Fréttablaðið - 15.01.2011, Síða 80
52 15. janúar 2011 LAUGARDAGUR
krakkar@frettabladid.is
Ísold Ylfa Magnúsdóttir 7 ára SÝNING
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Þjónninn: Jæja, í dag er ég
með reykta tungu, steikta
lifur, nýru í kássu og grísa-
lappir.
Gestur: Ég var ekki að spyrja
um heilsufar þitt.
Af hverju fer Lúlli laukur alltaf
í ljós?
Svo hann verði ekki hvítlauk-
ur.
Hvað sagði mjói fiskurinn við
feita fiskinn?
Fiskibolla.
Hvað er líkt með fíl og gíraffa?
Þeir eru báðir gulir, nema
fíllinn.
Hvað kallar þú fíl í kjól með
bleik eyrnaskjól?
Hvað sem þér sýnist, hann
heyrir hvort sem er ekkert.
Hvers vegna er fíllinn stór,
grár og krumpaður?
Af því að ef hann væri lítill,
glær og glansandi þá væri
hann lýsispilla.
WWW.CLUBPENGUIN.COM er síða með auðveldum en skemmtilegum leik.
Hægt er að leika eitthvað frítt en einnig er hægt að gerast meðlimur á síðunni.
Leit er hafin að hæfileikaríkum
krökkum á aldrinum 8 til 18 til
að taka þátt í leikritinu Galdra-
karlinum í Oz, sem verður sýnt í
Borgarleikhúsinu í haust.
Skráningardagur fer fram í for-
sal Borgarleikhússins 19. janúar
milli klukkan 16.15 og 17.30. Gott
er ef hver og einn mætir með
útfyllt skráningarblað sem er
aðgengilegt á vefsíðunni borgar-
leikhús.is. Allir verða myndaðir og
síðan sagt hvenær þeir eiga að
mæta í prufu.
Hæfileikadagar fara fram
dagana 24. janúar til 14. febrúar.
Þá er um að gera að láta ljós
sitt skína og ýmist leika, syngja,
dansa, gera heljarstökk eða
annað sem manni
er til lista lagt.
Hægt er að
flytja atriðið
einn eða
í hópi en
skilyrði er að
það sé gert
án hjálpar-
tækja og skal
hámarkslengd
hvers atriðis vera þrjár mínútur.
LEIT AÐ UNGUM
LISTAMÖNNUM
Komdu að leika
Ísold Ylfa fór á
sýninguna „Komdu
að leika“ á Árbæj-
arsafni sem fjallar
um leiki og leikföng
barna í Reykjavík
á 20. öld en þar
geta gestir prófað
leikföng frá ýmsum
áratugum.
Með hverjum
fórstu á sýning-
una? Ég fer oft á sýninguna,
oftast með ömmu minni,
stundum með pabba mínum
og einu sinni með sumarnám-
skeiði.
Hvaða leikföng þótti þér
skemmtilegust að prófa?
Mér finnst öll leikföngin jafn
skemmtileg.
Voru einhver leikföng sem
voru ekkert skemmtileg eða
kannski skrítin? Það voru
engin leikföng sem
eru ekki skemmti-
leg og engin eru
skrítin.
Sástu einhver
leikföng sem þú
vildir sjálf eiga?
Mig langaði að eiga
dúkkuna sem var
með mér á mynd-
inni.
Sástu leikföng sem mamma
þín og pabbi léku sér með
þegar þau voru lítil? Mamma
mín lék sér með barbie-dúkkur
þegar hún var lítil og pabbi
með leikjatölvur.
Mælirðu með sýningunni
fyrir aðra krakka og kannski
fyrir fullorðna líka? Ég mæli
með sýningunni fyrir krakka.
Árbæjarsafn er besta safn í
heimi!!!!!!
Yfir vetrartímann er föst leiðsögn um Árbæjarsafn alla
mánudaga, miðvikudaga og föstudaga milli klukkan 13 og
14. Krakkar fá ókeypis inn.
Hvenær byrjaðir þú að æfa
handbolta? Ég byrjaði svona
níu eða tíu ára.
Æfðir þú aðrar íþróttir? Já, ég
byrjaði í fótbolta fimm ára og
æfði alveg upp í annan flokk
auk þess sem ég var í körfu-
bolta í tvö ár. Ég ætlaði alltaf
að verða fótboltamaður en svo
var ég víst betri í handbolta.
Hvert er uppáhaldsfótbolta-
liðið þitt? Hér heima held ég
með FH en svo er ég Chelsea-
maður.
Hver er skemmtilegastur í
íslenska handboltalandslið-
inu? Mér finnst Ásgeir Örn
Hallgrímsson skemmtilegast-
ur. Hann er aldrei að reyna að
vera fyndinn heldur kemur það
mjög eðlilega hjá honum og það
fíla hann allir.
Hver er frekastur? Róbert
Gunnarsson. Ef hann fær bolt-
ann þá gefur hann ekki.
Hver er draumurinn? Draum-
urinn er að fá að spila í heims-
klassa næstu fimmtán árin og
fá að spila um alla titla. Eins
langar mig til að vinna gull
með landsliðinu.
Ætlar þú að halda áfram að
spila jafn lengi og Ólafur Stef-
ánsson? Ég hef alltaf haldið því
fram að ég muni hætta 35 ára
en það er aldrei að vita.
Hver er uppáhaldsliturinn
þinn? Vá, það er langt
síðan ég hef fengið þessa
spurningu. Það er erfitt
að segja. Ég hugsa samt
blár eins og búningarnir
hjá Chelsea og lands-
liðinu.
Hver er uppá-
haldshljóm-
sveitin þín?
Rottweil-
er.
ÁSGEIR ÖRN ER
SKEMMTILEGASTUR
Handboltakappinn Aron Pálmarsson, sem leikur með Kiel í Þýskalandi, er nú
staddur með íslenska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð. Hann ætlar
sér stóra hluti í framtíðinni og stefnir á gull með landsliðinu. Hann ljóstrar því
upp hér hver er skemmtilegastur og hver frekastur í liðinu.
Ég byrjaði
í fótbolta
fimm ára og
æfði alveg upp
í annan f lokk auk
þess sem ég var í
körfubolta í tvö
ár. Ég ætlaði alltaf
að verða fótbolta-
maður en svo
var ég víst betri í
handbolta..