þar
sem meðal annars komu fram Eric Clapton og Bob Dylan, og hundr-
uð milljóna dala söfnuðust til hjálparstarfa.
Enn þann dag í dag er Bangladesh viðkvæmt fyrir náttúruhamför-
um, en fyrirbyggjandi ráðstafanir voru gerðar eftir Bhola-fellibylinn.
Þær komu að góðum notum þegar enn sterkari fellibylur gekk yfir
svæðið árið 1991. Þrátt fyrir að mannfall hafi þá einnig verið gífur-
legt, var komið í veg fyrir verri hamfarir með sérstökum skýlum og
viðbragðsáætlunum. - þj
Heimild: Wikipedia.org
Kaka, fræðslufundur og rokk
MYNDBROT ÚR DEGI | Föstudaginn 12. nóvember | Myndavél: Canon IXUS
Karl Tómasson, trommuleikari Gildrunnar og forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar, átti nokkuð annríkt síðastliðinn föstudag en
þá fóru fram útgáfutónleikar Vorkvölds, þrjátíu ára afmælisdisks sveitarinnar. Hann smellti nokkrum myndum af deginum.
Í ÞÁ TÍÐ...
1900ÁR 201020001950 1970
Mannskæðasti fellibylur allra tíma
Náttúruhamfarir hleyptu af stað frelsisstríði
6 Að loknum tónleikunum okkar árituðum við nýja geisladiskinn okkar og var sér-
lega gaman að hitta tónleikagestina.
5 Þarna erum við gömlu félagarnir í Gildr-unni á sviðinu í Austurbæ, á einum eftir-
minnilegustu tónleikum sem við höfum
nokkru sinni haldið, hreint stórkostleg og
ógleymanleg uppákoma. Fólkið í salnum var
einstakt og móttökurnar hlýlegri en orð fá
lýst.
4 Þarna voru aðeins nokkrar mínútur í það að við félagarnir færum á sviðið í Austurbæ. Við vorum
allir fullir eftirvæntingar og einnig smá kvíða. Á
myndinni eru efst til vinstri: Þórhallur Árnason bassa-
leikari, Vignir Stefánsson hljómborðsleikari, Bjarni
Friðriksson hljóðmaður og Sigurgeir Sigmundsson
gítarleikari. Neðri röð frá vinstri: Birgir Haraldsson
söngvari og Karl Tómasson trommari.
3 Þá var komið að því að pakka saman trommusettinu á heim-ili mínu fyrir stórtónleika okkar Gildrufélaga í Austurbæ.
Hljóðprufuna hófum við um kl. 16.00 og gekk hún mjög vel.
2 Í hádeginu átti ég fund með Haraldi Sverrissyni, bæjarstjóra Mosfellsbæjar, og Birni Þráni Þórðar-
syni, forstöðumanni fræðslu- og menningarsviðs.
Þessa dagana er unnið hörðum höndum að fjárhags-
áætlun bæjarins.
1 Ég hóf dag-inn á góðum
kafibolla,
kröftugri, nær-
ingarríkri og
góðri köku á
Kaffihúsinu
og gallerýinu
á Álafossi, hjá
Gullu og Gunn-
ari. Þangað
legg ég oft leið
mína.