Fréttablaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 120
88 20. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Chelsea og Manchester
United hafa nánast einokað titil-
baráttuna í ensku úrvalsdeildinni
síðustu ár en báðum liðum hefur
gengið nokkuð erfiðlega að finna
sama stöðugleika og hefur ein-
kennt liðin á undanförnum leiktíð-
um. Arsenal hefur ekki unnið titil
í fimm ár og á í dag möguleika á
að því að komast í toppsæti ensku
úrvalsdeildarinnar með sigri á
grönnum sínum og erkifjendum í
Tottenham.
Lundúnaslagurinn er hádegis-
leikur dagsins á Englandi og með
sigri kemst Arsenal einu stigi upp
fyrir Chelsea sem á leik síðar í
dag. Chelsea hefur haldið topp-
sætinu þrátt fyrir að hafa tapað
tveimur af síðustu þremur leikjum
sínum en gæti misst það í dag, þó
ekki nema um stundarsakir.
„Er komið að okkur að vinna tit-
ilinn? Það er um að gera að vera
jákvæður gagnvart framtíðinni og
það getur vel verið að það sé komið
að okkur,“ sagði Frakkinn Samir
Nasri, leikmaður Arsenal, sem
átti stórleik í vináttulandsleikn-
um gegn Englandi í vikunni.
„Þetta verður sannarlega ekki
auðveldur leikur en mér finnst að
orðspor okkar hafi ekki verið jafn
gott í langan tíma og við höfum allt
sem þarf til að standa okkur vel.“
Leikurinn fer fram á Emirates-
leikvanginum í dag en heimavöll-
ur Arsenal hefur ekki reynst sama
vígi í ár eins og oft áður. Liðið tap-
aði þar fyrr í haust fyrir West
Brom og fyrir Newcastle fyrir
tveimur vikum.
Tottenham hefur ekki náð að
fylgja eftir góðu gengi í Meistara-
deildinni og er nú þremur stigum
frá Meistaradeildarsæti í sjöunda
sæti deildarinnar. Liðið þarf því
helst að sigra í dag til að missa
ekki toppliðin of langt frá sér.
Gareth Bale er skærasta stjarna
liðsins um þessar mundir og ekki
að ástæðulausu. Hann hefur sýnt
snilldartakta á leiktíðinni og ætlar
ekkert að gefa eftir gegn Arsenal.
„Eins og er þurfum við að vinna
hvern einasta leik sem við förum
í,“ sagði Bale við enska fjölmiðla.
„Og við höfum sýnt að við getum
unnið hvaða lið sem er. Það verð-
ur auðvitað mjög erfitt að spila við
Arsenal á Emirates-leikvanginum
en við verðum tilbúnir í slaginn
þegar leikurinn hefst.“
Erfitt hjá Chelsea
Englandsmeistararnir fengu 3-
0 skell gegn Sunderland á heima-
velli um síðustu helgi og vilja
sjálfsagt ólmir komast aftur á sig-
urbraut. Þeir eiga þó erfiðan leik
fyrir höndum gegn Birmingham á
útivelli í dag og ekki síst fyrir þær
sakir að margir leikmenn liðsins
eiga við meiðsli að stríða.
Fyrst og fremst er liðið án
tveggja þungavigtarmanna sem
hafa verið lykilmenn í liðinu meira
eða minna í áratug, þeirra John
Terry og Frank Lampard. Báðir
eru meiddir, rétt eins og Yury
Zhirkov og Yossi Benayoun. Auk
þess mun Michael Essien taka út
leikbann.
Góðu fréttirnar eru hins vegar
þær að Brasilíumaðurinn Alex
verður í liðinu í dag og mun lík-
lega spila við hlið Branislavs Ivan-
ovic í vörninni. Alex þarf að fara
í aðgerð vegna hnémeiðsla en gat
æft með brasilíska landsliðinu í
vikunni.
„Við vitum að hann þarf að fara
í aðgerð en það er hægt að fresta
því eitthvað. Það er engin áhætta
fólgin í því að láta hann spila en
hann þarf samt að ná sér af hné-
meiðslunum,“ sagði Carlo Ance-
lotti, stjóri Chelsea.
Rooney á bekknum
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchest-
er United, hefur staðfest að Wayne
Rooney geti mögulega komið við
sögu í leiknum gegn Wigan í dag.
