Fréttablaðið - 15.01.2011, Page 49

Fréttablaðið - 15.01.2011, Page 49
LAUGARDAGUR 15. janúar 2011 3 INNKAUPASTJÓRI FERSKVÖRU Öfl ugt verslunar- og þjónustufyrirtæki óskar eftir að ráða innkaupastjóra. Viðkomandi ber ábyrgð á innkaupum, verðlagningu, vöruvali og markaðsmálum. Innkaupastjóri sér um stýringu vörufl æðis, samskipti við birgja ásamt því að sinna framlegðargreiningu, birgðagreiningum og markaðsherferðum. Leitað er að aðila með háskólamenntun sem nýtist í starfi og/eða með reynslu af sambærilegu starfi . Skipulagshæfi leikar og álagsþol ásamt góðri samskiptahæfni eru nauðsynlegir eiginleikar. Starf nr. 101216-01. RÁÐGJAFI – INNKAUP/RAFMAGNAVERK- EÐA TÆKNIFRÆÐINGUR Þjónustu- og tæknifyrirtæki leitar að metnaðarfullum og árangursdrifnum einstaklingi til að sinna tæknilegri sölu og ráðgjöf, innkaupum, samskiptum við birgja og viðskiptavini auk fl eiri krefjandi verkefna. Ferðalög fylgja starfi nu. Leitað er að söludrifnum einstaklingi með frumkvæði, sem býr yfi r leiðtoga- og samstarfshæfni. Staðgóð raftæknimenntun á sterkstraumssviði, t.d. verk- eða tæknifræði eða rafi ðnfræði. Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði, lesskilningur í Norðurlandamáli nauðsynlegur. Starf nr. 110103-01. VILTU VERÐA RÁÐGJAFI HJÁ CAPACENT? Capacent óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa. Viðkomandi mun fá tækifæri til að þróast yfi r í að verða ráðgjafi á sviði stjórnunar og mannauðsmála. Umsækjandi um starfi ð verður að búa yfi r metnaði, samskiptahæfni og drifkrafti, geta unnið sjálfstætt að fl óknum verkefnum og lagað sig að ólíkum aðstæðum og áskorunum. Háskólamenntun á sviði sálfræði, viðskipta eða félagsvísinda er nauðsynleg. Viðkomandi verður að vera góður í Excel og PowerPoint og hafa gott vald á íslensku og ensku. Lykileiginleikar eru skipulagshæfni, þjónustulund og sjálfstæði í starfi . Capacent vinnur með mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins í fjölbreyttum verkefnum. Markmið Capacent er að vera fyrsti valkostur fyrir kröfuharða viðskiptavini og metnaðarfullt starfsfólk. Starf nr. 110111-03. LÖGFRÆÐINGUR Fjármálafyrirtæki óskar eftir að ráða einstakling með embættispróf eða masterspróf í lögfræði. Kostur ef viðkomandi hefur hdl. réttindi. Helstu verkefni eru samningagerð, uppgjör samninga, málfl utningur og almenn lögfræðiráðgjöf. Æskilegt er að viðkomandi hafi nokkurra ára starfsreynslu, haldgóða þekkingu á löggjöf varðandi fjármálamarkað og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku. Reynsla af störfum innan fjármálageirans kostur. Sjálfstæði, nákvæmni og ögun í vinnubrögðum ásamt góðum samskiptahæfi leikum eru æskilegir eiginleikar. Starf nr. 110114-01. MARKAÐSFULLTRÚI Traust innfl utningsfyrirtæki óskar eftir ráða drífandi og dugmikinn starfsmann í starf markaðsfulltrúa. Markaðsfulltrúi mun sinna gerð og eftirfylgni markaðsáætlana, samskiptum við erlenda birgja, samskiptum við auglýsingastofu og miðla, uppsetningu á markaðs-, sölu- og kynningarefni sem og skýrslugerð, markaðsrannsóknum og viðskiptavinagreiningum. Gerð er krafa um menntun í markaðs- eða viðskiptafræðum. Reynsla af markaðsstarfi mikill kostur. Kunnátta í Photoshop, Illustrator eða sambærilegt mikill kostur. Markaðsfulltrúi verður að búa yfi r frumkvæði í starfi og sjálfstæði í vinnubrögðum sem og mikilli hæfni í mannlegum samskiptum. Starf nr. 110112-01. VERSLUNARSTJÓRI Öfl ug verslun á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að að ráða verslunarstjóra til starfa sem fyrst. Leitað er að jákvæðum og drífandi