Fréttablaðið - 15.01.2011, Blaðsíða 48
15. janúar 2011 LAUGARDAGUR2
Staða sérfræðings á upplýsingasviði Fiskistofu
Fiskistofa er þjónustu- og eftirlitsstofnun sem annast stjórn og eftirlit með veiðum fiskistofna í sjó og fersku vatni. Hlutverk upplýsingasviðs Fiskistofu er söfnun
og úrvinnsla ýmissa upplýsinga frá útgerðum, höfnum, fiskvinnslum o.fl. Gæðaprófun gagna og samanburður á þeim fer þar fram. Upplýsingasvið sér um
vinnslu og miðlun ýmiss efnis hvort sem er til útgáfu, á vef, vegna fyrirspurna eða til annarra starfsmanna stofnunarinnar og á í nánu samstarfi við tölvusvið
Fiskistofu við framþróun í rafrænni stjórnsýslu og rafrænni þjónustu.
Laus er til umsóknar staða sérfræðings á upplýsingasviði Fiskistofu á aðalskrifstofunni að Dalshrauni 1 í Hafnarfirði.
Um fullt starf er að ræða og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni:
● Úrvinnsla fyrirspurna og skýrslna
úr gögnum Fiskistofu fyrir ráðuneyti,
hagsmunaaðila, aðra utanað-
komandi aðila sem og stjórnendur
Fiskistofu. Verkefnið krefst samskipta
við innlenda og erlenda viðskiptavini
Fiskistofu.
● Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Fiskistofu og greiningu og skipu-
lagningu verkferla.
● Efnisvinnsla, innsetning efnis og
þátttaka í þróun á vef Fiskistofu.
● Þátttaka í mótun, vinnslu og flutningi
kynningar- og útgáfuefnis Fiskistofu.
● Þátttaka í verkefnavinnu tengdri
þróun Fiskistofu í rafrænni og gagn-
særri stjórnsýslu og aukinni rafrænni
þjónustu.
Hæfnis- og menntunarkröfur
● Háskólapróf sem nýtist í starfi.
Framhaldsmenntun er kostur.
● Góð kunnátta og hæfni til að sækja
og vinna upplýsingar úr vensluðum
gagnagrunnum. Reynsla af vinnu
með Oracle Discoverer er kostur.
● Framúrskarandi talnalæsi. Mikil
hæfni til greiningar og úrvinnslu
talnaefnis.
● Gott vald á íslensku og ensku og
mikil færni til að tjá sig í ræðu
og riti.
● Frumkvæði, sveigjanleiki ásamt
lipurð í mannlegum samskiptum.
● Góð almenn tölvukunnátta.
Mikill kostur er að umsækjendur hafi þekkingu á málefnum sjávarútvegs og/eða
fiskveiðistjórnunar.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Sigurrós Valgeirsdóttir forstöðumaður
upplýsingasviðs og Inga Þóra Þórisdóttir forstöðumaður starfsmanna- og gæðasviðs í
síma 569-7900.
Umsóknir er hafa að geyma ítarlegar upplýsingar um menntun, fyrri störf, með-
mælendur og annað sem máli kann að skipta sendist á netfangið ingath@fiskistofa.is
eða með bréfi til Fiskistofu, Dalshrauni 1, 220 Hafnarfjörður merktar
„Sérfræðingur á upplýsingasvið“.
Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar 2011.
Laun taka mið af kjarasamningi ríkisins við viðeigandi stéttarfélag.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur
út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. regla nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum,
með síðari breytingum, sem settar eru samkvæmt heimild í 2. mgr. 7.gr. laga nr. 70/1996
um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.