Rooney hefur verið frá síðan hann
kom inn á sem varamaður gegn
West Brom í síðasta mánuði.
Ef hann spilar í dag verður það
fyrsti leikur hans síðan fréttir af
samningamálum hans náðu ótrú-
legum hæðum í fjölmiðlum í síð-
asta mánuði.
„Ég held að hann verði ekki í
byrjunarliðinu á morgun,“ sagði
Ferguson í gær. „En hann kemst
kannski á bekkinn. Hann spilar þó
vafalaust í leiknum gegn Rangers
[í Meistaradeildinni] á miðviku-
daginn.“
United er í þriðja sæti deildar-
innar og hefur gert tvö jafntefli
í deildinni í röð. Liðið er reyndar
enn taplaust í deildinni en á fleiri
jafntefli (7) en sigra (6) til þessa.
Enginn Gerrard
Liverpool spilar sinn fyrsta leik í
dag eftir að fréttir bárust af því að
fyrirliðinn Steven Gerrard yrði frá
í 3-4 vikur vegna meiðslanna sem
hann hlaut í landsleik Englands
og Frakklands í vikunni. Forráða-
menn félagsins eru æfir út í Fabio
Capello landsliðsþjálfara fyrir að
láta hann spila nánast allan leik-
inn. Capello lætur það þó ekki á sig
fá og hefur harðneitað að biðjast
afsökunar á þessu.
Það eru þó góðar fréttir fyrir
Liverpool að Fernando Torres
getur spilað í leiknum gegn West
Ham í dag, sem og Dirk Kuyt,
Martin Skrtel og Glen Johnson.
West Ham er á botni ensku
úrvalsdeildarinnar og verður þar
að auki án síns besta leikmanns,
Scotts Parker, sem er meiddur.
eirikur@frettabladid.is
Arsenal þarf að nýta tækifærið
Toppliðin þrjú í ensku úrvalsdeildinni verða öll í eldlínunni í dag. Arsenal á möguleika á að komast á
toppinn, um stundarsakir að minnsta kosti, með sigri á erkifjendum sínum í Tottenham í hádeginu.
MÆTAST Í DAG Samir Nasri hjá Arsenal og Gareth Bale hjá Tottenham. NORDICPHOTOS/AFP
Leikir helgarinnar
Laugardagur:
Arsenal - Tottenham 12.45
Blackpool - Wolves 15.00
Bolton - Newcastle 15.00
Birmingham - Chelsea 15.00
Manchester United - Wigan 15.00
West Brom - Stoke 15.00
Liverpool - West Ham 17.30
Sunnudagur:
Blackburn - Aston Villa 13.30
Fulham - Manchester City 16.00
HANDBOLTI Það verður stórleikur í
Kaplakrikanum í dag þegar topplið
N1-deildar karla, Akureyri, heim-
sækir FH-inga sem fyrir mótið
var spáð Íslandsmeistaratitlinum.
Akureyri hefur unnið alla átta
leiki sína í deild og bikar á tímabil-
inu og hefur fjögurra stiga forskot
á FH-liðið sem er í 4. sætinu.
Bjarni Fritzson kom til Akureyr-
ar fyrir tímabilið og hefur því
ekki enn tapað alvöruleik með
liðinu. „Við erum með rosalega
efnilega stráka í liðinu sem
menn eru aðeins að líta framhjá
á meðan þeir upphefja aðra unga
leikmenn. Þessir strákar hafa
staðið sig virkilega vel og það
eru líka fleiri á bekknum
þannig að maður finn-
ur alltaf vel fyrir því á
æfingum. Það eru allir
voðalega graðir og
tilbúnir að sanna
sig, sem er ótrú-
lega gott fyrir
okkur,” segir
Bjarni.
„Við
spilum
frábæra
vörn á
köflum
með
mjög sterkan markmann sem er
lykillinn að góðum árangri. Við
erum samt ekkert nálægt því að
vera búnir að toppa því við erum
oft búnir að vera lélegir inni á
milli en höfum náð að klára leik-
ina og það er það sem skiptir öllu
máli,“ segir Bjarni.
Bjarni lék með FH í fyrra-
vetur og var þá markakóng-
ur deildarinnar. Hann
skipti í Akureyri fyrir
tímabilið og hefur skor-
að 8,5 mörk að meðal tali
í sex sigurleikjum liðs-
ins í N1-deildinni. Bjarni
mætir í dag gömlu félög-
unum sínum úr
FH. „Það er mjög skemmtilegt að
spila í Krikanum með húsið troð-
fullt þó að það sé örugglega betra
þegar maður var með þá með sér.