aðila með mikla stjórnunar- og söluhæfi leika. Verkefni viðkomandi eru dagleg stjórnun verslunar, starfsmannastjórnun sem og ábyrgð og umsjón á vöruframboði og framsetningu vöru í verslun. Gerð er krafa um reynslu af verslunarstjórnun eða mannahaldi. Menntun á sviði viðskipta eða verslunarreksturs mikill kostur. Viðkomandi verður að hafa góða íslensku-, ensku- og tölvukunnáttu sem og getu til að tjá sig í ræðu og riti. Metnaður, leiðtogahæfi leikar og færni í mannlegum samskiptum eru lykileiginleikar. Starf nr. 110105-07. RÁÐGJAFI Á SVIÐI MATVÆLAIÐNAÐAR Spennandi ráðgjafafyrirtæki á sviði matvælaiðnaðar og gæðakerfa óskar eftir að ráða ráðgjafa til starfa. Starfi ð felst meðal annars í ráðgjöf og þjónustu varðandi gæðakerfi fyrir matvælaiðnaðinn, innleiðingu gæðakerfa, samstarfi við stjórnendur um gæðamál og þátttaka í þjálfun og fræðslu starfsmanna. Góð enskukunnátta er skilyrði. Gerð er krafa um háskólamenntun á sviði matvælafræði, sjávarútvegsfræði eða verkfræði (B.Sc, M.Sc. eða Ph.D.). Þekking og reynsla af ofangreindum verkefnum er kostur. Þekking á matvælaiðnaðinum og tengsl þar inn er mikill kostur. Lykileiginleikar ráðgjafa er að geta sýnt frumkvæði og starfað sjálfstætt, einnig að geta skipulagt og haldið utan um mörg verkefni á sama tíma. Viðkomandi verður að hafa góða hæfni í mannlegum samskiptum. Starf nr. 100830-03. SÉRFRÆÐINGUR Í SÖLU- OG FLUTNINGADEILD Traust fyrirtæki með starfsemi á Íslandi og erlendis óskar eftir að ráða starfsmann í sölu- og fl utningadeild. Næsti yfi rmaður er sölustjóri. Um spennandi og krefjandi starf er að ræða fyrir réttan einstakling. Verkefni viðkomandi snúa að samskiptum við fl utningaskip og kaupendur, frágangi á pappírum tengdum sölum á afurðum og fl utningum og utanumhald um rekstur leigðra fl utningaskipa. Háskólamenntun á sviði viðskipta er mikill kostur sem og reynsla af vinnu við útfl utning. Góð enskukunnátta er skilyrði, talað og skrifað mál. Góð kunnátta á Excel og Word er skilyrði. Greiningargeta, skipulagni í vinnubrögðum og nákvæmni eru mikilvægir kostir. Starf nr. 100929-02. BÓKARI – 50% STARF Fyrirtæki á sviði verklegra framkvæmda óskar eftir að ráða bókara til starfa, um 50% starf er að ræða. Starfi ð er nýtt vegna aukinna verkefna. Verk- og ábyrgðarsvið viðkomandi er skráning í lánadrottnakerfi og innsláttur fjárhagsbókhalds, umsjón með viðskiptamannabókhaldi, útskrift reikninga sem og ýmsir útreikningar í Excel. Gerð er krafa um reynslu af vinnu við reikningshald, sem og góða tölvu- og Excelkunnáttu. Viðkomandi verður að hafa mikið sjálfstæði og skipulagsgetu, sýna nákvæmni í vinnubrögðum og hafa ánægju af samskiptum og þjónustu. Starf nr. 101220-01. HUGBÚNAÐARSALA Fyrirtæki á sviði upplýsingatækni óskar eftir að ráða öfl ugan aðila til starfa sem hluta af sterkum söluhópi. Viðskiptavinir eru fyrst og fremst í smásölu, heildsölu, framleiðslu og dreifi ngu. Um sölu á eigin hugbúnaði er að ræða. Starfssvið viðkomandi er sala, ráðgjöf og þjónusta til fyrirtækja, heimsóknir til viðskiptavina, kynningar á hugbúnaðnum, öfl un verkefna sem og samninga- og tilboðsgerð. Tölvu-, tækni- eða markaðsmenntun kostur. Reynsla og mikill áhugi á sölumennsku sem og reynsla af sölu á fyrirtækjamarkaði. Reynsla, þekking og áhugi á tæknimálum nauðsynlegur. Góð tölvu- og enskukunnátta skilyrði. Viðkomandi verður að búa yfi r sjálfstæði í vinnubrögðum, skipulagsgetu og góðri samskiptahæfni, bæði við viðskiptavini og samstarfsmenn. Starf nr. 101124-02.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.