Fréttablaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 68
20. nóvember 2010 LAUGARDAGUR10
Frá 1957
Elsta starfandi fasteignasala landsins
S í m i : 5 8 8 9 0 9 0 • S í ð u m ú l a 2 1 • 1 0 8 R e y k j a v í k • w w w . e i g n a m i d l u n . i s
Reykjavík Sverrir Kristinssonlögg. fasteignasali
Fagrihjalli 66, endaraðhús. Laust strax
OP
IÐ
HÚ
S
Gott endaraðhús á þremur hæðum með rúmgóðum bílskúr
og fjórum svefnherbergjum. Stór steypt verönd með heitum
potti og útsýni út frá annarri hæð. Þriðja hæðin er óskráð hjá
fasteignaskrá. Gott upphitað plan er fyrir framan húsið. Fyrsta
hæð skiptist í forstofu, hol, svefnherbergi, baðherbergi, sjón-
varps/bókahol, þvottahús og geymsla undir stiga. Önnur hæð
skiptist í stofu, snyrtingu, svefnherbergi og eldhús. Þriðja hæð
skiptist í tvö svefnherbergi.
Verð 39,9 milljónir.
Opið hús á morgun, sunnudag 21. nóv. frá kl. 14-15.
Hilmar Þór Hafsteinsson löggiltur fasteignasali s: 824 9098
Innritun í framhaldsskóla á
vorönn 2011
Innritun í dagskóla lýkur 26. nóvember nk. Einstakir
skólar kunna að bjóða upp á lengra innritunartíma-
bil og eru upplýsingar um það á vefsíðu viðkomandi
skóla. Rafrænt umsóknareyðublað og nauðsynlegar
upplýsingar um innritunina má nálgast á mennta-
gatt.is. Þar eru einnig upplýsingar um nám í fram-
haldsskólum og námsframboð.
Umsækjendur um nám í dagskóla
Umsækjendur sem ekki hafa veflykil tiltækan geta
sótt hann á menntagatt.is. Þegar umsækjendur hafa
fengið veflykil opnast þeim aðgangur að innrituninni.
Nemum sem koma erlendis frá er bent á að setja sig í
samband við þá skóla sem þeir hafa áhuga á að sækja
um.
Umsóknir um nám í kvöldskóla og fjarnám
Innritun í kvöldskóla, fjarnám og annað en nám í
dagskóla fer fram í þeim framhaldsskólum sem hafa
það í boði. Skólarnir auglýsa umsóknarfrest sjálfir og
leggja til umsóknareyðublöð. Umsækjendum er bent
á að snúa sér til viðkomandi skóla. Upplýsingar um
framhaldsskólana má finna á menntagatt.is
Allar nánari upplýsingar um innritun á vorönn 2011
eru veittar í framhaldsskólunum. Einnig er hægt að
senda fyrirspurnir á netfangið
menntagatt@menntagatt.is
Mennta- og menningarmálaráðuneyti,
19. nóvember 2010.
menntamálaráðuneyti.is
Ríkisjörðin Arnhólsstaðir í
Skriðdal er laus til ábúðar.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið auglýsir til ábúðar
ríkisjörðina Arnhólsstaði í Skriðdal, sveitarfélaginu Fljóts-
dalshéraði. Um er að ræða lífstíðarábúð.
Arnhólsstaðir eru í austanverðum Skriðdal, utan við ána
Jóku. Þetta er landstór jörð (ca. 2500 ha), jörðinni tilheyrir
m.a. Þórudalur norðaustan ár og ágætt ræktunarland er á
láglendinu. Greiðslumark jarðarinnar er u.þ.b. 250 ærgildi.
Umsóknarfrestur er til 7. desember 2010. Áformað er að
nýr ábúandi taki við jörðinni sem fyrst, samkvæmt nánara
samkomulagi við landeiganda og fráfarandi ábúanda.
Frekari upplýsingar birtast á heimasíðu ráðuneytisins, http://
www.sjavarutvegsraduneyti.is/jarðeignir/auglýsingar.
Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu ráðuneytisins og liggja
frammi í afgreiðslu á 5. hæð Skúlagötu 4, Reykjavík.
Fyrirspurnir sendist á netfangið postur@slr.stjr.is,
upplýsingar eru einnig veittar í síma 545 8300.
Húsnæði undir veitingarekstur til leigu.
Tilbúinn veitingastaður til leigu á Laugavegi 55
(áður Vín & Skel).
Um er að ræða 150fm rými og tekur staðurinn á milli
50 og 60 manns í sæti.
Tilvalið fyrir einstakling sem hefur kunnáttu og metnað
til að vinna sjálfstætt.
Upplýsingar gefur Bragi í síma 695 7045
Sími 562 4250
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA EHF
Borgartún 31 - 105 Reykjavík - www.fjarfesting.is - fjarfesting@fjarfesting.is
Pétur Þ. Sigurðsson hrl.
löggiltur fasteignasali
AFLAKÓR 5 Í KÓPAVOGI - PARHÚS
Óskar Þór Hilmarsson
L ggilt r fasteignasali
Um er að ræða 197,2 fm. parhús með innbyggðum 32 fm. bílskúr, samtals
229,2 fm að Aflakór 5 í Kópavogi. Húsið skilast nánast fullbúið að utan með
grófjafnaðri lóð. Að innan er húsið einangrað. Gert er ráð fyrir gólfhita í
húsinu. Húsið er staðsett í kórahverfinu í Kópavogi, stutt er í íþróttaaka-
demínuna, skóla og útivist. Opið hús í dag, laugardag, á milli 14 og 16
og sunnudag á milli 14 og 16.
OPIÐ HÚS Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG Á MILLI 14 OG 16
Súrefnismælingar í augnbotnum
– þátttakendur óskast
Á augndeild Landspítala er unnið að rannsóknum á
súrefnisbúskap í augnbotnum. Óskað er eftir sjálf-
boðaliðum, 18 ára og eldri, með heilbrigð augu (verður
staðfest af lækni) til þátttöku í rannsókn. Markmiðið
er að kanna eðlilegan breytileika í súrefnismettun og
munu niðurstöðurnar nýtast við sams konar rannsóknir
á sjúklingum með augnsjúkdóma. Súrefnisbúskapur í
augnbotnum gæti skipt verulegu máli í augnsjúkdómum
eins og sjónhimnusjúkdómi í sykursýki, gláku og
hrörnun í augnbotnum.
Áhætta af þátttöku er hverfandi. Hver heimsókn tekur
um 45-60 mínútur. Þátttakendur fá greitt fyrir fyrirhöfn
vegna rannsókna, 5.000 krónur. Auk þess verður greitt
fyrir útlagðan kostnað ef einhver er (einkum leigubíla ef
þörf er á).
Ábyrgðarmaður rannsóknar er Einar Stefánsson,
prófessor og yfirlæknir á augndeild LSH. Frekari upp-
lýsingar má fá hjá Jónu Valgerði Kristjánsdóttur, í síma
825 3556 eða með tölvupósti (jonakv@landspitali.is).
Þeir, sem hafa samband, eru með því einungis að lýsa
áhuga á því að fá frekari upplýsingar en ekki að skuld-
binda sig til þátttöku.
Rannsóknin er unnin með leyfi Vísindasiðanefndar og
tilkynning hefur verið send til Persónuverndar.
Tilkynningar Til leigu Fasteignir
Auglýsingasími
sími: 511 1144
Fasteignir