Fréttablaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 110
20. nóvember 2010 LAUGARDAGUR
Þeir Guðmundur Kristinn Jónsson og Steinþór Helgi Arn-
steinsson, sem ráku útgáfufyrirtækið Borgina, fluttu sig
yfir til risans Senu fyrr á þessu ári. Flutningarnir hafa
borið góðan ávöxt fyrir þá og Senu því þrjár söluhæstu
plötur landsins um þessar mundir eru runnar
undan þeirra rifjum. Senumenn kynntu jóla-
útgáfuna í lúxussalnum í Smárabíói í gær og
buðu viðstöddum upp á popp og kók áður en
sýningin hófst.
Kynntu jólakræsingarnar
ÁNÆGÐIR MEÐ ÁRANGURINN Guðmundur Kristinn Jónsson má vera ánægður með framlag sitt til jólaplötuflóðsins. Hér er hann
með konu sinni, Maríu Rut Reynisdóttur, og Sigurði Guðmundssyni, félaga sínum úr Hjálmum og Memfismafíunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Bragi Valdimar Skúlason á ófáa dægur-
lagatextana í jólaplötuflóðinu.
Útvarps-
maður-
inn Felix
Bergs-
son var
á meðal
gesta.
Viktor Orri, Aron Steinn,
Steinþór Helgi og Hjörtur
Ingvi voru tilbúnir að
setjast í leðurstólana í
lúxussalnum.
Quadruple Spiral Projection, sem
listfræðingar telja vera fyrsta
mikilvæga verkið eftir íslenska
listamanninn Ólaf Elíasson, var
slegið hæstbjóðanda hjá norræna
uppboðshaldaranum Bukowski í
Stokkhólmi á miðvikudagskvöld.
Verkið fór á 37 milljónir íslenskra
eða rúmar 2,2 sænskra en sam-
kvæmt uppboðsskránni var jafn-
vel búist við því að verkið yrði
selt á þrjár milljónir sænskra.
Quadruple Spiral Projection er
þriggja metra hár skúlptúr sem
leikur sér með ljós- og skugga-
áhrif. Það var hannað árið 2004 en
eins og flestum ætti að vera kunn-
ugt um er Ólafur nú í fremstu röð
samtímalistamanna. Verkið er nú
í einkaeigu en fastlega má reikna
með því að verðgildi þess eigi eftir
að hækka haldi ferill Ólafs áfram
að vera jafn glæsilegur.
Framkvæmdastjóri Bukow-
ski, Mikael Storåkers, segir verk-
ið vera fallegt og einfalt og mikla
hönnun og henta vel þeim sem geti
haft verk eftir Ólaf Elíasson inni
hjá sér. „Ólafur er einn mikilvæg-
asti listamaður heims og það er því
mikill heiður fyrir þetta uppboðs-
fyrirtæki að fá að bjóða upp svona
mikilvægt verk eftir hann hérna í
Svíþjóð.“ Ýmis listaverk og hönn-
unarvörur voru boðin upp þetta
kvöld og mátti meðal annars sjá
hluti eftir Arne Jakobsen og Alvar
Aalto. - fgg
Ólafur seldur á 37 milljónir
VERÐMÆTUR Ólafur Elíasson er ákaflega
verðmætur en fyrsta, mikilvæga verkið
hans, Quadruple Spiral Projection, var
selt fyrir 37 milljónir í Svíþjóð á dögun-
um. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Egill Örn Egilsson, íslenskur kvik-
myndagerðarmaður í Hollywood,
leikstýrði nýverið þætti í banda-
rísku spennuþáttaröðinni Nikita
með Die Hard stjörnunni Maggie
Q í aðalhlutverki. Þættirnir hafa
hlotið mikið lof í Ameríku og fá
7,8 á imdb.com en þeir eru byggð-
ir á valinkunnri franskri mynd
um unga stúlku á refilstigum sem
bjargað er af leyniþjónustu Banda-
ríkjanna og í kjölfarið gerð út í
líki leigumorðingja. Meðal ann-
arra leikara í þáttunum má nefna
Shane West sem margir kannast
við úr ER og svo Lyndsy Fonseca
úr Kick-Ass.
Egill hefur áður sest í leik-
stjórastólinn í nokkrum vel þekkt-
um sjónvarpsþáttum, meðal ann-
ars CSI: Miami og Dark Blue með
Dylan McDermott í aðalhlutverki.
Þá leikstýrði
Egill einnig
þætti í lög-
fræðidram-
a n u T h e
Whole Truth
og svo prufu-
þætti fyrir
Miami Medical
sem Jerry Bruck-
heimer framleið-
ir en Egill er einmitt
aðaltökumaður í
þeirri þáttaröð.
- fgg
Gerði þátt með Maggie Q
BARA KREISTA!
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
0
-1
2
0
4
P.o. Box 126 ::: 121 Reykjavík ::: Sími 546 1984 ::: info@1984.is ::: www.1984.is
Hýsing og lén - allt á einum
stað fyrir eitt lágt verð.
628 kr./mán.*
*Miðað við 3 ára hýsingarsamning
Frábær tilboð alla helgina
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
O
L
5
21
41
1
0/
10
Auglýsingasími
LEIKSTÝRIR Egill Örn Egilsson gerir þætti
með leikkonunni Maggie Q.