Við verðum að sjá til hvernig það
er að hafa þá á móti sér. Það á eftir
að koma í ljós hvort þeir láti mann
heyra það,“ segir Bjarni en hann á
góðar minningar úr FH.
„Mér leið mjög vel í FH og það
kom alveg til greina hjá mér að
vera þar áfram. Það er ekkert kalt
þarna á milli því ég hafði afskap-
lega gaman af því að spila með
þeim. Það verður gaman að koma
aftur þó að það sé bara í
heimsókn. Þeir eru með
frábært lið og ég sé bara
fram á ótrúlega flottan
leik sem verður spenn-
andi og skemmtilegur,”
segir Bjarni. En styttist
ekki alltaf í fyrsta tapleik-
inn?
„Það er ekkert endilega mark-
mið hjá okkur að fara í gegnum
þetta mót taplausir. Það er engin
pressa á okkur þótt við séum ekki
búnir að tapa. Það sýnir bara að
við erum stöðugir og flottir. Liðin
mega alveg vanmeta okkur áfram
því það er bara frábært,“ segir
Bjarni að lokum en leikur FH og
Akureyrar hefst klukkan 15.45 í
dag.
- óój
Topplið Akureyrar heimasækir meistaraefnin í FH í Kaplakrikann í dag:
Frábært ef liðin myndu halda
áfram að vanmeta okkur
8,5 MÖRK Í LEIK
Bjarni Fritzson
hefur fundið sig
vel í Akureyrar-
liðinu og er með
markahæstu
mönnum í N1-
deild karla.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Á heimasíðu KSÍ, ksi.is,
má lesa tvo áhugaverða pistla um
kosti og galla gervigrass. Hinn
fyrri ritar Lúðvík Georgsson,
formaður mannvirkjanefndar
KSÍ, þar sem hann talar um kosti
gervigrasvalla.
Lúðvík gagnrýnir þá íhalds-
semi sem sé í umræðunni hér á
landi um gervigrasvelli. Lúðvík
vill sjá fleiri gervigrasvelli hér
á landi. Hann kallar eftir nýrri
hugsun svo hægt sé að leika fleiri
keppnisleiki og lengja tímabilið.
Lúðvík virðist líta svo á að það sé
ekki hægt nema spilað sé á gervi-
grasi eða inni í knattspyrnuhöll-
um.
Viðar Halldórsson, formaður
FH, er algjörlega ósammála
þessu mati Lúðvíks. Viðar segir
að lausnin liggi ekki í því að
fjölga gervigrasvöllum og hann
gagnrýnir mannvirkjanefndina
fyrir að einblína á gervigrasið í
stað þess að skoða aðra kosti.
Viðar vill sjá betri grasvelli
hér á landi sem hann segir ekki
kosta meira en lagning gervi-
grasvallar. Viðar segir að með
betra grasi, betri umhirðu, raf-
rænu sólarljósi, undirhita, yfir-
breiðslum, vökvunarkerfum og
öðru sé hægt að lengja tímabilið
utanhúss því slíkir grasvellir þoli
betur íslenskt veðurfar. Þar með
þurfi ekki að færa leiki inn í hús
til þess að lengja tímabilið.
Hægt er að lesa pistlana í heild
sinni á ksi.is.
- hbg
Deilt um gervigras:
Rafrænt sólar-
ljós hjálpar
„PLASTIГ Gervigasið er venjulega kallað
plast hér á landi. Það er ekki vinsælt
meðal íslenskra knattspyrnumanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
SHA-0207
Vinnuljóskastari
500W tvöfaldur á fæti
5.995
SHA-0203
Vinnuljóskastari 500W
m handf 1,8m snúra
4.295
2.195
SHA-2625
Vinnuljóskastari Rone
28W m. innst. blár
5.995
Ath. perur
fylgja
2.695 3.395
5.495
SHA-3901
Loftljós flúor rakaþ.
1x18w 67,5x11,2cm
SHA-3901A
Loftljós flúor rakaþ.
2x18w 67,5x16,6cm
SHA-3902A
Loftljós flúor rakaþ.
2x36w 128x16,6cm
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRI ÍÞRÓTTIR
Meiri Vísir.